November 30, 2007
Hvað er fólk að þvælast úti á þjóðvegum þegar veðrið er bandsjóðandivitlaust eins og það er búið að vera á suð-austurhorninu í dag
Heyrði áðan að það hefði trukkur fokið útaf í Öræfunum og drengurinn sem var að keyra væri stórslasaður… hvað er málið?? á eftir þeim trukk var annar trukkur og var sá frá Landflutningum. Mér er óskiljanlegt að fólk skuli leika sér að lífi sínu og að forsvarsmenn fyrirtækja sem reka flutningafyrirtæki eða dreifa vörum sínum um landið í slíkri græju (trukki) skuli gera það einnig, er virkilega svona áríðandi að sækja nokkra fisktitti eða koma eplum í sölu…
Ég borgaði út laun í dag, ég borgaði mér desemberuppbót hehe, gaman að því - já og auðvitað strákunum mínum líka - en ekki hvað. Fór áðan og ætlaði að finna mér eitthvað yfir júgrin fyrir jólahlabbann… fann mér nefnilega buxur í gær. Var á leiðinni út tómhent þegar Laufey dró mig inn aftur og mokaði í mig fötum, ekki stóð Ægir sig verr en hún - þau sáu til þess að ég hefði nóg að máta
jájá labbaði út klyfjuð - hef nú bara ekki nennt að verzla mér föt síðan ég veit ekki hvenær - fyrir utan tvennar gallabuxur sem mig bráðvantaði - en ekki hvað
Var meira að segja næstum því, bara næstum því, búin að kaupa mér eitt stykki kjól - jahá kjól sagð’ún. Hef ekki verið í kjólafýling síðan 2002 líklega… svona er maður skrítinn í kollinum.
En þessar fallega mjúku línur eru greinilega að gera sig
mjúkar!! jú ég sit og læri 24/7 núna og ég hef bara alls ekki eirð til að sitja nema vera að kjamsa á einhverju - sit þar að auki í eldhúsinu - ísskápurinn er opnaður á 6 mínútna fresti - bara til að tjékka hvort það sé ekki örugglega allt í orden og hvort það sé eitthvað þar sem ég sá ekki í fyrra skiptið til að gúffa í mig
ég er búin að búa mér til heita rjómaosta/salsa/ídýfu annan hvern dag og með því hverfur eins og einn poki af Doritos snakki ofaní ginið á mér. Þar að auki er ég í fastri daglegri áskrift á börunum, þ.e. nammibörunum á sjoppunum. Hvernig endar þetta eiginlega hehe, iss seinni tíma vandamál, fögin í skólanum vega hærra en nokkur pund. Gluteus maximus og tvíburarnir njóta góðs af þessu át-taki mínu
Var að gúffa í mig volgu fléttustykki og get þá kannski byrjað að læra…
lærapokinn… uuuu nei lærupúkinn sendir knús ***
November 29, 2007
að það væri einhver heima hjá mér sem myndi taka á móti mér með lærdómsdagská. Vá hvað ég á erfitt með að ákveða fyrir hvað ég á að læra í þetta og þetta skipti… væri þungu fargi af mér létt ef einhver tæki þetta vandasama verk að sér.
Fór á tónleika með Mugison í fyrrakvöld, ansi hreint magnaðir á sviði og helv… skemmtilegir. Komu reyndar ALLT of seint og byrjuðu að spila 2 tímum seinna en auglýst var, vita líklega ekki hvar Höfn er á kortinu og vissu pottþétt ekki að það væri hálka á leiðinni heh. Enda voru pésarnir hinir rólegustu í útvarpsviðtali rúmlega 1500 í Zoranum.
Þeir settu draslið upp á 32 mínútum og 46 sekúndum og rótarinn fékk klapp frá liðinu
Mennirnir voru kófsveittir eftir hlaupin með græjurnar, enda ekkert smá magn af græjum, þriggja fasa rafmagnið þurfti örugglega að sækja út á bryggju þar sem bátarnir landtengja
sverasti kapallinn sem ég sá var örugglega 70q. Ekkert til staðar í pakkhúsinu fyrir svo öfluga stengi hehe.
