September 28, 2007

Suddalegt…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:25 pm

… úti en logn og blíða…

Þjáist af Craft syndrome og PMS… þar af leiðandi svaðalega pirruð, langt síðan það hefur gerst, bara helltist yfir mig áðan eins og hellt úr fötu - isss það lagast fljótt.

Ég hef kjark og þor til að breyta eins og kemur sér bezt fyrir mig og guttana mína.
Afhverju þarf fólk að vera að skíta í koppinn minn…
Var búin að setja hér inn góðan pistil um persónu sem hefur gaman að því að drulla annarra manna koppa út, en nenni ekki að pirra mig á svona smámunum.
Ég er bara svona öfundsverð og afskaplega montin af því ;)
Hvað tunga meiðir er torvelt að lækna. Hávamál.

Komið endilega í Irish til mín um helgina, á reyndar ekki Jameson :( #%&?&”# en sá að karlinn var búinn að versla Rebel Yell og Jack Daniels (eðalromm hehe) þannig að eitthvað verður hægt að malla saman við kaffið, púðursykurinn, rjómann og súkkulaðið á toppinn :D öss gerist vart betra, jú Írskur vanilluís, en hann er bara for U my special friend… jújú og eitt toppar þetta allt en hver veit ekki hvað það er :P

Knús elskurnar og verið falleg og góð eins og alltaf ***

September 26, 2007

…used to be Tab

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:15 pm

Í janúar á þessu ári átti ég svaðalega erfitt með að koma mér í lærdómsgírinn… en það hafðist á endanum. Fylgifiskur áhugans hét Tab og sælgæti :O
Í byrjun mars ofbauð mér kókþambið og sælgætisátið og hætti hvoru tveggja.
Sá fyrir mér að eftir 3 ár kæmist ég ekki út úr íbúðinni hehe.
Í dag eru þá tæplega 7 mánuðir síðan ég hætti að þamba Tab. Það fyndna við þessa ákvörðun mína er að nokkrum dögum eftir að ég ákvað að hætta að belgja mig út af þessum kóladrykk þá sendi Erla mér samúðarkveðjur á MSN. Linkurinn sem fylgdi með var frétt um að það ætti að hætta framleiðslu á Tab… þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var farin að drekka mikið af þessu glundri ;) HALLÓ þeir hættu að framleiða það út af mér :D Er samt ekki hætt að gúffa í mig sælgæti, ónei get það pottþétt aldrei er svoddan grís.

Var svo að taka til á skrifstofunni áðan og það er nokkuð augljóst hvað tók við af kóladrykknum used to be Tab :) svo er það orkan þegar ég er að keyra langkeyrslu, mig syfjar svo oft undir stýri.. en ekki sofnað enn sem betur fer.

Guttarnir mínir eru svo skemmtilegir þessa dagana, það eru skrípalæti 24/7. Hann Ægir stríðnispúki er non stop og Maron spilar með. Ægir getur reyndar verið algjör pirralingur þegar hann fer yfir strikið, sem er líklega í hvert skipti hehe.

Fór á hlaupabrautina í gær í nýju daðurskónum… nei hlaupaskónum, þeir virkðu bara fínt en get ekki sagt annað en að sukklífernið í Zoranum var ekki alveg að gera sig á hlaupabrautinni, ég komst þó 7 hringi á þrjóskunni einni saman. Held að mér sé ennþá illt í lungunum, djözz aumingjaskapur þetta er.

