May 31, 2007
May 28, 2007
Nú af því að ég var búin að vera lazarus frá mánudegi til fimmtudags ákvað ég að slaufa því að fara í Úlfinn að smíða þessa helgina. Var bara ekki búin að jafna mig á þessum helv… kokkum og þá er betra heima setið ef ekki er hægt að vinna eins og manneskja.
Ég var búin að undirbúa mig andlega og líkamlega undir rólegheita helgi og nánast að mér myndi hundleiðast… guttarnir hjá Sigga og bara allir út og suður og í fermingum og fjölskylduboðum hægri vinstri. Jú jú svo er nú hjólið ekki enn komið þannig að ekki gat ég nýtt tímann í að krúsa um tóman bæinn - eða þannig
Helgin varð svo bara hin annasamasta, hrikalega næs og skemmtileg.
Strákarnir mínir byrjuðu á því að bjóða pabba sínum út að borða á föstudagskvöldið í tilefni afmælis (8. apríl) og útskriftar frá Bifröst (9. júní n.k.) ég fylgdi auðvitað með sem fjármálastjóri þeirra
þeir gáfu svo pabba sínum armbandsúr með áletrun á bakinu, dagsetningu og nöfnum þeirra. Siggi auðvitað alsæll enda úramaður mikill
Á laugardaginn var svo blásið til veislu í Túni nr. 21. Bylgja og Andri giftu sig “surprise” 19. maí síðast liðinn í stúdenta veislu Andra - skemmtilegt að gera svona grín
Þau buðu svo vinum og ættingjum á Höfn í svaðalega átveislu, humarforréttur, læri með meðlæti, kökur og kruðerí eins og fólk gat ofaní sig látið, auðvitað var humlum, rauðu og hvítu hellt á alla kúta sem það vildu. Liljan fór nú bara snemma heim, en stemmarinn var svaðalegur þegar ég yfirgaf svæðið, ég heyrði svo í heita pottinum í dag að menn hefðu rúllað út með morgunmatnum á sunnudaginn… allir húsráðendur LÖNGU farnir að sofa hehe.
Slaugan mín og Helgi voru svo að gefa tvíbökunum sínum nöfn á sunnudaginn, athöfnin í Hoffellskirkju og veislan á Bogaslóðinni. Þau fengu ofsalega falleg nöfn bæði tvö, Olga Júlía og Óskar Þór - til hamingju með daginn öll fimm.
Auðvitað var tekið til matar síns eftir þennan viðburð, ekki annað hægt, enn sat ég og mokaði í mig kræsingum…
Helgin var bara frábær í faðmi vina og ættingja
takk allir fyrir frábæra skemmtun.
Helgin einkenndist reyndar af miklu át-taki… úff.
Ég og Ægir fórum svo í sund í dag, aðeins að vinna í “taninu” ekki verið gert mikið af því þetta sumarið, en nú skal tekið á því
Var svo stálheppin að geta sníkt mér kvöldverð í heita pottinum, ég mætti með humar og pylsur á Brautina og þar var enn ein veislan…
Grilluðum skriðdýrin og svínasperlana, ummm bara sæla.
ÞETTA HRYGGIR MIG - enda 3 ungmenni héðan!!
Ætlaði að pára eitthvað meira á þennan dag en held ég láti það vera að sinni…
Knús til ykkar frá mér, má fara í skrúfusleik og alles
eins og Óli orðar það svo skemmtilega, orðin heil heilsu og ekki smitberi lengur hehe ***
May 8, 2007
Síðasta prófið í fyrramálið - vá hvað ég hlakka til að geta sett síðasta fagið upp í skáp - þvílíkar bækur og pappírsflóð sem fylgir þessu öllu saman… var í 5 fögum fyrir áramót og 4 núna… þannig að það lítur allt út fyrir það að ég lifi af eitt ár í háskóla
gaman að segja frá því. Usssuss hætt við spennufalli og ekkert SMS - darn
Ég og Ægir ætlum að gera eitthvað crazy á morgun í tilefni prófloka =O) ég er með ákveðna hugmynd, hef svo sem gert eitthvað crazy áður og mun pottþétt gera það aftur - bara gaman.
Hjólið mitt á að koma til landsins í dag - þá er bara að vona að Tóti tollvörður hugsi fallega til mín og Nítró og verði snöggur að koma því úr tolli… planið er að bruna í Zorann á sunnudaginn með ungana, galla mig og sækja hjólið á þriðjudag og bruna heim með gripinn á kerru… eins gott að planið standist, get ekki beðið öllu lengur hehe.