Merkilegt hvað svona horrenglur eins og þessir fýrar í Mugson eru höfða lítið til mín, þeir voru allir með mjórri upphandleggi en ég nema einn, söngvarinn sjálfur. Það eru engar ýkjur þegar ég segi að mínir tvíhöfðar eru magnaðri en þeirra
Einnig vantaði þá flesta algjörlega hinn glæsta vöðva gluteus maximus… það er algjört möst að geta státað sig af slíkum grip með góðri fyllingu
allavega ekki verra hehe. Jæja er víst ekki að fara í pungapróf í læknisfræði núna, búin með það og stóð með prýði í vor.
Jólahlabbi á Smyrla á laugardaginn, ummm hvað ég hlakka til að snæða þar. Held þetta sé í fjórða skipti sem ég fer, aldrei klikkað. Svona hefðbundið jólahlaðborð með villibráða ívafi… ohhhh þvílíkt sælgæti. Ætla ekki að gista, nenni nú ekki að hýrast ein á hótelherbergi…. plús það að ég verð þá líka bláedrú svo ég geti keyrt heim úr sveitinni. Gerði það í fyrra og auðvitað var veðrið algjörlega viðbjóðslegt - en ekki hvað þegar ég er á ferðinni. Gler yfir öllu núna, verður nú vonandi skárra um helgi.
Jæja best að halda sig við efnið, nenni þessu alls ekki - hvorki að læra né vinna. Held ég verði að semja við Jóa um gott jólafrí, tók ekkert sumarfrí og ekki jólafrí í fyrra heldur þannig… ef ég á að halda geðheilsunni þá er það algjört MÖST - going bananas
Lærdómsríkt knús á línuna *** *** ***
Verið falleg við hvort annað.
November 27, 2007
Það er heilt fjall af lærdómi þessa dagana… próflestur dauðans, greining gagna í aðferðafræði og ritgerð í siðfræði… æl. Hef svo sem ekkert annað að gera… eða ??
Fékk senda snilldar klippu áðan, ég horfði 10 sinnum í röð á hana, hún sýnir lítinn pandabjörn hnerra og ég bókstaflega grenjaði úr hlátri yfir viðbrögðum móður hans. Þetta kveikti í púkanum í mér, þetta er svo fyndið, get bara ekki þurrkað skítaglottið framan úr mér
Greinilega hennar fyrsti ungi hehe.
Sendi þetta áfram á þá sem ég sá í adressubókinni, var með augun full af tárum…
Er búin að hugsa mikið um eitt lag síðustu daga, minnir að það heiti Hjá þér og Sálin spilaði það allavega. Þetta er svo fallegur texti og lagið reyndar líka, gott að hugsa um fallega texta. Hef ekki getað hlustað á það samt - flókið… Ég var meira að segja farin að rembast við að glamra það á gítarinn þegar ég og hann áttum samleið… hummm, reyndar ekki langt síðan það var spilað og sungið í mín eyru
Gítar er svo magnað hljóðfæri. Vildi að ég hefði ekki lagt hann frá mér hérna um árið. En það er ekki hægt að gera allt. Betra að einbeita sér að einu í einu og gera það almennilega. Fenderinn minn bíður eftir mér alveg rólegur þessi elska, getur ekki annað
Sá þessa klippu á kvikmynd.is áðan. Ansi klár náungi.
Mugison er að spila hérna í kvöld og mig langar svvvoooo - held ég bara verði að fara.
Ef ég verð rosa dugleg frá og með núna og til 21 að læra þá skelli ég mér og tek mömmu með. Er þæki bara - júts
Jæja bækurnar bíða og heilinn að verða smekkfullur af fróðleik… gaman gaman.