Maron sá skóna í morgun og spurði, hver á þessa skó? Strákurinn sem liggur undir rúmi hjá mér, sagð ég hehe… hann ein augu en var fljótur að fatta djókið ;) æji mamma hver á þá?? Nú auðvitað ég… en ekki hver!! Vá mamma ég passa í þá, hversu lítil ertu eiginlega!! máááá ég plís fara í þeim í skólann einhvern tímann? Til hvers spurði ég auðvitað. Til að monta mig, segja öllum að ég sé í skóm af móður minni :) móður minni hehe veit nú alveg hvaðan hann fær orðaforðann þessi elska. Sagði t.d. við Áslaugu um helgina, það er stúlka heima… Áslaug ætlaði ekki að verða eldri yfir þessu orði - stúlka ;) Orð eru bara svo skemmtileg, er búin að komast yfir nokkur ansi skemmtileg og snedig síðustu daga :P

Er að hlusta á Rás 1, það var hringt í mig og mér sagt að 3 þáttur af 4 væri að byrja um Lead Belly. Kolsvartur náungi sem var uppi 1888-1949. Ansi sniðugur fýr. Var inn og út úr fangelsi alla sína tíð, fyrir 2-3 morð, slagsmál og læti. Honum var alltaf sleppt aftur þar sem hann var svo góður tónlistarmaður en kom sér eilíflega í klandur aftur og settur bak við rimlana á ný.
Lead Belly á t.d. lag og texta Midnight special sem Creedence Clearwater eru þekktari fyrir að taka. Textinn er um lest sem vakti fangana alltaf á miðnætti í fangelsinu og í hugum þeirra var lestin leið þeirra út í frelsið. Sniðugt á Íslandi.

Las auglýsingu frá Fjörukránni, góður matur og gisting… ohhh hvað mig langar að fara að nota flugið mitt sem ég fékk í jólagjöf og fara eitthvert í 4 daga í algjört dekur - þá meina ég algjört dekur - ALLANN PAKKANN. En til þess að fá ALLANN PAKKANN þarf ég að finna mér kk sem langar í smá túr með mér ;) hehe. Er þetta nokkuð auglýsing :o

Tók smá krús í gær, nææææs en shjiiiit hvað það var kalt. Krús tíminn alveg að taka enda, mér finnst það sérstaklega fúlt.
Í tilefni þess er knúsið krúsað í dag ***

September 24, 2007

Tvíbökur með kakósúpu…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 8:40 am

… ég svitnaði bara og fékk skjálfta þegar ég bauð Slaugu minni að leggja sig og ég SKYLDI passa tvíbökurnar á meðan hehe. Þar sem börn fá oft matarást á mér (skil ekki afhverju ) þá var það ráð notað í þetta skipti, fann til það allra girnilegasta í eldhúsinu, raðaði því og þeim í kringum mig. Hófst þá ótrúleg skemmtun, ég mokandi mat hægri vinstri… bókstaflega, jú þau eru tvö, Óskar Þór og Olga Júlía, 7 mánaða gullmolar (eftir 3 daga). Til að bæta meltinguna hlustuðum við einnig á Metallica og CCR og þeim fannst algjör snilld að horfa á ofurfrænku sína dansa, syngja og headbanga :D þetta reddaðist sko allt og rúmlega það og Slaugz náði sér í LANGA kríu.

Ég er alveg búin að sjá það að einhver lítil tík eða skvísubíll er bara ekkert fyrir mig ;) er bara engin skvísa…. hehe. Mér veitir ekkert af öllum þunganum sem voffinn minn hefur upp á að bjóða, plús botninn á mér vel sokkinn ofan í sætið. Úfff þvílíkt veður á leiðinni heim, eins og í mars þá var bara tónlistin sett í botn og ég hékk í stýrinu eins og simpansi nær alla leið heim. En veðrið í mars var öllu verra… ójá var nokkuð viss þá að enda á hvolfi ofaní næsta skurði. Komst í örugga Höfn og mætti beint í afmæli til pabba power, ohhh hvað það var næs.

Heimferðin var ansi geispuð og glugginn galopinn nær alla leiðina… orka og mix í ómældu magni sem fór ofaní belginn á mér. Til að halda mér vakandi fór ég að rifja upp gamalt og gott, jepp hausinn á mér alveg á yfirsnúning. Heh svaðalega sem maður er búinn að gera margt yfirstrikað og skemmtilegt um dagana, bara gaman.

