October 28, 2007

Jólahlaðborð með áskorun…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 8:15 pm

Það er sem sagt búið að bjóða þeirri stuttu á jólahlaðborð 1. desember. Með boðinu á jólahlaðborðið fylgdi áskorun… júbb fólki er farið að langa að vita hvað ég veiðimaðurinn mikli veiddi mér til matar aðfaranótt fimmtudags, 6 dögum eftir að ég kynnstist bráð minni fyrst :D

Við þríeykið, ég, Maron og Ægir vorum í okkar hefðbundna morgunkúri á föstudagsmorgni fyrir viku, þegar klukkan sagði að það væri kominn tími á að græja litla dýrið í útifötin. Ég labbaði fram á gang… jamms og sá líka svona ægilega litla og sæta dúllu klifra upp í körfu sem ég er með á ganginum. Ég auðvitað kallaði á strákana til að skoða litlu dúlluna, það stóð ekki lengi því hún var fljót að stinga af bölvuð hehe.

Jæja ekkert var við því að gera nema fara í vinnu og verzla svo vopn til að eyða dúllunni litlu. Fyrir valinu varð gildra af stærstu gerð sem kvað henta vel til verksins. Þegar ég veiðimaðurinn mikli kom heim sá ég verksummerki eftir litlu dúlluna og sá að hún hafði hreiðrað um sig inni á baði, hún lá samt ekki í sturtubotninum að skrúbba sig, ónei hún gerði heljar gat á vegginn og kúrði þar í hlýjunni. Ég veiðimaðurinn mikli græjaði gildruna með ómetanlegri aðstoð Ægis. Við svo búið var ekkert annað að gera en bíða og sjá. Ekkert gerðist þann sólarhringinn og kúrði bráðin hin spakasta í gatinu í veggnum. Ég varð því miður að bregða mér af bæ til að sitja á skólabekk til miðvikudags… þegar heim kom var gildran jafn tóm og þegar ég fór að heiman…. hummmm hvar hélt skepnan sig!!

Ég var nýsofnuð á miðvikudaginn þegar ég vaknaði við eitthvað og heyrði krafs… andskotinn hugsaði ég, nú er skepnan farin á röltið og komin inn í eldhús. Stökk framúr á fæðingargallanum en ákvað að fara í inniskó… og hélt fast um belgina, ef vera skyldi að bráðin myndi ráðast á mig :) Engin hreyfing í eldhúsinu… en inni á baði var bráðin steindauð í gildrunni. Jahá þetta gat sú stutta, skepnan varð svöng að endingu og ákvað að mæta í ostahlaðborð hjá veiðimanninum mikla.

MYND AF BRÁÐINNI LEYNIST Í ÞESSUM LINK

Nú er bara að bíða og athuga hvort 10 litlar dúllur komi úr gatinu til að halda okkur selskap á næstunni :D ég er allavega saliróleg og það þarf meira en eina litla dúllu svo ég fari að æpa, garga og hoppa upp á stóla… hef nú reyndar aldrei gert það, þannig að ég veit ekki hvað þarf til… ja maður spyr sig.

Fór aðeins á barinn á föstudaginn til að vinna, var frá miðnætti-4, hefði hvort eð er ekki nennt að lesa þann tíma, fínt að fá aur upp í næstu borgarferð… úffff meira flakkið á manni alltaf hreint, oj.

Er að læra fyrir lokapróf í siðfræði sem er á fimmtudaginn í Zoranum ehf. Bara búin að vera nokkuð dugleg þó ég segi sjálf frá. Kláraði ritdóm í fyrradag og er að skipuleggja rannsóknaráætlun sem á að skila 2. nóvember og svo kemur ritgerð þar á eftir og umræðuverkefni á netið í siðfræði og og og nóg að gera… mar’ er bara pungsveittur - þ.e. ef ég hefði einn slíkan, ekki fer maður að segja, mar’ er bara t….sveitt - neeeeee það passar bara alls ekki :P

Best að halda sig að verki, smjúts ***

October 25, 2007

@home

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:12 pm

Það er alltaf sama djöf… blíðan þegar ég er á ferðinni… ég sem er alls ekki seinheppin, eða held ég það kannski bara!! Var á jeppanum hans pabba, ljúft maður minn, krús og loftbóludekk (sem eru algjör snilld). Var skelfilega geispuð á heimleiðinni, en ekki hvað. Orka, nammi, snakk, opinn gluggi, á táslunum… og tókst að halda mér vakandi :) Var fjóra tíma og 42 mínútur á leiðinni :o

Yndislega vel heppnuð ferð í Zorann, tókst að næra líkama og sál með besta móti ;) eða þannig, alltaf orkusjúgandi að vera í Borginni. Gat meira að segja verzlað pínu pons, æji mér finnst bara ekkert gaman að versla held ég. Mig vantaði reyndar gallabuxum á mig og Maron og tókst að afreka það með hjálp BF og kerlunnar í NEXT. Tvennar á mig og tvennar á Maron, 20.000 kjell, vel sloppið get ég sagt ykkur. Hans kostuðu 4.990 x2 og mínar 4.995 x2, geri aðrir betur.

