August 30, 2007
Úff maður er bara alltaf eins og útspýtt hundskinn þegar maður er staddur í borg óttans… ekki eins dösuð og í fyrstu staðlotunni samt - það var svaðalegt. Þegar sú stutta tekur upp á því að lognast út í sófanum hjá BF án þess að það sé kominn háttatími…. well þá er hún dösuð. Hef nú ekki lagt það í vana minn að sofna þar sem og þegar ég á ekki að sofna
Það er verið að plana smá hitting og djamm á föstudaginn, við þessar þroskuðu…
það verður BARA gaman. Svo er ball í sveitinni á laugardaginn, ekki enn búin að ákveða hvort ég fer í sæluna eða verð fram á sunnudag… kemur bara í ljós, fyrst ungarnir verða í smíðavinnu hjá afa sínum á austurlandinu um helgina
snilld að eiga svona yndislega að, geta bara látið sig hverfa á Zorann í heila viku án þess að hafa neinar áhyggjur - sweeeet.
Jæja skólinn bíður, best að koma sér á setubekkinn og sperra eyrun, geðraskanir til umræðu í dag
Óttalegt knús frá mér til þín ***
August 25, 2007
jeppseríjepps stelpan lá í bólinu til 1500… varð aðeins of yfirstrikuð í gær og saup seiðið af þvi í dag…. ái. En ansi hreint var gaman
dansað og drukkið vel og mikið hehe. Takk fyrir skemmtunina elsku Bára
Flutti með allt mitt hafurtask í dag - eða með restina af dótinu mínu. Gunnar og Guðbjörg voru svo yndisleg við mig að flytja út svo ég gæti komið mér fyrir áður en ég sest á skólabekk…
Sem sagt flutt og orðið kósý hjá stelpunni
ahhh næs tilfinning að vera loks búin að þessu, var að tapa geðheilsunni ofaní einn kassann á tímabili

Kósý hjá strákunum í nýja sófanum
Takk fyrir hjálpina pabbi, mamma, Einir, Gunna, Guðbjörg, Siggi og Pési pælari, ómetanlegt
Knús á línuna frá þeirri dauðþreyttu og þunnu hehe ***
Svo er að krúsa til Reykjavíkur á morgun… æji er alls ekki að nenna því…
August 21, 2007
Þessi dagur á alltaf eftir að eiga sérstakan stað í hjarta mér, því verður ekki breytt þrátt fyrir allt og allt. Enda minningarnar góðar og fallegar.
Bjögga frænka að byrja í skóla í dag, lítil og sæt með skólatösku á bakinu
hefði nú viljað sjá það en verð að bíða í nokkra daga með það, ekki mikil breyting á henni á 5 dögum þessi árin hehe. Gangi þér vel dúllus.
Ánægð með að Schumacher skuli ekki vera alveg horfinn af sjónarsviðinu
Ég hef nefnilega gaman að þessum snillingi. Ekki skemmir nú fyrir að Ægir minn fæddist 8. október 2000, sama dag og okkar maður varð heimsmeistari. Baldur læknir og Siggi tuðuðu heil ósköp yfir því að ég væri að eyðileggja fyrir þeim daginn, þeir væru að missa af formúlunni hehe. Ægir kom nú í heiminn 12 mín. eftir að ég kom upp á heilsugæslu og Baldur rétt náði að sjá hann skjótast út, skoðaði hann og fór aftur heim - ekki mikil truflun það

Hér er hann Ægir minn á Schumacher bíl
Svo var litla dýrinu gefið nafn, til þess var valinn dagurinn 5. nóvember og þann dag var allraheilagra messa. Úff þetta ætlaði engan endi að taka… x-löng messa. En það sem reddaði þessari löngu messu var Maron, þá tæplega þriggja ára, hann hvíslaði: Presturinn er í Schumacher galla
það var svo fyndið. Jú prelli var skrautbúinn og í eldrauðri hempu sem Maroni fannst eitthvað líkja til Schumacher - bara snilld 
Jepp, Schumacher er okkar maður - enginn vafi á því.
2 dagar í guttana
3 dagar í flutning
4 dagar í Zorann
5 dagar í skólann
Búin að fá 2 heimboð í gistingu, hvar væri maður ef maður ætti ekki alla sína yndislegu vini… ætla ekki einu sinni að reyna að ímynda mér það. Bara hlýja og væntumþykja í allar áttir - fram og til baka að sjálfsögðu
Er meir þessa dagana - hollt að vera passlega mjúkur - andlega sem líkamlega
ég andlega núna og stefni hraðbyri á það likamlega hehe. Er gjörsamlega að nauðga einu lagi þessar vikurnar - úff ég er svaðaleg þegar tónlist er annars vegar… hlustaði á sama lagið einu sinni næstum því alla leiðina frá Höfn í Zorann. Eins gott að guttarnir voru með sína tónlist á eyrunum
Maron með Metallica, Slipknot og Bullet for my Valentine - Ægir með AC/DC, Back in black jú og Mugison að mig minnir - góðir guttar sem ég á… púff, hversu heitt er hægt að elska sín eigin afkvæmi!!
