Svei mér þá… var í LOL í gamle dage og staðan í dag: kínverska =O) en hef óbilandi trú á sjálfri mér og mér, þannig að þetta á allt eftir að verða eins og smjörvi á harðfisk - smooth =) jamm og kjamms.
Þessi sem hrannaðist upp hjá mér sótti um vinnu í minni aukavinnu - gott mál nema ég geng fyrir enda miklu betri barþjónn en ……. bæði sætari og sneggri = betri sölumaður hehe. Er líklega að fara í Zorann í næstu viku - má eiginlega ekki vera að því… en hvað gerir maður ekki fyrir ungana sína.
Langar að moka á ströndinni og/eða feykja púðri í fjöllum, spurning hvort verður fyrir valinu?? ef ég skila fullu húsi stiga í vor þá verður gert eitthvað “awesome” með Maroni og Ægi, eins og Gunnsi nokkur krossa orðaði það. Verð að fara að koma bossanum í bikini-/klifurform það er alveg á hreinu, hvað sem gerist fer ég allavega í sund í sumar =) nú og ef bossinn verður extra sterkur (ekki stór) þá ætla ég að plata Hollendinginn fljúgandi í ævintýraferð - það er alveg bókað mál - hann klikkar ekki á því frekar en fyrri daginn.
Fékk flugfar í jólagjöf, þarf að fara að finna eitthvað sérlega skemmtilegt út úr því. Langar auðvitað alveg svaðalega mikið til Danmerkur… en ekki hvað - en sjáum hvað setur. Svo var Dagfinnur nokkur dýralæknir að bjóða mér að koma til Aspen að skíða, það yrði bara geggjað =O) en kannski fer ég bara til Egilsstaða að smíða með mömmu og pabba, það yrði heldur ekki leiðinlegt - bara gaman að láta hugann reika og sjá hvað gerist. Hef ekki planað mikið hingað til og ætla ekki að byrja á því í dag =) það er bara gert til að svekkja sjálfan sig =) jamms.
Knús sætalingur og haltu áfram að vera fallegur *** kveðja moi