Datt reyndar inn í la SENZA og fékk mér upphengjur og naríur - bara voða plain, svart og hvítt. Þvottavélin mín át nefnilega eina upphengju um daginn, sá ekkert sexy til að verzla… aldrei slíku vant var bara ekkert að heilla mig þar núna, gengur betur næst. Keypti svo pönnuköku pönnu handa pabba í afmælisgjöf fyrir spansuðuna í bústaðnum, karlinn átti nú afmæli 23. september ekki seinna vænna. En svona er að vera óskipulagður og eiga heima í sveitinni heh eða vilja skoða og káfa í eigin persónu - segjum það bara.

Gisti hjá Slaugu minni og Helga mínum, Jóni Skeggja, Olgu Júlíu og Óskari Þór, dásamlegt í alla staði :) frábær sófi, flott klipping, góður matur og geggjuð skemmtun, takk kærlega fyrir mig ***

Ég og BF fórum að borða á Vegamótum á laugardagskvöldið, klikkar ALDREI ummm, smá maraþon át reyndar en þess virði, safaríkur kalkúnn og BF fyrir framan mig - gerist vart betra :D Fórum svo í Laufrimann að kjafta. Var alveg arfaslök, ekkert djamm og heilir 4 bjórar sem fóru ofaní mig frá 18-3 um nóttina, lélegt… ennnn frábærlega góður endir á ljúfu kvöldi, kom skemmtilega á óvart ;)
Fékk dásamlegt frænkukúr í Grafarvoginum á mánudaginn, meiri snúllan hún Dóróthea jú og þú líka elsku BéEff ***

Skólinn stóð fyrir sínu, alltaf gaman að hitta þroskuðu skvízurnar, ég hefði mátt drullast til að læra eftir skóla… shhhiiii er með allt nið´rum mig og gott betur en það, en hver vinnur ekki bezt undir álagi!! Næstu 10 dagar verða algjör martröð.

Er að fara á fastar vaktir á Víkinni, fótboltakvöldin (oj fótbolti) og svo föstudagana ef ég er ekki föst ofaní skólatöskunni hehe. Alltaf hægt að nota smá aur - er þæki :D
Jæja best að byrja að læra, ekki veitir af :)
Knús til þín frá mér ***

E.s. ég veiddi mér til matar í nótt, pósta því síðar múhahahaha.
E.s.s. að ríða með smokk er eins og að éta prins polo í umbúðunum hehe.
Þessi er alltaf jafn snedig og sannur að auki ;)

October 20, 2007

Púkalegt með meiru

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 9:09 am

Púkaleg búð

Á miðvikudaginn fengu að öllum líkindum allir landsmenn bækling frá þessu firma hér að ofan. Þessi bæklingur er stútfullur af girnilegu dóti á mjög svo viðráðanlegu verði… hef samt ekkert vit á því, en allavega miðað við Höfn. Ægir lá yfir þessum bæklingi slefandi í 3 daga og ákvað svo að velja sér hlaupahjól fyrir afmælisaurinn sinn. Ég sem nokkuð almennileg móðir tek upp símann og hringi í símanúmer uppgefið í bæklingnum fyrir drenginn minn.

Driiiing driiiing Halló… “Halló” ég hefði sagt nafn búðarinn og mitt nafn, en það er bara skoðun sveitatúttunnar. En HALLÓ búðin sendir ekki í póstkröfu og ekki er hægt að versla út á kreditkort heldur (s.s. til að fá svo sent í pósti), ég þakkaði henni vel og vandlega fyrir hönd landsbyggðarinnar fyrir að senda þennan fína bækling út á land og fyrir að leyfa mér að hlusta á barnið mitt grenja yfir því að fá ekkert hlaupahjól sem hann jú langar óskaplega mikið í og er búið að langa í síðan hann skemmdi hitt fyrir allavega árí síðan. Einnig þakkaði kærlega fyrir afskaplega ánægjuleg viðskipti óg óskaði henni góðrar helgar að auki. Hún hljómaði eins og hún hefði drullað upp á bak…

Ég varð ansi ill eitt augnablik (já það fauk í þá stuttu og rauk úr´enni heh) og skil bara ekki svona “ekki” þjónustu, hvað er málið!!! Max-raftæki t.d. þeir rukka 3000 kr. í sendingarkostnað á allar vörur, hvort sem þær eru 150 kg eða 150 gr !!! Framkvæmdastjórar slíkra firma hafa líklega aldrei búið úti á landi og ég efast um að þeir hafi farið út á land yfirhöfuð… ég er næstum orðlaus en samt ekki því ég verð aldrei orðlaus hehe.