Keypti einn hlut í Zoranum, brunaði beint í Intersport og fékk mér hlaupaskó. Hehe hann var svo fyndinn strákurinn sem seldi mér skóna. Hann bauð mér að taka sprettinn á hlaupabrautinni sem er í búðinni… uuuu NEI takk, nema þú sért til í að skokka með mér sagði ég. Ég má það því miður ekki sagð´ann. Nú sagði ég, ekki einu sinni til að selja meira hehe. Nei, en við getum skokkað saman í fyrramálið í Laugardalnum ;) Ég afþakkaði en bauð honum að hitta mig bara í heita pottinum í Laugardalslauginni eftir skokkið hjá honum - ég mætti ekki og vona að hann hafi ekki gert það heldur - þetta var bara fyndið og ég var búin að steingleyma þessu þar til nú!! Hvernig gat það gerzt?? I wonder…

Nú tekur við góð skorpa í lærdómi, enda veitir ekki af. 2 lokapróf nálgast á ógnarhraða og því betra að fara að þjappa í skallanum og koma fyrir meiri fróðleik ;)

Takk fyrir helgina allir sem ég var svo heppin að hitta og knúsa vel og innilega :) og þið sem fenguð ekki knús, gengur bara betur næst ;)
Liljurósin kveður að sinni og sendir sitt ljúfasta knús ***

September 14, 2007

NÖRD = nær öldungis rugluð dama…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:03 am

Ég var þvílíka nördið í gærkvöldi, kom ekki til af góðu.

1. Maron týndi allri tónlistinni sinni á Keflavíkurflugvelli 23. ágúst síðastliðinn (ja eða Ægir týndi töskunni). Taskan fannst og átti að koma í pósti frá “lögreglan, tapað fundið”. Þegar taskan var fundin þá töpuðu þeir henni aftur, sem sagt “lögreglan, tapað fundið tapað”. Maron er búinn að gráta sárt yfir tónlistarmissinum sem hann hafði mikið fyrir að suða út úr Aroni stóra frænda sínum meðal annars…  þannig að sú stutta setti sig í málin í gærkvöldi til að redda Maroni með að sækja sér tónlist over the internet.

2. Var að missa það í gærkvöldi, settist niður og ætlaði að hlusta á nokkra stærðfræði fyrirlestra, en nei það var bara hljóð en engin mynd. Ég prófaði allt sem ég kann og meira til því Einir litli bró kom með sína visku að auki. Reyndum allt í sameiningu en ekkert gekk, aaarrrrg. Loks fór eitthvað að ganga þegar við fórum að nota Mozilla, gátum þannig vistað draslið á harða diskinn en VLC spilarinn var ekki að virka eins og hann átti að gera. Ástæðuna fundum við að lokum, var með 9 mánaða gamla útgáfu af spilaranum og því virkaði þetta ekki… vá ekki eins og ég hafi verið með margra ára gamla útgáfu. En allavega komið í lag og ég eyddi ÖLLU kvöldinu í þetta helv… já var orðin verulega pirruð  ;)

Fór að skokka í úrhellinu á miðvikudaginn, vó hvað ég varð BLAUT sjæze. Það var blankalogn og ég náði 2400 metrum, fékk mér 2 vatnssopa reyndar en stoppaði nú bara í 2 sek. í hvort skipti  ;)   djö… er ég ánægð með stelpuna. Það er rok í dag en sól, veit ekki með skokkið, það er STÓR bikarmót hjá mér og held ég meiki bara ekki neinn hamagang.

Ég og Ægir vorum þvílíkt dugleg á miðvikudaginn, fundum 3 sætar myndir af mér og guttunum mínum, gerðum þær svart/hvítar og settum svo í ramma. Náðum okkur í hallamál, málband, borvél, bor, tappa, skrúfur, skrúfjárn og hamar og hengdum rammana 3 upp fyrir ofan sófann - ógizzlega flott hjá okkur  ;)   hvað er svona merkilegt við það að vera karlm….. hehe.

