March 24, 2007

Home sweet Home

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:18 am

Það er alltaf jafn gott að koma heim, en vá hvað vikan í Zoranum og svo Vellinum var yndisleg… heppin ég =O)

Keyrði til Reykjavíkur í skítaveðri og keyrði svo heim viku síðar í brjáluðu veðri… úff hef bara aldrei lent í öðru eins. Þæfingur og 30 km hraði í allavega 150 km af þeim 350 sem ég fór þann daginn. Við afleggjarann að Landmannalaugum í þæfingnum var lítið teiti, þar var snjóruðningstæki, econoliner frá Höfn, löggumann og ég… ég hefði nú skellt mér í teitið nema mér leyst ekkert á færðina inn þann afleggjara =) brosti til bílstjóra snjótækisins og hann benti mér á að halda áfram í þessu líka yndislega útsýni - NOT. Ekki tók betra við austan við Klaustur, í suðursveitinni var svo hvasst að ég hélt að sjálfrennireiðin myndi fjúka í loft upp og enda á hvolfi í næsta skurði… setti gemzann í vasann og hækkaði í  tónlistinni - viðbjóðslegt ferðalag eftir svona líka frábæra viku.

Fór í afmælisveislu til Helga =O) aðallega fór ég auðvitað til að sjá tvíbökurnar þeirra, jeminn ætlaði ekki að komast út og heim til BF aftur þau voru svo æðisleg. Hún Áslaug mín er fædd til að ganga með og fæða tvíbökur, ég er bara enn orðlaus =O) Sníkti auðvitað bæði mat og vín hjá þeim, en ekki hvað. Takk fyrir mig.

ég og tvíbökurnar  frænkur á leið á djammið
Fallegust - Liljan - Fallegastur           Stubbaknús - ég og BF komnar í gírinn hehe

Til að toppa dekurvistina hjá Bjöggu skelltum við okkur á ball frænkur. Mættum galvaskar á Players til að hlusta á hvert eyrnakonfektið á fætur öðru. Það var BARA gaman og við dönsuðum allan tímann. Ég þekkti hljómborðsleikarana í 3 hljómsveitum sem komu fram og er nú bara hálfsúr yfir að fá ekki boðsmiða =O) léleg group-pía þar á ferð. Fórum aðeins of seint að sofa frænkurnar, svona miðað við aldur og fyrri störf, en við tók matargerð, ABBA, Duran Duran og kjaftablaður eftir ball. Takk fyrir mig sæta, það jafnast fátt á við Bjargarból og knús frá litlu frænku í morgunsárið ummm. Sófinn sveik mig heldur ekki frekar en fyrri daginn hehe.

Ekki er öll sagan sögð enn… ónei kraftakerlingin skellti sér austur fyrir fjall og mætti þar galvösk í partý klukkan 1800 með henni Erlu minni á Hvolsvelli. Tilefnið var dömukvöld í Hvoli, þar mættu tæplega 100 konur til að skemmta sér saman og borða góðan mat. Mætingin fannst mér ótrúleg í ekki stærra bæjarfélagi. Matur, drykkir, skemmtun, dansidans og félagsskapur gleðikvennanna alveg meiriháttar. Það var hríðarbylur í sveitinni og við gellurnar fengum allavega 2 karlmenn til að snúast með okkur eftir ball =O) fyrst var það öðlingurinn hann Bensi, svo Jón leigubílstjóri frá Hellu og svo aftur Bensi… en það var ekki undir botninn á mér =O) sólin var nú bara að koma upp þegar við náðum í draumheima. Takk fyrir mig, næst verður mætt á sveitaball í lopapeysu með kút á bakinu =O)

Var að vinna á harmonikkuballi í gærkvöldi, tvistaði eitt lag og Ásta á Grund rauk upp og dansaði við mig. Ég bara verð að fara að læra að dansa, þetta gengur ekki lengur. Konurnar voru svo sætar, drukku malibu í appelsínusafa og karlarnir drukku dry vodka =O) úff hefði ekki staðið í fæturnar eftir 4*3 faldan í vatn… ónei aldeilis hrædd um ekki, kjúklingurinn ég. Dúllulegt ball.

Jæja steypuvinnan bíður víst ekki, enn ein ritgerðin í smíðum. Við Erla vorum að gera góða hluti í hreyfiþroska ritgerðinni okkar, fengum 9,5 sem var hæsta einkunnin þetta misserið =O) jájá ég veit, varð aðeins að monta mig. Kannski maður ætti þá að fara að hreyfa sig eitthvað af viti, ætla að byrja í sportinu aftur á mánudaginn - hlakka ekkert smá til. Er ekki búin að borða brauð, nammi né drekka gos í 3 vikur, mér finnst ég ekkert smá dugleg. Rassinn hefur samt ekkert minnkað =O) og kommentin frá Maroni aukast bara… segi frá þeim síðar - þeir eru snillingar báðir tveir, Maron og Ægir - þvílíkir gullmolar sem ég á og hvað ég saknaði þeirra í Zorareisunni úff.

