July 24, 2007

upp eða niður…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:08 pm

… betra upp en niður. Usss mig dreymdi alveg svaðalegan draum í nótt… nei í morgun - letimorguninn ógurlegi var í dag. Get eiginlega ekki sagt frá honum hann var svo crazy - ekki draumböllur þó en hann sýndi á sér tólin og sprautu til að ná honum upp - jeje say no more… aumingja maðurinn í bakaríinu í gær sem átti andlitið á manninum sem mig dreymdi hehe. Þá kýs ég nú almennilegan draumböll heldur  ;)

Núna langar mig að selja hjólið mitt og kaupa annað (ef þið viljið kaupa eða vitið um einhverja gellu sem langar að byrja á geggt þægilegu hjóli þá látið mig vita) Er alveg út og suður hvað ég eigi að gera. Bezt væri að selja það næsta vor… en langar ýkt mikið að selja núna og kaupa eitt 500cc sem hann Garðar asnaðist til að segja mér frá hehe… nei bara grín en kannski er þetta selja/kaupa syndrome smitandi :)   það er Kawasaki Vulcan (en ekki hvað) árg. 2000. Alveg eins og þetta =O)  En ætli ég verði ekki bara að taka róandi og reyna að halda stillingu minni, á samt mjög erfitt með það hehe. Langar svo í örlítið fleiri hesta á milli fótanna  ;)

Jæja farin í kaffi vestur í bæ… er það ekki svo róandi  :P
Hrossabrestur á línuna ***

July 23, 2007

… on the road …

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:58 pm

Jæja ungarnir mínir farnir í útilegu með Vagnavinum - get lofað ykkur því að þeim á ekki eftir að leiðast… ónei  :)

Svo er ættarmót á Eskifirði næstu helgi, þá ætla ég að taka við guttunum og Valhöll og halda norður á bóginn, það verður heldur ekki leiðinlegt.

Magnað brúðkaup hjá Kollu og Inga um helgina, frábært hvernig hefðbundnum brúðkaupsleikjum hefur verið skipt út fyrir myndasýningar, kvikmyndir, söng, sprell og glenz - bara snilld. Ótrúleg vinna sem liggur að baki en held að hlátur og ánægja allra sé þess virði þegar stykkið er spilað. Andri hennar Heiðbrár klippti til myndaband um gæsunina á Kollu - Uppskrift að steiktri gæs  ;)   ég hélt á tímabili að ég myndi kafna úr hlátri… munaði ekki miklu. Svo gerðu Valdi og Siggi handrit við snilldarmyndband sem VAldi gerði af Inga Stefáni Steinheila… það var ekki minna hlegið þá  :P  
Góð, löng, erfið, skemmtileg og frábær helgi að baki. Takk fyrir mig allir - geggt stuð :)

Farin að halda áfram að njóta frídagsins í dag… eða til 1800 þá bíður mín pizzuvinnsla.
Knús ***

July 18, 2007

Lespan og 6 gíra kaggi =O)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:21 am

Held svei mér þá að mig vanti vítamín… ég bara nenni ALLS ekki á fætur á morgnana, en ástæðan gæti reyndar verið sú að ég er farin að þrá að komast í sumarfrí frá pappírum  :o
Ætla að reyna að stefna að nokkrum dögum á næstunni, búin að koma á kvöldin og færa bókhaldið og vonandi getum við Jói frændi komið rest af reikningum út í dag  :) allt að gerast….

Þegar ég var 14 ára var mig búið að dreyma nokkuð lengi að eignast mótorfák, enda byrjuð að safna fyrir slíkum löngu áður. Þá var draumurinn að eignast Vespu en því miður þarf bílpróf á þær, ástæða: þær eru sjálfskiptar!! Úr varð að ég og mín kæra Slaugz keyptum okkur Suzuki TS50 - eðalgripir ef þið spyrjið mig. Mitt var nýtt úr kassanum og kostaði heilar 125.000 krónur - úff það fannst mér stór upphæð fyrir unglingavandamálið mig hehe. Það fór alltaf pínulítið í taugarnar á mér að gírkassinn á Súkkunni var 6 gíra, en búið að læsa honum þannig að kassinn var bara 5 gíra - hélt örugglega að ég kæmist á 120 km hraða ef ég hefði sjötta gírinn  ;)