Helgin verður líka annasöm, eins og sú síðasta - skil ekki hvaðan ég fæ þessa orku - hraust stelpan =O) tók 15 tíma djamm á föstudeginum með Kollu gæs og fylgifiskum sem var bara frábærlega gaman. Ég og Anna fórum svo heim að spjalla þegar herzingin fór upp í lón - bara ljúft. Þegar hún fór lenti ég á MSN að kjafta, þvínæst á Víkina og endaði að lokum á Hótelinu þar sem ég hélt að væri þrusuball, enda voru tæplega 100 manns í mat þar fyrr um kvöldið… uuuu nibbs, kannski 8 að dansa og 8 að drekka… Dansaði nú samt alveg heil 3 lög svei mér þá - enda þykir mér gaman að dansa
Skil bara ekkert í því hvernig Hótelinu tekst alltaf að losa sig við gestina sína fljótt og örugglega eftir uppákomur. Við erum heppnar ég og Gunnz ef við getum læst klukkan 0400 !! Þó ekkert sé um að vera…??
Svaf nánast ekkert aðfaranótt laugardags en mætti þó galvösk í vinnu hjá Grelli í 6 tíma, ég og Gunnz vorum að þjóna í fermingarveislu - OMG hvað ég var þreytt þegar ég kom heim klukkan 2200 - fór í sjóðandi heitt bað og lá berstrípuð í bólinu þegar Gunna lokkaði mig út í 1 irish - bara ljúft og ég svaf eins og ungabarn á eftir ;) fór ekki í fæðingargallanum út samt sko hehe - bleiku lopasokkarnir fengu að fara út samt - SEXY
Verð á Víkinni alla næstu helgi - ball á föstudaginn, svo er Eurovision og kosningar á laugardaginn… alltaf nóg að gera, segi það og skrifa. Eins gott líka, sjóðurinn minn fyrir galla og hjálmi vex hratt og örugglega á meðan ég fæ vinnu… fékk líka afmælisgjöf frá Maroni, Ægi og Sigga á laugardaginn - pening fyrir hjálmi - ekkert smá sætir, takk ***
Á nú ekki afmæli alveg strax samt… nokkrir dagar til góða hehe….
Jæja, mér er ekki til zetunnar boðið - bezt að taka lokasprettinn í lestri fyrir Andlegan- og líkamlegan þroska barna og unglinga… búin með 50% af því fagi, ritgerð upp á 9,5 með Erlu minni - ekki eins viss að fá svo góða einkunn í seinni hlutanum, þarf líka að gera það alein =O)
Knús til þín frá mér og haltu nú áfram að vera fallegur og góður ***
May 5, 2007
magnaður dagur frá A til Ö… takk fyrir skemmtunina Kolla mín, þú ert frábær gæs 
Lofaði mynd hér áður en gæsin myndi sofna… hún er reyndar í lóninu, ég ekki, en hundur má ég heita ef hún er sofnuð hehe… VOFF

Sexy gæs - ójá massagella =O)
massagellan á líka afmæli í dag - til hamingju með það skvís…
Knús til allra ***
Lilja the Nörd hehe.
May 2, 2007
Úff ég meina það er alveg að tapa glórunni… það er svo margt að gerjast í hausnum á mér að mig fer að vanta flakkara til að tæma… =O) sá einn fínan auglýstan í Odda - 250GB á 12.900,-
Próf á morgun í líffæra- og lífeðlisfræði, þvílíkt efni sem ég er búin að lesa og þvílíkt magn sem lekur út aftur - vá hvernig er þetta hægt… vona það bezta.
Ég og félagi minn hún Elín skiluðum af okkur stærðfærði námskeiði í netskólanum þann 30. apríl, (aukafagið mitt) ohhh það var svo gaman en reyndi sko á þolinmæðina - ekki alveg nógu skemmtilegt umhverfi að vinna í… nibbs. Hér er slóðin ef ykkur langar að skoða =O) veljið svo Við lærum eða Við reiknum til vinstri eða aðgerðir til hægri. Ég sá um grafíkvinnslu, setja þetta allt upp, hanna myndir og að linka þetta allt saman, Elín the teacher sá um dæmin - eins gott, ég hefði ekki getað gert eitt dæmi hehe - enginn kennari í mér. Er svaka sátt við útkomuna, stílhreint og nokkuð einfalt í notkun held ég, enda fyrir 5. - 7. bekk
Jæja er ekki bezt að koma sér heim að lesa, hef ekki alveg verið með hugann við vinnuna í dag né á mánudaginn, vona að Jói fyrirgefi mér það, verð vonandi komin í bókhaldsform á mánudaginn… hugsa bara um gluteus maximus og glans penis þessa dagana hehe - smá grín…
Búin að senda tvær afmæliskveðjur í dag - styttist í mig og Reykjavíkurför…
Ég er nú alveg svakaleg, mig langar mig SVOOOO að raka af mér hárið… er alveg að deyja sko…
Jæja, þessi sem getur ekki setið kyrr þessa dagana - einn plús gula fíflið sést ekki í dag =O) alltaf að græða - kveður að sinni, knús ***