Knús og klemm frá mér til þín ***
November 25, 2007
Var að vinna í 16 tíma á Víkinni í gær
Er að fara að vinna allavega 6 tíma núna á eftir
Er að drukkna í lærdómi
Fyrsta prófið 4. desember
Er að kafna í hugsanagangi
Er búin að læra margt síðustu 3 vikur - ekki tengt skólanum
Er meir, meirari, meirust… mjúk, mýkri, mýkst…
Hef ekki hlustað á tónlist í 3 vikur - get það ekki
Tónlist er minningar í mínum huga - góðar og slæmar - erfitt
Líttu þér nær - flísin í auga náungans er ekki svona stór
Konur eru konum verztar - vissi það reyndar
Er hreinskilin - reyni það allavega
HUGE siðfræði verkefni fór á netið á föstudaginn
Siðfræðin á að enda sem 15-20 bls. ritgerð - úgg
Mér er kalt - að innan sem utan
Ætla til Reykjavíkur eftir próf og tjilla - ummmmm
KK koma sífellt á óvart - í óþokkaskap og yndislegheitum
Dagsetningar greipast í skallann á mér og sitja þar sem fastast
Hreinskilni borgar sig ekki alltaf en ég geri það samt
Betra er að þjást af sannleikanum en hugga sig við lygina
Langar í fullt af bókum sem er verið að gefa út
Er að greina viðtöl í aðferðafræði fyrir skólann
Vantar knús frá stubbunum mínum
Vildi óska þess stundum að dagsetningar og ég værum ekki eitt
Í dag á hún elsku frænka mín, Jana Mekkín afmæli
Orðin 4 ára þessi svísa - tíminn flýgur
Mig langar á skíði/snjóbretti/snjóþotu/snjósleða/þoturass/gúmmíslöngu/skauta
Ég og BF ætlum að skíðast saman í vetur
Fór síðast í Bláfjöll 1993 með Friðdóru - ef minnið svíkur mig ekki
Fór á fyrirlestur á föstudaginn hjá Hugarafli um geðraskanir
Þar voru hetjur á ferð, þær einkenndi einmitt hugrekki, hreinskilni og traust
Vá hvað ég átti erfitt með að fara ekki að háskæla eftir tölu þeirra
Væri til í sófakúr akkurat núna - nammi og ræma
Djöfull er gott að vera ekki að drekka brennivín
Ætla að verzla mér TV-flakkara - keypti 1 fyrir 2 árum sem virkaði aldrei - honum var skilað
Í flakkarann langar mig helst í ATA disk
SATA diskarnir eru stærri að mér skilst - 1 terabyte væri draumur í dós
Á fimmtudaginn voru 6 mánuðir síðan ég sat á skrifstofu embættis með 40 stiga hita og streptakoggasýkingu í hálsi að pára nafn mitt - held ég hafi skrifað það rétt…
Þegar á labbaði út var pollur í stólnum - það lak af mér lýsið í stólinn í bókstaflegri merkingu - enda stelpan sárlasin.
Traust - hreinskilni - hugrekki: í vinnslu en svo sannarlega 3 félagar sem tengjast órjúfanlegum böndum - meira um það síðar. Má bara því miður ekki vera að því að pikka þann pistil inn, en er klár í skallanum á mér
Að lokum - lesið endilega leiðara Eystrahorns á bls. 6 - þá sérstaklega þeir sem lifa á því að tyggja vel og vandlega á óförum annarra og krydda það svo ískyggilega mikið - væri nær að skíta í eigin kopp, hef sagt það áður og á örugglega eftir að segja það aftur. Hvað gengur svona fólki til!! mér er spurn…
Ætla að pikka eitt orð aftur sem ég hef líka gert áður: öfundsverð - punktur
Farin í brúsabað til að hlýja mér að utan
Knús frá þeirri nývöknuðu með hugarflugið í rallygírnum,
vona að ég brotlendi ekki ***
E.s. eru rallygírar á fluggræjum… líklega ekki
November 21, 2007
Kawasaki Vulcan 500cc, árgerð 2000, ZY-V08.
Fór smá rúnt áðan á hjólinu hennar Boggu.
Ummm hvað það var æðislegt að fá smá útrás, þetta er svo gott og gaman.
Ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu, verðið að prófa sjálf.
Var að pússa það og skeina því þetta var síðasti rúnturinn á því hjóli í bili. Jepp, Bogga komin með bifhjólapróf og tími kominn fyrir hana að æfa sig á sínu hjóli
skilaði henni hjólinu og sagði að hún mætti rúnta á mínu hjóli ef hún kysi það frekar.
