April 28, 2007

Gula fíflið

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 5:48 pm

Ohhh hvað er gula fíflið að gera á glugganum mínum núna, þegar ég á að vera að læra en ekki úti að rúnta með einhverja gellustæla hehe.

Fór og fékk mér einn irish hjá Gunnu í gær, svaðalegt sælgæti sem hann var og ekki var Morgan kapteinn síðri. Rosaskemmtilegt kvöld og alveg nauðsynlegt að slaka aðeins á og láta eins og hálfviti í miðjum próflestri - segi það og skrifa. Hefði mátt fara að sofa aðeins fyrr - það er alltaf sama sagan, stuðboltinn getur bara ekki komið sér í koju - það er svo gaman að vera til =O) bara gaman og gott…

Í dag er ár síðan ég fékk lánaðan jeppann hans pabba og krúsaði á honum til Reykjavíkur =O) þetta var erfið og skrítin ferð. Fór til höfuðbeina og spjaldhryggja karls og hef sjaldan verið eins aum í skrokknum og höfðinu eins og þá, hélt ég væri að deyja í nokkrar vikur. Keyrði svo heim á sunnudeginum, beint í fermingu og eftir hana rakaði ég af mér hárið =) ekki viss um að ég geri það 30. apríl í ár - er að verða of gömul gella í svona rugl… svei mér þá. Friðrik Björn kom svo í heiminn stuttu síðar.

Ef dagurinn í dag er ekki fullkominn til að krúsa um á mótorhjóli þá veit ég ekki hvað… en þarf að bíða til 15 maí - enda hjólið ekki komið til landsins þannig að það er ekkert annað í boði - flottasta afmælisgjöf sem ég hef gefið sjálfri mér - það er alveg á hreinu =O)

Jæja bezt að byrja að læra, klukkan að verða 1800 og dagurinn búinn að fara í kúr og rúnt… þvílíkur letidagur - ummmm bara næs.

Knús á línuna ***

April 25, 2007

Vaxtarlínur…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 8:16 am

Öll erum við ólík, bæði í skapi, útliti, atferli…. svo eitthvað sé nefnt.

Ég sagði við Maron í morgun… hvað er þetta drengur hanga buxurnar ekki upp um þig?? Neibb, ég er svo grannur sagði Maron.

Þá segir litla dýrið hann Ægir, ég er ekki grannur. Nei sagi ég, en þú ert bara venjulegur, ekki grannur ekki feitur.

 spurning að vigta sig

Maron snillingur: Sko mamma, ég er easy, Ægir er medium, og pabbi er hard…
Og hvað er ég þá!! spryr mamman auðvitað… þú ert á milli medium og hard… en farin að nálgast hard!!  WELL verð líklega að kaupa mér vigt og nota hana og læsa ísskápnum. Hef ekki stigið á vigt síðan í september… Maron kom reyndar með eitt ráð sem ónefndur hard notar að hans sögn, hydroxicut pillur =O) vá verð svo geðvond af þeim, nei takk má ekki við því hehe. Já er ekki yndislegt að eiga svona hreinskilin börn =O) eða grátlegt hehe.

Fyrsta prófið 3 maí, skil á ritgerð 4 maí, skil á netskóla 30. apríl… það er nóg að gera og það er svo erfitt þegar helv… gula fíflið hangið á glugganum hjá mér og grettir sig, áts.

Knús ***

April 3, 2007

Farin

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:39 pm

í sleðaferð að Grímsvötnum… veðrið hér er geggjað og sólarlagið við jökulröndina var engu líkt í gærkvöldi… svíkur örugglega ekki í kvöld =O)

Grímsvötn
                                                  .:: Grímsvötn ::.

Knús og kram, litla lipurtáin ***

April 2, 2007

Það er ekki furða

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 9:32 am

Hélt fyrst að þetta væri aprílgabb!!
ÓFRIÐUR Í BORG ÓTTANS
En nei, loksins þegar börnin fara út að leika sér á Höfuðborgarsvæðinu þá kvartar fólk… er ekki í lagi í hausnum á þessu liði… hér eru gól og læti sem byrja snemma á morgnana og standa lengi fram eftir kvöldi, persónulega finnst mér yndislegt að heyra í ungunum ÚTI að leika sér, það eru nefnilega að verða fátíðar fregnir og verðr fátíðari með hverju árinu sem líður.

Lilja í látum hehe ***