November 22, 2008

Allt í steik..

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:13 pm

Usss mín komin á SVARTA listann hjá bluehost út af 40.000 kommentum sem ég kemst ekki til að henda, rusl kommentum sem eru að drekkja síðunni minni..

Verð líklega ða henda þeim öllum út, þá meina ég ÖLLUM líka þeim sem eru við færslurnar mínar, skæl, skæl… en svona er þetta bara.

Alltaf gaman að byrja uppá nýtt…

Knús frá lærdómshestinum á svarta listanum ***

November 19, 2008

Dagurinn í gær..

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:27 am

Já, gærdagurinn - get alveg sagt að honum gleymi ég aldrei.

Lenti í ansi leiðinlegri flugferð frá RVK til Hafnar með guttana mína. Sem betur fer er ég þeim eiginleika gædd að halda ró minni í aðstæðum sem slíkum. Það sem var mest óþægilegt við flugferðina var að hafa guttana mína með mér og upplifa algjört hjálparleysi. En þeir stóðu sig með prýði eins og gamlan og reyndar allir í vélinni. Er með smá strengi í hægri hendi eftir a halda fast og vel í Ægi, Maroni fannst þetta bara gaman… sem er bara hið besta mál, ekki ætla ég að innleiða einhverja hræðslu hjá honum.

En að allt öðru og mjög svo eftirminnilegu,
ástæðunni fyri því að deginum gleymi ég aldrei :D
Sú stutta telur sig nú ekki vera mjög gamla, ekki orðin amma ennþá allavega :lol:
Fékk símtal eftir kvöldmat í gær frá minni kæru vinkonu á Dalvík.
Ég óðamála að segja frá fluginu og einhverju öðru fann lítið fyrir því að eitthvað lá minni kæru á hjarta… ég malaði út í eitt, get svo svarið það hehe.

Loksins þegar Ranka mín komst að þá voru það nú engar smá fréttir sem hún hafði að færa =O) þrátt fyrir ungan aldur er sú stutta búin að eignast nöfnu… já það er rétt, litla gullið á Dalvík á að fá nafnið Lilja Rós.
Ekkert smá fallegt og mín ekkert smá montin, ég varð orðlaus (sem gerist nú ekki oft) og búin að upplifa allan tilfinningapakkann tengdu þessu, gæsahúð, hjartasting (góðan), smá skæl, alsæla, eirðarleysi, mont, stolt… örugglega eitthvað fleira eftir að koma - þetta er bara yndislegt. Mín kæra á Dalvík hefur kallað mig í gegnum tíðina liljurósina sína og þaðan kemur nafnið… bara frábært.

Lilja Rós Harðardóttir
Lilja Rós Harðardóttir á spítalanum á heimleið. (stolið frá Bjarna frænda hennar)


Haraldur Kristján stóri bróðir að gefa Lilju Rós snabbann sinn =O)
Falleg systkinin á Dalvík - get ekki beðið eftir að knúsa þau.
(Þessari er stolið frá pabbanum)

Liljan ætlar auðvitað að reyna allt til að mæta í skírn hjá litla gullmolanum, það er nú alveg lágmark ef þú spyrð mig… lífið er svo dásamlegt - segi ekki annað. Með öllum sínum verkefnum og óvæntu uppákomum leynist alltaf eitthvað yndislegt sem gjörsamlega sviptir undan manni fótunum og kemur manni á flug, þvílíkur heiður - ólýsanleg tilfinning - get alveg sagt ykkur það :lol:

Knús frá montnu liljurósinni sem er enn á flugi og engin lending væntanleg hjá henni ***

e.s. mig er nú búið að verkja mikið, mig langar svo norður, þetta er ekkert til að bæta það neitt ;)

November 13, 2008

Hjartalag

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 5:46 pm

… merkilegt hvað það er vont að finna til í hjartanu, vöðvi sem vinnur í ósjálfráða taugakerfinu og ætti ekki að valda okkur hugarangri ef allt er í góðu. Svona er þetta, ég finn mest til í hjartanu þegar fjölskylda og vinir eiga um sárt að binda - samkennd/samhugur/samhyggð - falleg hugtök sem allir ættu að tileinka sér og hætta að nagast út í aðra og velta því fyrir sér hvers vegna aðrir geri hlutina svona eða ekki svona. Ég og aðrir höfum allan rétt til að gera hlutina nákvæmlega eins og okkur finnst best án dóma frá öðrum.