Shhiiii hvað mér var kalt þegar ég hætti að rúnta.
Puttarnir voru lengi að vakna og ég fór beint í skíðabuxurnar þegar ég kom heim.
Er í þeim enn og langar bara ekkert úr þeim.
Búin að ákveða jólagjöf frá mér til mín.
Get ekki beðið eftir að versla hana og hvað þá að prófa.
Hlakka reyndar ekki til að læra á græjuna en verð fljót að ná lagi á því eins og öðru sem ég tek mér fyrir hendur, quick learner.
Held jafnvel að jólagjafirnar verði tvær
Jæja farin að fá mér plokkfisk, held það verði bara jólamaturinn í ár,
svona fyrst ég fór að tala um jólagjafir… ekkert jólaneitt í mér ennþá samt…
Annars er það alltaf jafn merkilegt hvað Maron hefur gaman að kokkaþáttum í imbanum, krakkarassgatið er svo matvandur að það er ekki normal. Hann borðar bara kjet, aldrei neitt meðlæti, samt slefar hann yfir þessum þáttum. Farin að halda að það séu dúkkurnar sem eru með þættina sem vekja þennan gífurlega áhuga hehe
Síðasta krúsaða knúsið þetta árið ***
I DID NOT ASK FOR ANY OF THIS
Comments Off
November 19, 2007
Það er skítkalt úti og búið að vera skítkalt úti, ég sef í skíðasokkum sem ná mér upp að hnjám og þá líður mér vel
kannski ekki “the most sexy outfit” en ætli mér sé ekki nokk sama. Enda eru það gæðin en ekki útlitið sem skipta máli, bæði hvað sokkana varðar og mig
hehe.
Samt einkennir einhvers konar hlýja þessa daga, já ég segi hlýja. Takk þúsundfalt fyrir falleg og hlý orð í mann garð. Þau gera breið bök breiðari og ná að verma hjarta sem varð því miður kalt í nokkurn tíma - ekkert voðalega kalt en smá frostskemmdir sem eru að þiðna í rólegheitunum.
Er samt enn að heyra ömurlegar bull sögur af mér og þessu miður skemmtilega máli, það liggur við að ég taki upp símann og heyri í eins og einum lögfræðingi eða svo
Svakalega er vont að finna til í hjartanu. Það er ekki eitt þessa dagana heldur allt.
Ég sat með gæsahúð í vinnunni í 4 tíma á föstudaginn. Bekkjarbróðir Marons, Tómas Ingi dó af veikindum sínum á föstudagsmorgun. Hann greindist með krabbamein fyrir um 6 mánuðum síðan. Stuttur tími gefinn þar. Alla mína samúð fá þau sem syrgja og sakna.
Frændi strákanna minna sem verður 6 ára á morgun greindist með alvarlegt mein 8. nóvember síðast liðinn. Vanmáttarkenndin sem því fylgir er algjör. Hann verður í lyfjameðferð og geislum næstu 8 vikurnar. Hugur okkar er hjá honum og fjölskyldu alla daga. Duglegur snáði þar á ferð.
En að öðru, maður er bókstaflega að drukkna í heimalærdómi. Það er ekkert að skána, enda próflestur að byrja, fyrsta prófið 4. desember. Þetta ár hefur svo sannarlega flogið frá mér, í orðsins fyllstu. Ég bara gapi þegar ég lít á dagatalið og sé að í dag er 19. nóvember… ég er að verða búin að búa á Garðsbrúninni i 3 mánuði, mér finnst svo stutt síðan ágúst mánuður skartaði sínu fegursta.
Af því að ég er töluspekúlant mikill, spái mikið í tölur, bílnúmer, afmælisdaga, dagsetningar, símanúmer… bara alls konar, þá er ég að spá í að hunsa allt gott sem kemur til mín ef dagsetningin inniheldur ákveðnar tölur. Það hefur allt of oft sýnt sig hvað mig varðar að sumar dagsetningar eru mér bara alls ekki hliðhollar.