Ég móðirin ætla samt að fara í þessa helv… búð og verzla fyrir litla dýrið mitt, því eins og þið vitið sem eigið unga þá gerir maður ALLT fyrir börnin sín og gott betur oft ;)
Landsbyggðarpakkið ég ætla sem sagt í smá heimsókn í skólann minn og jú eins og oft áður þarf ég aðeins að snúast í geðveikinni… úff fæ nú bara netta gæsahúð hehe, æj svona er þetta bara. Maður er bara allt of góðu vanur í sveitsælunni og sem betur fer kann ég að meta það :D það eru kostir og gallar við allt og ekkert, þannig er það bara.

Jæja krúsurnar mínar, ætla að drullast úr bólinu og sendi mitt beztasta knús ***

E.s. nóttin var hefðbundin í borg óttans  :P   hávaði, ölvun og pústrar.

October 17, 2007

SpongeBob SquarePants

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 11:59 am

… eða bara Hneggi Hneta - ég er allavega nutcase hehe.

Það gjörsamlega datt úr mér allur kraftur þegar einhver í skólanum gerði athugasemd á að prófið sem átti að vera 22. okt mætti ekki vera utan auglýsts tíma í próftöflu í desember… meira andsk… ruglið og prófið verður ekki og má ekki vera = ég drullufúl svo ekki sé meira sagt. En ekki stoðar að vera fúl yfir þessu lengur en 1 klst og hún er sko löngu liðin :)

Ég eyddi síðasta laugardegi í eldhúsinu (og sunnudeginum reyndar líka), fyrst að baka og græja fyrir afmæli hjá litla dýrinu og svo að berja saman kommóðu úr RL… ekki kaupa kommóðu þar nema þið séuð AFSKAPLEGA þolinmóð eins og ég ;) þetta hafðist allt að lokum. Þessi var reyndar nr. 2 í röðinni og ein eftir… jamm engar hirslur í Garðinum.
Þegar þessari steypuvinnu lauk togaði ég í teit á einum túbba og hvolfdi honum ofaní mig, shhiii hvað hann var góður. 2 mínútum siðar kom Guðbjörg með fullt glas af malibu í appelsínusafa til mín (góður granni hún Guðbjörg), ég hvolfdi honum líka í mig og fór svo að mála á Víkinni… með bjór á hliðarlínunni en ekki hvað :) Siggi kíkti á okkur Gunnu og ég og hann fengum okkur einn írskan, össss þetta var allt of mikið af því góða og sú stutta strunsaði heim eftir málningarvinnuna og beint í djammgallann hehe. Ekki gat ég farið í súkkulaðibrúnum gallabuxum, jæks. Ég og Bára fengum okkur einn drykk á Leirunni og þrömmuðum svo á ball, þar var dansað í tæpa 2 tíma, geðveikt gaman.

Var bara stillt stúlka og fór beinustu leið heim þrátt fyrir smá þrýsting að mæta í teiti. Kom heim klukkan 4 alveg frosin inn að beini, klæddi mig vel og skreið upp í ból og hlustaði á tónleika til 6 ;) ekki leiðinlegt. Svaf í heila 3 tíma og hélt barnaafmæli fyrir hann Ægi minn, hann alsæll með daginn og ég enn sælli þegar honum lauk :D
Er að verða búin að jafna mig á svefnleysinu enda ekki seinna vænna, aldrei að vita hvað maður gerir á laugardaginn… er allavega að hugsa um að bruna í Zorann þá og e.t.v. gera eitthvað fyrst það er ekki próf á mánudeginum. Þó ekki væri nema bíó, hef ekki farið í bíó síðan ég veit ekki hvenær og það var pottþétt teiknimynd, já alveg rétt Shrek, svaf vel yfir henni :) Ef ég verð löt þá krúsa ég bara á sunnudeginum - opin fyrir öllu í báða enda :o
Jæja farin að kíkja á tvíbökurnar hennar Slaugu minnar, svo að mála á Víkinni, alltaf nóg að gera hjá þeirri stuttu.
Knús á línuna ***
E.s. allir svo að kíkja á Víkina um helgina - ekkert rugl ;)