Ég er svo rík, ég á svo fallega stráka og duglega. Ég furða mig oft á því hversu duglegir þeir eru. Að hluta er það auðvitað uppeldið en einnig hvernig þeir eru að upplagi. Ég læt þá takast á við örgrandi verkefni reglulega og Ægir tókst á við eitt í dag og leysti það með sóma. Ómæld ást sem streymir til þeirra hvert sekúndubrot.

Tók myndklippu af Ægi í gær þar sem hann spilaði lagið Hátt í Hamraborgum á tvær blokkflautur í einu, snillingur þessi drengur er. Ægir með tvíböku blokkflauturnar.
Ég spurði Ægi hvort hann gæti lesið tvær blaðsíður í einu eins og THE Rain Man, eftir stutt próf kom í ljós að svo var ekki. THE Rain Man (sá sem myndin var gerð eftir) gat lesið tvær blaðsíður í einu þar sem vantaði heilatengslin hjá honum, sem tengja saman hægra og vinstRA heilahvel. Þetta væri ekkert slæmur kostur í Háskólanámi þar sem lesefnið er viðbjóðslega MIKIÐ…

Þarf að taka upp klippu af Maroni spila á trommurnar, það er þvílíka snilldin, ég skil ekki hvernig þetta er hægt. Gera nánast sitt hvorn taktinn með öllum útlimum… óskiljanlegt.
Það er ekkert leiðinlegt að heyra í þeim glamra á Fenderinn minn, rafmagnsgítarinn og hljómborðið hérna uppi, vinir Marons eru held ég flestir að læra á hljóðfæri :D

Fór í vínklúbb í gær, þvílík sæla. Þuríður lá ekkert á kræsingunum og mér leið eins og belgsvíni þegar ég kom heim. Takk fyrir kvöldið stelpur - alltaf jafn dásamlegt að hittast, eta, drekka og babbla um allt og ekkert, aðallega ekkert. Kom heim hlaðin áfengi eins og fyrir mánuði síðan, nú þarf stelpan að fara að bjóða í svelg-teiti og losa um þessa birgðastöðu, ekki gott að vera með of miklar birgðir um áramót hef ég heyrt :lol:

Mig laaaangar SVO austur í bústaðinn… er alveg iðandi. Ef ég vissi 100% að ég þyrfti ekki að fara í Zorabyggð á mánudaginn þá færi ég - hratt og örugglega. Er bara ekki að nenna þessu rússi núna, keyra heim sunnudag og keyra svo kannski til RVK á mánudag - fæ nú bara netta ælu í hálsinn. Ég bara verð að komast í sæluna fyrir árslok - annað væri hneisa.

Sú stutta er annars bara nokkuð kát og ekkert búin að læra í dag…
get svo svarið það - finnst það ótrúlegt sjálfri og kannski ég sé bara með hita… hehe.
Knús á línuna frá mér ***

November 11, 2008

Oft eru bílstjórar útkeyrðir…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 1:09 pm

.. ég er einn af þeim eftir rallýferðir í Zorann síðustu vikur, þetta er orðið gott.

Mér er kalt, er með kuldahroll að innan sem utan og í ofaná lag er ég með kjánahroll líka, þeð er heldur verra og jafnvel kaldari en hinn hrollurinn.

Er að verða búin að jafna mig á veikindum sem eru búin að vera að hrjá mig, svona hálflasin í hvað.. einhverja 10+ daga, alveg óþolandi leiðinlegt. Ekki það, hef ekki gefið mér tíma til að vera lasin og þá vill þetta detta í þennan farveg.

Nú er bara að hugsa vel um sig og halda áfram að læra og sinna öllu öðru líka. Halda sig á strikinu og láta ekkert breyta því, ekkert annað í boði þessa dagana. Styttist í skólalok en samt ansi mörg verkefnaskil á næstunni… pjúff - þetta hefst eins og ALLTAF.