Tók viðtal við þroskaþjálfa fyrir 2 vikum, hún minntist á búnað sem les vefsíður fyrir þá sem það þurfa. Eins og t.d. þroskahamlaða sem ekki geta lært að lesa, lesblinda og sjóndapra svo eitthvað sé nefnt. Mér fannst þetta svo mikil snilld. Það eru allir á netinu og svo mikill fróðleikur sem hægt að að nálgast þar, ótæmandi. Búnaðurinn var auðvitað ekki frír á netinu eins og ég vonaðist til heldur kostar hann heilar 50.000 krónur (kostaði reyndar 100.000 fyrir ári síðan).
Sá svo áðan þegar ég var að vafra á netinu að þetta er í boði frítt á netinu, frá og með síðast liðnum laugardegi
ég varð all svakalega kát þegar ég sá þetta og óska þeim sem að stóðu til hamingju og flott hjá LÍ að styrkja þetta verkefni.
Hér má skoða þessa snilld. Vona að sem flestir nýti sér þetta sem þess þurfa og að þessi nýjung breiðist hratt um netheima.
Lenti í allsvakalegu uppsölu teiti aðfaranótt sunnudags. Ægir krassaði í mínu bóli og vaknaðu um hálf fimm, fann svo til í mallakút. Ég spurði hvað ég gæti gert fyrir hann eða hvort hann þyrfti að æla. Nei… jú kannski, svo kom smá slumma og við á harðahlaupum inn á bað. Úfffff það var ljótt að sjá. Hann náði inn á bað en ekki mikið meira
það var allt baðað í ælu, við bæði, gólfið, klósettið, gluggakistan, veggurinn, sturtuhengið, sturtubotninn - ALLT. Að ég skyldi ekki æla líka… ég er mögnuð 
Litli karlinn fór í sturtu og var bara farinn að tralla og syngja þar klukkan 5 um morgun. Mamman ekki eins kát liggjandi í gólfinu að skúra, skrúbba og bóna
Er heima með Emmsann minn lasinn, nú er það sturtan og svo lærdómurinn, kannski við fáum okkur nett sófakúr og horfum á eina ræmu áður en litli snúðurinn kemur heim.
Góð hugmynd 
Knús úr flensuborg ***
November 14, 2007
Eins og fyrri daginn er ég teinrétt og kát.
Veiddi aðra mús í gær, auglýsi mig hér með sem meindýraeiði.
3000 kjell og málið er DAUTT
Af hverju, jú ég ákvað að loka síðunni tímabundið þegar umferðin þar var um 100 manns á 3 klukkustundum, jú auðvitað var ástæða fyrir því, en ekki hvað.
Mér hrýs nánast hugur að hugsa til þess hvernig ein manneskja getur komið fram við aðra manneskju. Virðingin fyrir persónunni er engin, hugsunarleysi þess er framkvæmir er algjört. Friðhelgi einkalífs er haft að engu. Ærumeiðingar er sakhæft athæfi fyrir þá sem ekki vita.
Ég varð því miður fórnarlamb ærumeiðinga. Þeir sem halda að ég sé sökudólgur í því máli eru jafn siðblindir og sá sem meiðyrðið framkvæmdi.
Ég veit betur og ætla ekki að láta eina manneskju eyðileggja líf mitt með skítlegri framkomu. Ég hef bitið í nokkur súr epli um ævina en líklega er þetta það súrasta og það hefur ekki verið auðvelt að melta það, ónei en það er að hafast og er það auðvitað góðum að þakka sem ég á að. Hvar væri maður án vina…
Það er nefnilega ekki verst að deyja. Ég segi þetta oft og fólk skilur yfirleitt ekki hvað ég á við. Merking þessarar setningar er skýr. Þegar maður deyr þá deyr maður, en eftir sitja margir með sársauka og söknuð en sá sem farinn er líður vel og veit ekki hvað hann skilur eftir eða hverjir sakna.
Þeir sem ákveða að lifa verða að takast á við það sem lífið hefur upp á að bjóða og það er ekki alltaf auðvelt, það veit ég og hef kynnst vel. Sérstaklega á síðastliðnu ári og þá sér í lagi í gegnum mína kæru vinkonu fyrir norðan sem býr yfir einstakri seiglu og krafti - svo ég tali nú ekki um hlýjuna sem einkennir hana.