Nóg að gera sem fyrr, krúsað knús á línuna frá mér ***
August 20, 2007
August 18, 2007
August 16, 2007
Auðvitað er Bjögga frænka klár á djamm á laugardaginn þrátt fyrir að vera nýkomin heim úr sólarreisu
við klikkum sjaldan frænkurnar á stuðinu hehe. Ennnn (jeje) ég held ég ætli að klikka á því um helgina, langar samt alveg svaðalega mikið að fara á Gaukinn á laugardaginn og rokka feitt með Á móti sól… hef nokkrar afsakanir fyrir að fara ekki meira að segja
Ætla að vinna fyrir Gunnz á föstudaginn…
Ætla að pakka niður úr eldhússkápunum um helgina…
Er að fara til Reykjavíkur í skólann eftir rúma viku…
þannig að ég er busy girl eins og alltaf.
Annað sem er að stoppa mig líka… ÞESSI TILKYNNING
Ég er nú ekki vön að láta ofbeldisfréttir stoppa mig þegar mig langar að gera mér glaðan dag… (engin ofbeldisfrétt hérna samt) en svei mér þá held ég verði bara heima þessa helgi, í sveitasælunni
ég er nefnilega kærulaus sveitapía þegar á allt er litið… kann bara ekki að vera vör um mig og ALLS ekki þegar ég er orðin stútFULL af bragðgóðum humlum hehe.
1. í flutningum var í gær, ég jaskaði pabba út… gamla manninum. Við fórum með dágóðan slatta, nú er eldhúsið eftir, þvottahúsið, fataskápurinn minn og jú stóru hlutirnir - þar vantar mig eins og tvö vöðvabúnt - jepp ég er eymingi og hef aldrei haldið öðru fram
Hér skín gula fíflið sem aldrei fyrr og mig langar bara alls ekkert að vera í vinnunni… gott krús á hjólinu væri meira svona fyrir mig núna… leiðist það bara alls ekki 
Jæja snúllurnar mínar, knús á línuna og njótið síðustu sumardaganna í botn ***
August 10, 2007
Mig langar að vera á allt öðrum stað um helgina en á póstsvæði 780
svona meira í líkingu við 620
Pabba vantar reyndar líka rafvirkja þannig að 701 væri líka góður kostur… en ég á pizzuvaktina þessa helgina og jafnvel barvakt líka - fer nú ekki að skrópa í vinnu… stelpan getur alltaf notað smá aur…
Tæmdi tvö herbergi í gær, ætla að vera dugleg og reyna að tæma mitt í dag og búa í rúminu hans Marons þangað til ég flyt. Enn og aftur er ég að flytja þegar skólinn er að byrja… ekki mitt val ef ég hefði fengið einhverju ráðið!! Ég kann alls ekki að pakka… ónei, þau skipti sem ég hef flutt hef ég hent öllu í bala og kassa og keyrt því á milli, ekki þurft að pakka öllu vel og vandlega. Hent því svo upp í skápa og sótt næsta skammt - en verð víst að vand mig betur í þetta skipti.
Ungarnir mínir lentu í fyrrakvöld á Tenerife og eru alsælir með sólina og sandinn
voru á ströndinni í gær og allt leit glæsilega út að sögn Sigga. Hér er bara þungbúið og kalt
fínt veður til að vera inni og pakka, verð að líta á það þannig - langar allavega ekki að rúnta á mótorfáknum á meðan allt er blautt eða rignir.
Var pínu uggandi yfir því að vera ekki nálægt þeim Maroni og Ægi í sumarfríinu þeirra, jú ég er ungamamma og það breytist víst seint. Hef reyndar alltaf treyst öllum til að vera með þá sem treysta sér til þess, ennnn þetta er eitthvað svo langt í burtu. Það sem breytti áhyggjum mínum var yndislegt SMS frá Buggu og Óla: Erum að leggja af stað til Kef. Skulum passa ungana þína vel. Kv. Bugga og Óli
mér hlýnaði við þessi skilaboð og allar áhyggjur flugu út um gluggann - ég vissi það svo sem fyrir að þeir væru í öruggum höndum
Jæja bezt að næra sig, búa sig í skápatiltekt, bakstur og bjórsölu.
Helgarknús til þín ***
August 8, 2007
Úff hvað það var erfitt að knúsa stubbana mína bless á mánudaginn - sé þá ekki næstu 15 dagana eða svo. Eru að fara í sólina á Tenerife í 2 vikur. Byrjuðu á því að versla sér skó fyrir 20 þúsund - miklir töffarar á ferð greinilega - hvaðan skyldu þeir fá það hehe.