Harka af sér helvítis leiðindin og smæla framan í heiminn :lol:
Knús frá þeirri stuttu til þín  ***

November 3, 2008

Lífið er yndislegt…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 7:33 pm

Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég

Líf - ljómi þinn er skínandi skær.
Líf - augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf

Óskadraumur - ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár

Líf - ljómi þinn er skínandi skær.
Líf - augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf
Lag og texti: Stefán Hilmarsson

November 1, 2008

heimskur heimskari heimskastur

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:03 pm

… vá hvað ég elska sjálfa mig þegar ég hef hagað mér heimskulega, ekki orðum á það eyðandi…

Var búin að fá mig fullsadda af Zorabyggð og gott betur, hrikalega sem það var gott að koma heim í gærkvöldi… aðallega út af skipulagsleysinu í skólanum, var ekkert í skólanum á miðviku- og fimmtudag en kennsla í einu fagi fór fram í vikunni á undan staðlotunni, það er varla að ég nenni að kvarta undan þessu en þetta lagast víst ekki ef ég tuðbollast bara hérna :D

Fékk tvær einkunnir í skólanum, ansi sátt með þær og mig, með þessu áframhaldi á ég eftir að rúlla þessu upp hehe.. neeee bara grín en stefnir í góða samvisku námslega séð.

Fór út að borða á þriðjudagskvöldið með Bjöggu frænkz, Slaugu og Friðdóru - eigum við eitthvað að ræða hvað það er ljúft að vera með bestustu vinkonunum, borða góðan mat, hvolfa í sig öli og kjaftaglamrast langt fram á kvöld.. uuuu nei :lol:
Þetta voru 6 smáréttir og eftirréttur, ég var heppin að komast upp stigann hjá frænku þegar ég kom heim, svo södd var ég á sál og líkama =)

Dagurinn í dag búinn að fara í hitt og þetta, aðallega þetta. Er að hita mér ídýfu í þessum töluðu, jammz snakk og kruðerí í boðinu, enda að byrja að læra og læra og læra. Ætla samt að henda upp eins og einum ef ekki tveimur gardínustöngum, er bara að bíða eftir að borvélin mín hlaði sig þessi elska. Svo er bara að draga fram saumavélina og hannyrðast smá og athuga hvort úr því verði kannski gardínur inn til strákanna =) það stendur nú ekki mér frekar en annað.

Bankinn ákvað að skila mér aurunum mínum aftur, en fyrir að geyma þá fyrir mig í heila 15 mánuði tóku þeir litlar 600 þúsund krónur - alveg spurning að finna sér ódýrari aurabauk, svei mér þá. Gat verið verra en er auðvitað ekkert svaðalega kát með þetta…

Jæja farin í iðnaðarmannagírinn í smá stund og svo næring og nám - ótrúlega ómissandi blanda við lesturinn. Er að fara að lesa um mannauðarstjórnun, litlar 300 blaðsíður, ég stefni hraðbyri í það að verða THE BOSS 24/7 - þetta stjórnunarfag er alveg að gera sig hjá mér hehe.

Knús frá þeirri stuttu ***

October 24, 2008

Þær koma í röðum….

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 7:03 pm

þessar ritgerðir. Mér líður eins og prófessor sem les bara fræðirit og fær sína fullnægingu með því að uppgötva eitthvað sem hann ekki vissi áður - þvílíka orgían það :lol:

Þegar ég fékk sms frá kærri vinkonu í gær þá hugsagði ég.. er ég alltaf svona upptekin eða bara þegar hún kemur í sveitasæluna!! já hvað er málið með það… fór í knús og kjaftagang til hennar og fékk sveita-sperla að borða að auki. Þvílíkar krúsídúllur þessar stelpur sem hún á, litlu tvíbökurnar Kristín Sara og Berglind Bára - hvenær fæ ég mínar… HA… Friðdóra, Áslaug, Kolla og Hulda hehe.