October 9, 2007

Dásamlegt…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 10:55 am

… að sjá svipinn á Ægi þegar hann opnaði pakkann sinn í gær :D
Ég, pabbi hans, Maron, Guðný amma, Palli afi og Einir frændi ákváðum að slá saman í rafmagnsgítar handa honum, ég bara get ekki annað en reynt að fylgja því eftir ef þeir vilja spila á hljóðfæri. Enda fæ ég líka fjölskylduafslátt í eðal hljóðfæraverszun í borg óttans :P
Ég grenja ennþá yfir því að hafa ekki lært á píanó eins og mig hefur alltaf langað til að gera… aldrei of seint. Er líka búin að tala um talmeinafræði í 13 ár, ég er greinilega bara svona lengi að þroskast heh, eða með suma hluti allavega.

Afmælið verður vonandi næstu helgi, Sigurður Ólafsson á Sigurði Ólafssyni SF-44 í eigu Sigurðar Ólafssonar ehf. (frumlegheitin í fyrirrúmi hehe) þurfti að bregða sér á Neskaupstað með bátinn í slipp en vonast til að verða heima næstu helgi… og þá verður haldin heljarinnar veisla.

Var hálf lasin í gær, með hálsbólgu og einhvern skít. Fann ekki fyrir því samt fyrr en ég fór að skokka, var ekki að keyra á öllum 16 ventlunum ;) stórhættulegt að hreyfa sig, hef alltaf sagt það. Komst 5 hringi og tók svo 5 sinnum 100 mtr. spretti. Held ég hafi bara losað mig við skítinn á þrjóskunni… svei mér þá. Ég og Maron erum líka að fara í flensusprautu, búin að fara með honum síðan hann byrjaði að fá slíka bólusetningu síðan haustið 2004 líklega, enda varð hann svo lasinn þegar hann fékk flensu þann veturinn að minnstu munaði að hann þyrfti sjúkrahús innlögn. En við erum svo klár að bjarga okkur í sveitinni, hann hefði verið löngu farinn inn ef við ættum heima í Zoranum, trúið mér.

Kúrði aðeins hjá Maroni áður en hann fór að sofa í gærkvöldi, meiri kelirófan hann er. Það var margt rætt og spekúlerað. Ég skil ekki hvernig krakkinn fer að því að muna myndir sem honum finnst skemmtilegar 100% utan að… Borat t.d. kann hann 150%… get svo svarið það. Svo var nú eitt fyndið - þegar hann fær punghár þá ætlar hann að kalla til meindýraeyði bwaahahahaha, hélt ég yrði ekki eldri ;) já það er spjallað um margt í kúrinu - bara snilld. Þetta er kannski ráð sem dugar, hvað veit ég!! En eitt veit ég að það er bara vezen að halda þessu snyrtilegu þarna á miðhæðinni hehe.

Úff hvað tíminn flýgur frá mér, skallinn á mér er jafn tómur og í ágúst þegar ég byrjaði í skólanum og það er lokapróf í aðferðafræði eftir 13 daga, ég geri mitt besta, get ekki betur :D búin að lesa og lesa en fróðleikurinn lekur bara út aftur… arg…

Mig vantar ný dekk undir kaggann minn, er alltaf að muna það öðru hvoru að karlinn í skoðuninni sagði að ég mætti fara að huga að nýjum dekkjum… og nú fer vetur konungur að láta í sér heyra þannig að ég verð víst að punga út fyrir þeim… andsko… they will cost me an arm and a leg. Er búin að vera á heilsárs dekkjum í nokkur ár og kann bara vel við það, hér snjóar aldrei. Ef þið vitið um lítið notuð og góð dekk handa mér fyrir sanngjarnan pjéning þá engilega látið mig vita, stærðin er 195/65R/15. Alvöru dekk undir alvöru vagn :) mega alveg vera með nöglum, ég ríf þá bara naglana úr í vor :D   Koma svo, taka til í bílskúrunum ;)

Knús í krús úr blíðunni á Höfn ***

October 8, 2007

Afmælisstrákur

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 6:06 am

Litla dýrið mitt hann Ægir Sigurðsson er 7 ára í dag.
Fæddur klukkan 09:52 fyrir SJÖ árum síðan, þá 52 sm langur og tæpar 16 merkur.
Fór að finna einhverjar pílur í kringum sex um morguninn og hann var bara kominn í heiminn tæpum 4 tímum síðar, mikið að hann fæddist ekki bara í bílnum. Var fæddur 12 mínútum eftir að ég kom upp á Heilsugæslu. Enda er hann vinnusamur og duglegur með eindæmum þessi snáði sem ég á.
Það er naumast að tíminn flýgur hratt, ég verð orðin amma áður en ég get lært orðið kærasta hehe.

