Hún æskuvinkona mín og vinur, Áslaug og Helgi fengu tvíbökurnar sínar í fangið í dag. Ég var svo spennt yfir þessu öllu að ég bara varð að hringja í Skeggja og fá nánari fréttir =O) Skeggi var auðvitað að springa úr monti og gat sagt mér að þetta gekk eins og í sögu hjá þeim og öllum fimm heilsast vel =O) sem sagt Áslaugu, Helga, Jóni Skeggja og tvíburunum. Hún Áslaug er nú bara fædd til að ganga með tvíbba, svei mér þá… svo ég tali nú ekki um að koma þeim í heiminn =O)

Hér eru krílin nýfædd, strákurinn vinstra megin og stelpan til hægri… ég er sko búin að horfa á þessa mynd í allan dag hehe, eða síðan Skeggi var svo sætur að senda mér nokkrar myndir.
Til hamingju elskurnar og ég get ekki beðið eftir að koma í Borgina í marz og skoða, vá hvað það verður gaman. Knús á línua ***
