Loksins, loksins, loksins… usss gærdeginum reddað með sérlega ánægjulegu símtali frá Tóta Bigga: ” Hér er kominn stórglæsilegur fákur…”

Ég hef ekki keyrt mótorhjól síðan ég tók prófið hérna um árið… hef nú fengið nokkur tækifæri en þau hjól hafa bara verið svo svaðalega stór og mikil… það er ekkert leiðinlegra en að skemma það sem aðrir eiga þannig að ég hef afþakkað. En það var eins og ég hefði ekki gert annað en að keyra mótorhjól þegar ég setti í gír og krúsaði af stað… þetta gleymist greinilega ekki svo glatt ![]()
Ægir var kominn út á hlað með það sama og kominn aftaná hjá mömmslunni sinni
hann er alveg eins og mamma sín, svei mér þá… ég þurfti aftur á móti að múta Maroni til að koma rúnt með mér, usssuussss.
Ég mátti ekki vera að því að græja mig í gallann þegar ég sótti hjólið
af gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég keypti mér ekki leðurgalla
ég var bara alls ekki að finna mig í þessu leður dóti, þrátt fyrir ansi hreinskilin og næs komment hjá sölumanninum hehe, enda sölumaður
keypti mér góðan og svaðalega hlýjan galla, ekki veitir mér af, kuldaskræfunni sjálfri. En svona til að bæta upp leðurleysið þá er ég í bikasvötum leður nærfötum innan undir gallanum, það er fátt sem toppar það skal ég segja ykkur hehe
Annasamasti dagur ever í gær þannig að það var ekki rúntað mikið, tókst nú samt að keyra eina 70 km
á milli útskrifta og vinnu hehe. Svo er bara skítaveður í dag, rigning og rok
Búið að fresta siglingu báta vegna veðurs, 5 metra ölduhæð í ósnum, það verður örugglega ekki mikill stemmari yfir kappróðri og kappleikjum ýmiss konar á bryggjunni. Vonandi verður samt snjósleða atriðið, ætla ekki að missa af því. Það var bara geggjað hér um árið þegar Gunnar Pálmi reyndi að fara yfir höfnina á torfæru bílnum sínum og drekkti honum, en veðrið bíður svo sem ekki upp á nein ævintýri… því miður.
Jæja best að koma sér í brúsabað og bjóða svo guttunum í smá nammirúnt og kíkja svo á bryggjuna. Stefnan er svo tekin á ball í kvöld, hlakka ekkert smá til að dansa… það er bara gaman. Krúsað knús til þín frá mér ***