sæti sæti
Töffarinn að spila á gítarinn sinn… eitthvað rusl sem við keyptum í rúmfatalagernum á Akureyri sumarið 2005… kannski hann geti farið að æfa sig á flottari græju eftir morgundaginn… vandi er um slíkt að spá ;)

Afmælisknús til þín sæti stubbur frá mömmslunni þinni og stóra bróður ***

October 7, 2007

Myndir…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 1:06 pm

… já já bara harka í þeirri stuttu í morgun  ;) setti inn tæplega 200 myndir í febrúar, mars og apríl 2007. Þá á ég bara eftir að setja inn hálft ár… ekki mér líkt að koma ekki myndum á netið, algjört kæruleysi  :)   það voru einhverjir farnir að kvarta yfir að það vantaði nýjar myndir, en ef ég byrja á því að setja september t.d. þá myndi ég aldrei setja hinar sem vantar á milli… þannig að það koma bara gamlar og góðar fyrst  :P

MYNDASÍÐAN

Það er svo geggjað veður í dag, eftir svaðalegt rokrassgat síðustu daga… dæs. Ég ætla að skella mér í gallann minn og krúsa aðeins um bæinn á hjólinu, það er bara ekki hægt að sleppa því… þarf reyndar að læra… smá meira kæruleysi ussussss. Var að rafvirkjast í gær með pabba og fór svo í humar til þeirra (ohhh geggjað gott) og svo bara lá ég eins og klessa í sófanum yfir imbanum með kertaljós og kósíheit í gærkvöldi - dásamlega löt alveg hreint.

Krúsað knús frá þeirri stuttu í tilefni blíðunnar ***

October 5, 2007

Hvar eru þær…!?

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:12 pm

Ég get ekki neitað því að hugurinn leitar stundum að flík sem ég keypti líklega í kringum 20 ágúst s.l. Ég var að krúsa á hjólinu og kom við í Apótekinu, man ekki hvað ég verzlaði en eitt man ég að ég keypti mér eitt stykki naríur… sætar hipster sem eru svo þægilegar, ef hægt er að kalla naríur þægilegar - sleppi þeim eins oft og ég get… ;) en allavega ég hef ekki séð þessar naríur síðan ég stakk þeim í vasann á mótorhjóla gallanum… ég get svo svarið það, fór ekki í þær í eitt einasta skipti. Það er von mín að þær hafi fokið úr vasanum og beint á framrúðuna hjá einhverjum töffara sem var kannski á eftir mér hehe.

Guðbjörg var svo sæt að færa okkur uppskriftina að skúffukökunni góðu og Ægir bakaði eitt stykki köku í gær. Hún bragðaðist guðdómlega, kremið var aðeins of ljóst reyndar, ég kann ekki að reikna og keypti bara 200gr af suðusúkkulaði í stað 250gr.. sauður. En eins og með svo margt annað, það er ekki útlitið sem skiptir máli heldur gæðin :P enda fékk sá stutti 9,2 í einkunn frá Guðbjörgu ;) hann var nú ekkert lítið montinn með þetta allt saman heh, gaman að leyfa honum að bardúsa í eldhúsinu, mjög áhugasamur. Þeir bræður bíða spenntir eftir að koma heim úr skólanum og detta ofaní ofnskúffuna…

Ætla að taka gott afslappelsi um helgina, eða þannig… ekki vinna á Víkinni heldur læra og hafa það x-næs með guttunum mínum. Gæti reyndar orðið eitt stykki afmæli um helgina, litla dýrið er að verða 7 ára á mánudaginn, 8. október. Ef Siggi verður í landi þá drífum við það af vænti ég… annars bara sófakúr og kertaljós :D ummmm…

Jæja búin að borga VSK fyrir Rafhorn og Hind og get því labbað sátt inn í helgina, af því ég reiknaði með því að VSK væri ekki fyrr en á mánudag þá var hann í dag… alveg er þetta með eindæmum. Get sjálfri mér um kennt, Rafhorn klárt fyrir löngu síðan en slugsa alltaf/stundum/oftast Hind fram á síðasta dag…

Risa helgarknús á línuna, vona að helgin verði ykkur ljúf og góð ***