Jæja, boysarnir mínir hjá pabba sínum um helgina og ég verð að vinna og kíki vonandi í bók líka… er komin slatta á eftir í lestrinum, úff það á að lesa svo mikið þennan vetur - enda er ég í þremur 5 eininga áföngum, á hverja einingu megum við gera ráð fyrir 500-1000 bls. í lestri - uuuuu það gerir u.þ.b. 7500 - 15000 bls. og auðvitað er námsefnið á ensku, en ekki hvað.
Knús á línuna frá mér, verið góð við hvort annað og góða helgi ***

E.s. er að huxa um að setja mynd af mér á mjólkurfernu og ath. hvort það endar eins og þessi frétt: Ástarsaga í kjölfar auglýsingar á mjólkurfernu  þetta er endalaust sætt. 
Myndin af mér yrði svona: Mín auglýsing á mjólkurfernu  ;)
Ber vonandi tilætlaðan árangur hehe….

September 12, 2007

Skokkuð Liljan

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 10:19 am

Já já sú stutta er búin að fara tvisvar að skokka á nýju hlaupabrautinni… ljúft.
Fór síðasta föstudag með Ægi minn með mér og komst heila 3 hringi (1200m án pásu) og Ægir taldi svo 150 bumbubeygjur  ;)   ég var nu bara nokkuð sátt með árangurinn, var nú ekki  mikið að hlaupa í Sporthöllinni, aðallega að lyfta og ganga. Nú svo hef ég ekki hreyft á mér botninn síðan í endaðan júní í fyrra… ansans bras. Varð lasin í byrjun júlí 2006 og var heilar 3 vikur að jafna mig og svo bara komst ég ekki af stað aftur…

Fór svo aftur á mánudeginum, þá komst ég 1600m non stop, gerði 200 bumbubeygjur og fór svo 400m í viðbót. (sko þá eru bara 40 km eftir til að ná marathoni hnéhné). Fór ekki á sunnudeginum, helgarfrí og sonnna  ;)
Aðalástæðan er nú kannski sú að ég lenti á smá skrall á Hótelið, voðalega lítið samt… en þurfti smá aðstoð, voðalega litla samt, við að komast heim hehe. Held þetta séu einhver áhrif þarna í nýja hverfinu mínu, þegar við mættum á ballið þá var verið að fylgja konu úr nágrenninu út í lögreglufylgd. Eins gott að Gunnz og Guðbjörg pössuðu mig, fékk reyndar lögreglufylgd heim en hann var ekki á vakt og á sínum einkabíl  ;)   hjúkket, eins gott, ekki hefði mórallinn batnað við það… þetta var BARA gaman  :) dönsuðum allan tímann og auðvitað þurfti Stinnmæster að taka þá stuttu og lyfta henni upp undir loft… já sumt fylgir ákveðnum stöðum og ákveðnu fólki  ;)  Það verður tekið jamm aftur við fyrsta tækifæri - kannski örlítið færri tegundir og í minna magni settar í belginn, held ég sleppi líka alveg töfratyppinu og Morgan spiced…  ;)   Var svo stálheppin að Jói frændi bauð okkur í pönnsluveislu á sunnudeginum, hefði líklega ekki komist úr bólinu annars, græðgin hjálpaði til þar  :D

Verð að vinna alla helgina og ætla að skokka í rigningunni á eftir - nóg að gera og ég er meira að segja byrjuð að læra  :D  meðaltal, vegið meðaltal, miðgildi, tíðasta gildi, spönn, dreifitala, staðalfrávik, ekkert smá spennandi hugtök hehe, dugleg stúlka hún LLL. Langt síðan ég hef verið í stærðfræði, tók nú samt 7 eða 9 stæ. áfanga í framhaldsskóla. Er nú alltaf að reikna eitthvað í vinnunni og jú kann ágætlega á excel - er allavega með rosaflott verkbókhald í excel sem ég bjó til sjálf  ;)   jeijei smá mont…

Krúsaði á hjólinu í gærkvöldi, oohhhh hvað það var geggjað - bara eitt sem toppar það thrill  ;)   Krúsað knús til þín frá mér ***

September 11, 2007

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:10 pm

Í gær fengu mínir kærustu vinir yndislega fallegu litlu stúlkuna sína í fangið.
Hún var 14 merkur og 54 sm löng.
Þau gáfu henni það fallega nafn, Rebekka Ýr.