Mikið fegin að landsmótshelgin er á enda. Það er ótrúlegt hvað maður er lengi að jafna sig eftir svona helgar, snúa sólarhringnum við og sofa misvel þegar maður hendir sér í koju, enda var mikið stuð við húsið hjá mér og ekki mikill svefnfriður á daginn!!
Var reyndar í fríi á sunnudeginum til að vera með ungunum, við Ægir fórum á Mótocross keppnina, usss hvað það var gaman og spennandi að sjá þessa krakka keppa. Þau voru bara flott. Ein stelpa í toppbaráttunni datt reyndar á síðasta hring í fyrri umferð. Ég var að tala við Jóa frænda (hann á sjúkrabílnum, en ekki hvað) þegar hún datt og sjúkrabíllinn lagður af stað til hennar áður en brautarverðir gátu blikkað auga
sniðug tilviljun, ég í áberandi jakka á lit og benti honum hvert hann ætti að fara, þeir sáu hana ekki á sjúkrabílnum. Það fór reyndar allt vel og hún keppti í næstu lotu.
Skellti mér svo á ball á sunnudagskvöldið - var að rúnta á Boggu hjóli til eitt og mætt á ball 01:40. Búin að drekka nokkra sopa af bjór og við Bára beint út á gólf að tjútta, dí hvað það var gaman á þessu balli, bara dansað út í eitt. Svitabandið alveg að gera sig
arkaði svo beint heim eftir ball…. næs kvöld
Glyz strákarnir voru reyndar ekki síðri á föstudagskvöldinu, en var að vinna á Því balli og lítið um dillerí það kvöldið. Maron og Ægir voru mjög sáttir við Glyz, þeir eru rokkaðri en Svitabandið og tóku nokkur góð lög í tjaldinu á fös.kvöldið - þeir skemmtu sér konunglega þar.
Farin að pakka og reyna að gera eitthvað af viti, ekki verið mikið gert af því síðustu daga…
Knús á línuna ***
August 2, 2007
Já það er ekki að spyrja að gestrisninni hjá henni Þórunni frænku og hennar manni Gunnari. Ja hérna hér, forréttur, aðalréttur og eftirréttur ásamt beljum á beit um allt með ýmist rauðum eða hvítum vökva í spenanum
smakkaði meira að segja súrt hvalspik sem Dalli kom með, jæks það var nú meiri vibbinn… ætla ekki að gera það aftur
Dagarnir á austurlandi voru frábærir, sofið mikið, hlegið mikið, borðað mikið, drukkið lítið hehe jamm alveg satt, endaði svo Eskifjarðarreisuna á heimsókn til Elsu frænku í nýja húsið, svaðalega flott og þar enduðum við í mat og sundi
en ekki hvað.
Takk fyrir frábæra samveru í Firðinum fagra
Gistum svo 2 nætur í Greninu í Úlfsstaðaskógi, það var bara næs og ég að rafvirkjast eitthvað, reyna að gera eitthvað gagn. Dró í nokkrar dósir og tengdi nokkra tengla og rofa
er með þetta í genunum. Keyrði svo heim á þriðjudeginum í frekar brjáluðu veðri…. með vagninn hans Jóa í eftirdragi - takk fyrir lánið elskurnar ***
Er með Kawasaki Vulcan 500cc í láni hjá Boggu og það er bara gaman, úff hvað það er geggjað að vera með svona marga hesta milli fótanna - gerist vart betra
hún er að æfa sig fyrir próf og fá smá tilfinningu fyrir hjólunum með því að æfa sig á mínum kettling - jamm það er algjör kettlingur þegar ég er búin að rúnta á Vulcan 800cc sem Gunni á og 500cc sem Bogga á - mjá ansi hrædd um það.
Geðveikin að taka við sem verður alla helgina, enda landsmót unglinga hér um helgina. Fer að baka flatbökur klukkan 1600 í dag og verð að fram á kvöld… svo er bara vinna alla helgina en frí á sunnudag. Ætla að horfa á motorcross keppnina með guttunum mínum og svo er bara að pakka þeim ofaní tösku og knúsa þá vel og innilega - farnir í frí í 2 vikur - hálf vængbrotin mammslan sem situr eftir
það er vont en það venst. Þeir eiga eftir að skemmta sér konunglega… hvernig er annað hægt með frábærum félagsskap og góða skapið í för - ásamt sól, sælu og sjó
Gaman að því að tvær bekkjarsystur mínar eiga von á 3 ungum
bara æðislegt.
Jæja farin að kíkja á Brautina, rúnta aðeins og svo bíða bökurnar….
Knús til þín frá mér ***