Það fer að detta á staðlota hjá mér í skólanum. Búin að fá vist á Grund, veit ekki hvort ég treysti mér til að vera í herberginu “mínu”, því þar hefur verið loðinn og lyktandi gestagangur, er þetta herbergi bara komið á almennan markað - maður spyr sig?? Kannski mar’ krassi bara í sófanum góða eins og oft áður - snilldargripur þar á ferð :D

Hugur minn leitar norður í augnablikinu sem svo oft áður, þangað sendi ég mína bestustu strauma og hlýjar hugsanir. Þar er fallegi gullmolinn minn sem býr yfir óendanlega miklum kjarki og dug. Þú veist ég elska þig kæra vinkona, ávallt.

Mætti á bjórvaktina klukkan seytjánhundruð og búin að næra mig, nú er það námið aftur og það verður tekið með trukki á morgun og vonandi að þetta stykki sem er í fæðingu verði klárt fyrir brottför í Zorabyggð… það verður að vera klárt því RVK og heimanám á bara enga samleið.

Knús til þín frá mér ***

September 21, 2008

Alveg að missa það!!

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:07 pm

Vaknaði allt of snemma í gær - til hvers?? Jújú sú stutta var búin að skrá sig til leiks í gríninu www.iformi.is og keppnisgreinin var fótbolti. Ég er farin að halda að ég hafi kannski bara fengið högg á höfuðið án þess að muna til þess ;) halló Liljan farin að æfa fótbolta!!!

Mætti, sá og tapaði BIG TIME - þetta var alveg hrikalega gaman, tognaði reyndar lítillega í nára sem þíðir það að sú stutta var ekkert að glenna sig í gær við lærdóminn hehe.

Rest af deginum eyddi ég í lærdóm - jamm smá pressa núna. Verkefnaskil á morgun í einu fagi og svo ritgerð á föstudaginn í öðru fagi og lesefnið fyrir þá ritgerð er slatti í poka, auðvitað á engilsaxnesku en ekki hvað - mest af því allavega. Ég gerði samkomulag við sjálfa mig (já ég er rugluð) ef ég myndi klára x-mikið af lesefni þá ætlaði ég að verðlauna mig og fara á ball og mála bæinn rauðan :) á slaginu 2200 var ég búin, og það voru sko átök að klára, ómæ hvað ég var orðin dofin í höfðinu og eirðarlaus… úfffff.

Eftir lesturinn stökk ég inn í ísskáp, togaði í teit og sturtaði ofaní mig einum ísssssköldum. Í sturtuna, í djammgallann, út á Vík í smá upphitun og svo beint í dansgírinn. Ég var varla mætt á svæðið þegar ég rak augun í risatjald upp á vegg og þar runnu í gegn myndir ef fótboltahetjunni mér hehe… augnabliki síðar var ég komin með silfurpening (ólympíuleikar hvað!!) um hálsinn - talandi um flott kvöld, bara snilld. Takk fyrir frábært kvöld allir sem ég fékk að knúsa…


Sú stutta › Silfurhafinn :)

Varð næstum úti á heimleiðinni, það kom úrhellisrigningarógeð og ég byrjaði að skokka… næst kom HAGLÉL, bara sísvona, ekki upp úr þurru, ónei… þá flýði mín inn í Sparisjóð til skjóls - þegar élinu létti skokkaði ég rest og á mér var ekki einn þurr þráður!!

Það var lítið annað að gera en skella sér í sjóðheitt brúsabað og skríða svo í sófakúr þegar heim kom, enda voru 2 karlmenn búnir að hertaka bólið mitt :) Í dag er ég agalega spræk en voðalega geispuð, ætla að fínisera verkefnið fyrir morgundaginn, éta sukk og hafa það ljúft - held það verði jafnvel tekinn sófinn á þetta í kveld með smá kertaljósi og lopasokkum ;) eeeef ég verð dugleg í dag.