Ég sendi alla mína hlýju og styrk til ykkar á þessum
erfiða tíma. Mér er búið að vera svo illt í hjartanu og alls
staðar, ég get ekki gert mér í hugarlund ykkar missi.
Mig setur hljóða.

Farðu að sofa fyrir mig
fyrst þú mátt og getur.
Ég skal breiða ofan á þig
ofurlítið betur.
Óvíst um höfund.

September 9, 2007

AF HVERJU…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:23 pm

…er litla ljósið hjá fullburða barni slökkt svo skyndilega í móðurkvið.
Kæru vinir, hugur minn er hjá ykkur nú sem alltaf.
Mér er svo illt í hjartanu.
Mikið getur lífið verði óréttlátt - AF HVERJU??

To my dearest family.

To my dearest family, some things I’d like to say…
but first of all, to let you know, that I arrived okay.
I’m writing this from heaven. Here I dwell with God above.
Here, there’s no more tears of sadness; here is just eternal love.

Please do not be unhappy just because I’m out of sight.
Remember that I’m with you every morning, noon and night.
That day I had to leave you when my life on earth was through,
God picked me up and hugged me and He said, “I welcome you.”

It’s good to have you back again; you were missed while you were gone.
As for your dearest family, they’ll be here later on.
I need you here badly; you’re part of my plan.
There’s so much that we have to do, to help our mortal man.”

God gave me a list of things that he wished for me to do.
And foremost on the list, was to watch and care for you.
And when you lie in bed at night, the day’s chores put to flight.
God and I are closest to you….in the middle of the night.

When you think of my life on earth, and all those loving years
because you are only human, they are bound to bring you tears.
But do not be afraid to cry; it does relieve the pain.
Remember there would be no flowers, unless there was some rain.

I wish that I could tell you all that God has planned.
But if I were to tell you, you wouldn’t understand.
But one thing is for certain, though my life on earth is over.
I’m closer to you now, than I ever was before.

There are many rocky roads ahead of you and many hills to climb;
but together we can do it by taking one day at a time.
It was always my philosophy and I’d like it for you too…
that as you give unto the world, the world will give to you.

If you can help somebody who’s in sorrow and pain,
then you can say to God at night……”My day was not in vain.”
And now I am contented….that my life has been worthwhile,
knowing as I passed along the way, I made somebody smile.

So if you meet somebody who is sad and feeling low,
just lend a hand to pick him up, as on your way you go.
When you’re walking down the street, and you’ve got me on your mind;
I’m walking in your footsteps only half a step behind.

And when it’s time for you to go…. from that body to be free,
remember you’re not going…..you’re coming home to me.
                                                                                       Höf. óþekktur.

Liljurósin ykkar.

September 6, 2007

Ógizzlega dugleg

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 9:11 pm

Er búin að afkasta miklu þessa vikuna  :)   er sko meira en sátt við kjelluna.

Við Ægir nenntum ekki að vaska upp á sunnudaginn þannig að við fórum út á verkstæði og náðum okkur í efni til þess að búa til nokkur millistykki til bráðabirgða, úr ticino í elko. Bingó uppþvottavélin þvoði sem aldrei fyrr.

Við mamma eyddum þriðjudegium í það að stytta, sauma, strauja og hengja upp gardínur… er ekkert smá ánægð með afraksturinn.