Í gær fékk ég svo loksins að prófa Vespu, jepp hafði ekki prófað slíkt tryllitæki áður  :P   það reyndist hið mesta fjör og ég skellihló allan tímann, ég bara trúi því engan veginn að naðran mín í den hafi verið svona kraftlaus - það er bara ekki sjéns  ;)  
Annað sem ég fékk að prófa líka - nýjan Skoda Octavia, 4×4 dísel græja. Eðalbíll að keyra, en fyrstu 3 gírarnir rosalega lágir. Svaðalega var gaman að keyra hann inn í sveit - afhverju?? jú hann svínliggur og óhljóðin í díselvélinni hverfa nánast alveg og svo er gírkassinn 6 gíra  :D   Ég fékk bara kikk út úr því að setja í 6 gírinn, loksins eftir öll þessi ár fékk ég að setja í sexið hehe - fullnægjandi dagur í gær ussuussss  ;)

Lifi enn á sexunni í gær en það verður stutt gaman  ;)
Knús *** ***

July 16, 2007

Hvað er málið!!

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:10 pm

Þetta viðtal vakti mig til umhugsunar um lítið samtal sem ég átti um daginn við vin minn.
Viðtal við strákinn sem átti að hafa drepið hundinn Lúkas…

Af hverju þarf alltaf að vera að búa til sögur og kjaftæði um sama fólkið aftur og aftur, eins og t.d. í þessu litla bæjarfélagi okkar. Ef eitthvað gerist hérna, slagsmál, slys, vandræði, bull og vitleysa þá er alltaf sama fólkið bendlað við mismunandi flokka mannlífsins.

Sök sé þegar einhver er sekur og sú sekt hefur verið sönnuð. Þá ætti væntanlega ekki að þurfa að skálda neitt meira um það mál… en það er ekki nóg fyrir suma. Það vekur ótrúlega furðu mína að þegar/ef eitthvað gerist hér í bæ þá er ekki nóg að vitni segi hvað gerðist eða hvernig, ónei það eru alltaf einhverjir sem þurfa að búa til auka sögur um atburðinn og þá yfirleitt blanda einhverjum í málið sem komu ekki nálægt því.
Því segi ég HVAÐ ER MÁLIÐ!!

Alveg eins og með þennan blessaða hund og drenginn sem á að hafa drepið hann… ágæt samlíking. Á bakvið hverja ásökun stendur yfirleitt manneskja sem veit hvort hún er sek eða blásaklaus, þetta er svo mannskemmandi og ljótt - það vildi ég að fólk hugsaði sig tvisvar um áður en það bendlar aðra við eða ásaka um eitthvað tiltekið mál… það vill nefnilega svo skemmtilega til að þeir sem eru ásakaðir hafa líka tilfinningar og líða vítiskvalir fyrir það að liggja undir grun um eitthvað sem þeir hafa ekki gert.

Þó að Siggi lögga hafi talað við mig hér um árið og beðið mig að hætta að spæna á 140 km hraða fram hjá Essó sjoppunni og ég hafi verið stoppuð af löggunni þegar ég var 18 ára á leið heim úr ræktinni á Ford Taunus-num mínum  ;)   þá hef ég ekki verið stoppuð af löggunni síðan… þegar einhver er tekinn hér innanbæjar fyrir of hraðan akstur þá er það ekki alltaf ég, já er það ekki furðulegt.

Hvað er fólk alltaf að velta sér upp úr annarra manna málum!?!? hefur það ekki nóg með skítinn í sínum eigin koppi… maður spyr sig. Merkilegt að fólk skuli geta smjattað á því ef sambúðarslit ganga vel fyrir sig og líka ef þau ganga illa fyrir sig - hvort skyldi þá vera meira spennandi þegar allt gengur fallega fyrir sig eða allt er í báli og brandi fyrir dómstólum? Já það væri gaman að vita hvað gefur mesta adrenalín kikkið hjá helv… kjaftasmettunum. Ég get ekki hugsað mér að búa á stórum og ópersónulegum stað en svei mér þá, stundum er mér orða vant - ekki núna greinilega hehe.