Eftir kvöldmat í gær þóttist litla dýrið mitt hann Ægir vera agalega hungraður í safaríku og mjög svo góðu melónuna sem ég verzlaði fyrr um daginn - mest af henni fór í ruslið. Myndirnar tala sínu máli og…. þetta endaði sem Melon head :lol: alltaf gaman að grallarast smá, sér í lagi þegar mamma tekur til eftir allt gamanið :P
Ef þið eruð að spá hvar Maron var, þá var hann í tölvunni - surprice haha…


Knús frá þeirri ofuránægðu með að vera á lífi til að njóta silfursins ***

e.s. ég er sko enginn öldungur þó það sé verið að tuggast eitthvað á því orði á þessari heimasíðu þarna, Í formi :lol:

September 17, 2008

Tær schnilld =)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:06 pm

Jeppz, lét plata mig í tuðruspark í gær.. og það var bara rosa gaman, lifði þetta sem sagt af og fékk ekki einu sinni strengi - kom mér verulega á óvart. Okok var kannski ekkert að fórna mér en halló reyndi nú að gera eitthvað hehe.

Auðvitað kann ég EKKERT í fótbolta, ekki frekar en þegar ég var 14-15 ára, þá lét ég hana Friðdóru mína plata mig bæði í fótbolta OG handbolta… jahérnahér talandi um að vera áhrifagjörn hehe. Endaði í Karate eftir að vera búin að láta einhvern trukk frá Djúpavogi klípa mig, hrinda og kremja í einhverjum leik. Fékk meira að segja flash back frá þeim tíma, þá voru svona krossviðarplötur settar upp í kringum völlinn þegar var keppni, vá hvað það var yndislega vont að láta hnoðast á sér upp við þær… mundi nákvæmlega af hverju mér fannst þetta ekki skemmtilegt :D og í kringum gervigrasvöllinn eru auðvitað svona rekkverk… :-x

Sú stutta er meira svona í einstaklingshyggjunni, ekki útaf neinu sem ég elska að vera í sundi, á skíðum og skautum… jamm það er ég og snillingur í þessu öllu ;) eru ekki alveg að koma páskar með árlegri búðstaðaferð og skíðum!!

Eins og mín kæra Viktoría sagði um daginn.. (hlakka til þegar fer að hausta og þú ferð að blogga aftur), merkilegt hvað það er eitthvað gott að finna afsökun til að læra ekki og gera eitthvað allt annað eins og að blogga, taka til, skúra, setja í vél, kíkja í ísskápinn, fara krús á hjólinu, opna allar skúffurnar í kommóðunni góðu - dásamlega ruglaður sem maður getur verið.

Ætla samt að drífa í því að klára að setja upp viðtalið sem ég tók í gærkvöldi, heh það var fyndið. Ég og ónefnd vinkona mín skvettum í okkur einum malibu í appelsínusafa og svo tók ég viðtal við hana, vorum svo rólegar á þessu og eðlilegar - elska fólk sem er tilbúið að gera mér greiða, hvar væri ég annars. Búin að þurfa að bögga fullt af fólki í gegnum þetta nám mitt og á eftir að gera enn meira af því - Bjögga frænkz ber auðvitað hitann og þungann af þessu öllu, gisti alltaf hjá þessari elsku á Grund í Grafarvoginum þegar ég þarf í Zorabyggð - þú veist ég elska þig sæta mín :lol:

Ég og Ægir fórum einmitt krús á hjólinu á… humm mánudaginn, gripum tækifærið þar sem hér hefur rignt í 9 daga fyrir utan þennan eina dag - úfff þetta er að verða gott. Þeir bræður Maron og Ægir fóru í sirkus það kvöld og voru alsælir með sýninguna - ég fór í sirkus hérna um árið í Bristol með Viktoríu og læt það duga að sinni :)

Jæja, sendi mitt innilegasta knús til þín frá mér ***
e.s. næsta æfing er á morgun :lol:

August 18, 2008

Auðvitað..

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:08 pm

ætti ég að segja frá æðislegu hringferðinni sem ég fór í með guttunum mínum… en af því það rignir þá bara nenni ég ekki að blogga :lol: get svo svarið það… þegar skólinn byrjar þá hef ég EKKERT annað að gera en segja frá mínu annars mjög svo spennandi lífi hehe.

Er búin að vera óeðlilega róleg þetta sumarið - spurning um að hætta bara alveg að drekka, það er svo ljúft að vakna sprækur helgi eftir helgi eftir helgi… borða heita salsaídýfu í morgunmat og fara svo út að skokka - dásamlegt alveg hreint ;)
Elska að vera ég og geta sent knús til þín frá mér ***