Á miðvikudaginn (í gær) tókum við Ægir okkur til og ákváðum að mála baðherbergið, þessir misgráu litir með vínrauðu röndinni voru ekki alveg að gera sig. Skrúfuðum ALLT niður af veggjunum (vá þvílíkt magn af skrúfum og tegundum af skrúfum) eins gott að eiga sitt lítið af hverju í verkfæratöskunni. Ægir dúllaði sér við að mála ofninn og ég rest, líka ofninn hehe, var fljótur að missa áhugann. Kláraði að mála í nótt og er svo búin að eyða deginum í það að þrífa og raða aftur inn. Slatti eftir ennþá reyndar, leyfa málningunni að þorna fram á laugardag. Þarf líka aukahendur við að skrúfa upp hillur og speglaskápinn sem ég er að fara að setja saman. Vona að pabbi power komi heim um helgina og geti aðstoðað, ef ekki þá gerum við mamma þetta bara, stendur ekki í okkur, frekar en annað  ;)

Ægir að mála ofninn  Ægir að mála yfir vínrauða borðann
  Ægir að mála ofninn og yfir vínrauðu miðjuna…

Búið að mála og verið að punta á ný   Bara kósý =O)
       Nýmálað                            Tók þessa á símann áðan, kósý hjá þeirri stuttu  :)

Svakalega er nú samt pirrandi að standa í smá aðgerðum heima hjá sér. Það er EKKERT til hérna, þetta var slæmt á meðan KASK var og hét, en ég held svei mér þá að Húsasmiðjan sé búin að drulla upp á bak og gott betur… þeir standa EKKI við STÓRU orðin svo mikið er víst. Hringdi svo í IKEA í gær, setti hátalarann á símann og það svaraði eftir 25 mínútur… og viti menn það var EKKERT til af þeim 5 hlutum sem mig sárlega vantar… RL svaraði mér bara alls EKKI. En jæja það þýðir EKKI að gráta Gvend, ég bara reddaði mér með því að fara í gamla bílskúrinn minn og finna þar hillur sem hafa haft lítið notagildi síðustu ár  :) nenni ekki að pirra mig yfir svona smámunum hehe, samt smá en voða lítið  ;)

Okkur Gunnz langar á ball um helgina á telinu, en erum ekki að nenna. Þetta er nú bandið okkar, eyjapeyjarnir Tóti, Viktor, Eyvi og … man aldrei hvað trommarinn heitir. Ennnn ef ég þekki mig rétt verð á vísast fyrst og fyllst á svæðinu að vanda  ;) hehe - bara grín, er alltaf spök og stillt  ;)

Ætlaði að kaupa mér hlaupaskó í dag, auðvitað voru þeir ekki til  :(   steingleymdi að græja það í borg óttans, arg. Er svo mössuð að ofan sko, eftir að fletja út allt pizzudeigið í sumar, þarf að koma botninum og rest niður í form líka hehe… Ætlaði aðeins að testa nýju hlaupabrautina betur… later girl, later. Verð bara dugleg að príla í stiganum hérna.

Sat ein að rosa veislu áðan  :) 10 kjúklingaleggir með guðdómlegu salati, ummmm. Guttarnir voru í afmæli og mættu ekki í mat, því sat ég alein og gúffað í mig. Í eftirrétt fékk ég svo ylvolga skúffuköku frá Guðbjörgu, ummm þvílíkt dekur og lostæti, er að springa vægt til orða tekið.

Sá snillig á Skjá 1 áðan, ég hélt ég yrði ekki eldri…  :)  Leifi í Hólum að leika í Dominos auglýsingu… well, trúverðugleiki þessara auglýsinga fór fyrir lítið hehe. Maðurinn er sveitadurgur í húð og hár, HALLÓ hann fer úr skónum í bankanum og geymir þá fram í anddyri… ég held hann hafi ALDREI sett flatböku inn fyrir sínar varir - samt snillarlegt að sjá karlinn í þessu hlutverki, prílandi úr traktorunum og “ljúgandi” því að hann viti hvað Dominos er hehe  ;)

Jæja farin að smíða aðeins, búin að taka allan iðnarmannapakkann síðustu daga held ég bara, eins gott að stelpan er sjálfbjarga, væri annars farin á hausinn  :)
Knús í krús til þín frá mér ***

September 2, 2007

ökuníðingur helgarinnar

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 5:00 pm

jepp það mun vera ég… var nákvæmlega 4 tíma og 28 mínútur á leiðinni heim. Stoppaði 3 mín á Klaustri til að spræna, punktur.