Ég er reyndar ekki að vitna sérstaklega í mig, bara svona almennt um afskiptasemi allra um allt og ekkert - mind your own fucking business. Hamingjan fæst ekki keypt fyrir baknag um aðra - heldur með því að vinna í eigin málum og hugsa um sig og sína. Þú verður ekkert hvítari með því að sverta aðra - ónei því fer fjarri - STOP.

Að allt öðru, pantaði mér síma í dag - minn er gjörsamlega að gefa upp öndina. Er hálftíma að pikka smá SMS… ussuusss það bara gengur ekki þegar ég á í hlut. Eitt vandamál, síminn minn er fullur af sætum SMS-um og MMS-um - jájá ég veit, ég er klikkuð en mér þykir bara mjög vænt um sum þeirra  :)   flest frá Bjöggu minni - hún er nefnilega jafn klikkuð og ég hehe.
Nýji síminn minn.

Þetta raus jaðrar við að vera heil ritgerð, en ég heyrði svolítið um helgina sem setti mig gjörsamlega hljóða - já eða tvennt reyndar. Svona skáldskapur um fólk gerir mig hrygga, skil ekki hvað gengur að fólki.
Bezt að koma sér í koju, svaf lítið í nótt og núna er næturgestur hjá okkur… geisp og gap, knús frá rausara dagsins til ykkar ***

July 12, 2007

Meðvituð ákvörðun

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:15 pm

Árið 1992 tók ég ásamt öðrum meðvitaða ákvörðun, ég og hinn ákváðum að leggja alla afbrýðissemi á hilluna og ekki taka hana upp aftur. Þetta er líklega ein sú bezta ákvörðun sem ég hef tekið um ævina. Held ég hafi ekki grenjað útaf afbrýðissemi síðan ég var 16 ára, OK kannski 17 ;)
Ástæða þess að afbrýðissemi er mér ofarlega í huga er sú að ég ákvað fyrir nokkrum vikum að taka aðra slíka ákvörðun og það meðvitaða - varðandi afbrýðissemi. Þannig er nefnilega að það örlaði stundum á smá afbrýðissemi hjá mér fyrstu mánuðina eftir að ég flutti “að heiman”. Jú, þegar strákarnir mínir eru ekki hjá mér þá á ég það til að finna til tómleika (eðlilega) og ég er ekki frá því að tilfinningin sem fylgdi hafi verið afbrýðissemi. Afbrýðissemi út í þá og hvað þeir væru að gera skemmtilegt :) já þetta er flókið og þess vegna ákvað ég fyrir nokkrum vikum að hætta þessum þankagangi. Tómleikinn er enn til staðar og verður alltaf, en á meðan gullmolarnir mínir eru hamingjusamir og kátir þá er engin ástæða til annars en að ég sé það líka - samgleðjist þeim 150% og rúmlega það :P

Þetta var ekki auðveld ákvörðun en yndisleg tilfinning þegar ákvörðunin var tekin og tekin í gildi. Mér líður svo miklu betur :) það er nefnilega svo að þeir eru svo skynsamir og vel innréttaðir að þeir láta sér líða vel þar sem þeir finna til öryggis og kærleika - betur heppnaðri börn er vart að finna á Íslandi í dag ;) þó víðar væri leitað hehe.

Smá heilræði um afbrýðissemi:
Það er ekki ástin heldur afbrýðissemin
sem vill fyrir hvern mun vita allt.
Frithiof Brandt

Knús til ykkar og takið meðvitaðar ákvarðanir
varðandi afbrýðissemi - ég tala af reynslunni ***
Afbrýðissemi er ímyndunarveiki - punktur

(er búin að setja inn spam á kommentin - blocka á ljót orð og kynlífstengd á ensku,
auðvitað þurfti ég þá að samþykkja Sollu og Erlu komment, en ekki hvað
hehe…. alltaf með eitthvað dónatal, þannig að ef ykkar komment birtist ekki
strax þá bíður það bara eftir því að ég samþykki það :) nenni ekki að henda
út 150 kommentum á dag frá einhverju skítapakki útí í heimi)