Keypti 2 sett af skíðum á stubbana mína í gær, ohhh hvað ég vona að það verði snjór um páskana í Oddskarði. Ætla í bústað með mam, pap og Eini, grill, spil, heitur pottur (kannski), bjór (kannski) og skíði - meira dekur sem sagt og auðvitað púl við að skíða og taka ungana með í fjallið - sjálfboðaliðar til að hjálpa mér velkomnir =O)

Hey þetta er bara orðin ævisaga. Mér leiðist greinilega núna hehe, aleinn heima og nývöknuð, fór að sofa klukkan 5 í morgun. Held ég pakki mér inn í sæng og kúri mér aðeins lengur. Kveðja frá langlokunni mér ***

March 14, 2007

Zorinn

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 8:29 pm

Ójá það er nóg að gera og tíminn flýgur gjörsamlega frá mér… enda farið snemma í bólið þar sem frænkur mínar vakna klukkan 0600 - engin miskunn í Bjargarbóli hehe.

Týndi leðurhönskunum mínum í skólanum í dag… ohhh er svo fúl - arg. Fór og keypti mér gloss í staðinn - engin hlýja þar.

Búin að fara í próf og gekk vel, búin að taka viðtal við þroskaþjálfa - hún var svo yndisleg og vildi bara næstum því ráða mig í vinnu til sín =O) verst að vera ekki búin með námið og jú svo á ég heima aðeins of langt í burtu… þarf að gera verkefni úr því viðtali og skila á mánudaginn. Hitti líka hana Viktoríu mína í gær, röltum aðeins í Kringlunni og fengum okkur svo kaffi og kvöldmat - hrikalega næs dagur hjá mér og annasamur með meiru.

Kom frænku á óvart áðan, reyndi sko að kaupa handa henni sturtuhengi í janúar og gefa henni í afmælisgjöf…. en hún er svo hávaxin að tjaldið hennar er hátt uppi og það sem ég keypti var sem sagt fyrir stubba eins og mig hehe. Í dag álpaðist ég svo inn í Rúmfatalagerinn og sá þar fullt af sturtuhengjum og keypti eitt og baðmottu, kom svo heim, tók aðeins til á baðinu og setti upp nýja hengið og mottuna - sló í gegn, en ekki hvað =O)

Players verður þess aðnjótandi að fá okkur frænkurnar í heimsókn á föstudagskvöldið =O) ójá ætlum að skella okkur á austfirðingaball og tjútta hælana af skónum. Á móti sól verður að spila og þeir klikka ekki á stuðgírnum - með okkur á gólfinu getur auðvitað ekkert klikkað =O) Á heimleiðinni er svo stefnan að fara á annað ball… OMG hvernig verð ég á sunnudaginn þegar ég kemst heim - alsæl auðvitað og dauðþreytt. Þangað til er ég að læra og sitja á skólabekk…

Lilja skipulagða fram úr ermum… knús ***

March 3, 2007

líta, leit, litum, litið

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 7:32 pm

Stelpan bara búin að læra slatta í dag, ekki eins mikið og ég ætlaði mér… en það kom til af góðu. Það eru nefnilega ekki allar Gróur á leiti eins, þessi Gróa leit nefnilega á mig og sagði mér hvernig sóðabrókar dæmið atvikaðist. Fékk sem sagt kærkomna heimsókn og málin voru rædd og leiðrétt =O) takk fyrir heimsóknina, alltaf velkomin í (kjafta)snakk og vatn =O) Gaman að fólki sem er með bein í nefinu og stendur á sínu.

Ég veit svo sem alveg hvaðan sagan er komin og hvernig sögur breytast og hef aldrei og nenni ekki að byrja á því í dag að erfa eitt eða neitt við fólk. Lífið er bara of stutt og skemmtilegt til að vera í fýlu… en svona getur fokið í mann þegar sögur eru búnar til út af nánast engu - ég er ekki sú eina og þetta er alltaf jafn hvimleitt. Svo er eitt alveg magnað, að stelpur geti ekki átt stráka sem vini, jæja ekki veit ég um aðra en ég á nokkra og er nokkuð viss um að í brók þeirra er dinglumdangl, eða þeir ganga allavega ekki í bjóstahaldara, annað get ég svo sem ekki staðfest með 100% vissu hehe.

Er að elda og læra, ætla svo að vinna aðeins á barnum í kveld… voðalega stutt og mig er strax farið að hlakka til að fara í bólið… ætla svo að vera dugleg á morgun og læra meira. Kláraði reyndar námsþátt nr. 4 í Námsumhverfi og netkennsla, geggjað skemmtilegt fag - var ég búin að minnast á það?? =) Þarf að setja link hérna inn á hljóðdæmin sem ég er búin að gera - þegar það er orðið 100% þá geri ég það, er nefnilega svo smámunasöm.

Af gefnu tilefni langar mig að árétta það að mín kæra Erla Berglind sem tjáir sig stundum á síðunni minni er Sigurðardóttir og býr á Hvolsvelli =O)

Knús frá mér til ykkar ***