Mér leiddist þvílíkt á leiðinni, hlustaði á góða tónlist og til að halda mér vakandi þá fór ég að skoða örnefnin í kringum mig - betur en vanalega  :)
Þau vöktu sérstaka athygli mína í Skaftárhreppi, hér koma nokkur í réttri röð (einhverjum sleppt) til austurs:
Blautakvísl
Ytri-Kælir
Skálm
Keldnatáakvísl
Botnar
Br… minnir Brestir ekki viss samt
Skál
Þessi nefni minna mig pínulítið á sexy times (Borat) og djamm hehe, kannski var ég bara eitthvað öðruvísi þenkjandi en vanalega í gær, ræskj ræskj.

Vikan í borginni var annasöm en ljúf að öðru leiti, kom því ekki í verk að fara í eina heimsókn en er á leiðinnin… er í þremur 5 eininga áföngum þannig að það verður NÓG að gera í vetur. Áfangarnir hafa verið meira spennandi en ég verð þá bara að gera þá spennandi, það stendur nú ekki í mér  ;)  Fékk að gista hjá henni Vicx minni í skuggahverfi Reykjavíkur ;)   þvílikur snillingur sem hún er, það er hægt að hlægja að henni 24/7. Takk fyrir samveruna bestuzt ***

Fórum 6 gellz úr þroskaþjálfanum á djamm á föstudagskvöldið. Mættum til Sollunnar okkar í teiti og þar var hrikalega flott, gaman og gott að vera - margar sögur sagðar og mikið hlegið. Ein af mínum sögum var heit úr ofninum, er að hugsa um að pósta henni. Ég hef gífurlega gaman að orðum og tölur man ég oft vel og lengi, bílnúmer t.d. jú og afmælisdagar liggja lengi í minninu  ;)

Um 1900 á föstudaginn togaði ég í teit og fór í brúsabað… asss góð blanda  :)   klæddi mig og skreytti. Þegar þessu lauk þá fór ég að spá í leigubíl… hummm eitthvað svona talnalag kom upp í hugann… en því miður þá var það bara alls ekki leigubílanúmer sem ég hringdi í hehe. Númerið sem ég byrjaði á hljómar svona 5-687-123… sem betur fer svaraði enginn: Óskalög sjúklinga  ;)  en ég mundi annann söng og annað númer og komst til stelpnanna að lokum. Fórum svo á ball og dönsuðum sólana undan skónum, bara gaman. Takk fyrir frábæra skemmtun stelpur  :)

Maron svaf upp í hjá mér í nótt, ég fór til hans að knúsa hann góða nótt og aðeins að spjalla… það næsta sem ég man er að ég vaknaði í öllum fötunum hálf fimm í nótt, öll skökk og beygluð ofan á koddafjalli… sú stutta var greinilega þreytt.
Ægir var að koma úr sveitinni, alsæll með smíðavinnu helgarinnar, iðjusamur stubbur.

Jæja bezt að koma sér í búðina og verzla eitt og annað, elda svo og fara bara aftur snemma í bólið - það er svo ljúft. Allt í rútínu á morgun, Maron í Hafnarskóla, Ægir í Nesjaskóla, ég í vinnuna hjá Rafhorni og svo verð ég að fara að kíkja í bækur, held það séu tvö lokapróf í október í Zoranum… hér er ekki boðið upp á neitt slugz.

Knús í krús til þín frá mér ***