Dagarnir 6., 7. og 8. nóvember voru mér afskaplega erfiðir hver á sinn hátt.
Viðbjóður einkennir þann fyrsta, sársauki þann næsta og vanmáttur þann síðasta.
Það sem ekki bugar mann bætir mann og styrkir, það er mín ákvörðun í þessu máli og við hana ætla ég að standa, enda stend ég við það sem ég segi ef ég mögulega get.
Ég er ekki manneskja haturs og ætla ekki að standa í slíku, enda rífur það mig niður frekar en eitthvað annað. Þeir sem koma skítlega fram við aðra manneskju getur ekki liðið vel, hvort sem það er með framkvæmd, orðum eða þögn, allt er það afskaplega sorglegt og veldur bæði sársauka og óvissu. Við erum sem betur fer flest mannleg og finnum til og gleðjumst til skiptis, annað væri óeðlilegt, innihaldslaust og leiðinlegt.
Af því að ég er í siðfræði í skólanum þá er hér einn ansi laglegur punktur í þeirri speki.
Skilyrðislausa skylduboðið orðaði Immanuel Kant með eftirfarandi hætti:
„Breyttu einungis eftir þeirri lífsreglu sem þú getur jafnframt viljað að verði að almennu lögmáli.“
Njóttu dagsins í dag, enginn veit hvað morgundagurinn færir þér,
knús frá mér til þín ***
Comments Off
November 7, 2007
… að kynnast fólki með skítlegt eðli. Vonandi gerist það bara einu sinni á ævinni, ekki gert það áður og gerist vonandi ekki aftur. En á móti er til yndislegt fólk sem lætur mann vita af skítlega eðlinu, það finnst mér dásamlegt og vegur meira en hitt. Ekki orði á það eyðandi.
Setti hjólið mitt á sölu hjá horn.is, það hafa þó nokkrir skoðað það hjá Boggu og Gunna og sýnt því áhuga. Það er reyndar “off season” að selja hjól núna en það er í góðu lagi. Bara prófa fyrir veturinn, fer annars að leita að hýsingu fyrir það í vetur og sel í vor - vonandi
Ætla að kaupa mér stærra hjól með fleiri hestöflum, ekki færri en 50… helst.
Hjól eins og hér fyrir neðan er að freista mín, Kawasaki Vulcan 500cc. Ég er búin að vera að krúsa á einu slíku síðan í byrjun ágúst. Geggjuð græja sem gefur mér akkurat það kikk sem ég þarf að fá öðru hvoru
Enginn smá hávaði reyndar sem má minni fyrir minn smekk

Liljan og Vulcan 500cc
Jæja ungarnir orðnir svangir og ég að fara að vinna á Víkinni, eitthvað andsk… tuðruspark, veit ekkert um það en pizzur, hammara, brauðstangir, ostastangir, laukhringi og íssssskaldan öl í freðnum könnum veit ég allt um 
Góðar stundir og knús ***
November 6, 2007
Ég gat ekki annað en hugsað í gær þegar ég sá 16 ára yngismey í æfingaakstri með móður sinni. Vá hvað mamma er heppin að það var ekki æfingaakstur þegar ég var 16 ára… shhiiii mamma hefði pottþétt þurft að hætta að vinna til að leyfa mér að rúnta
ég elska að rúnta og hlusta á góða tónlist og geri það oft.
Aldurinn 14-16 snérist um skellinöðruna mína, vinina, skólann, vinna með skólanum og kannski var ég aðeins farin að skoða stráka, voðalega lítið samt 
Aldurinn 16-20 snérist um að RÚNTA 24/7 með vinina, stráka, vinna með skólanum og skólann svona með sko
Daginn sem ég varð 17 ára voru foreldrar mínir í Reykjavík með Eini litla bró í aðgerð. Þetta var martröð fyrir mig og ég var niðurbrotin yfir því að geta ekki rúntað á toyotunni daginn sem ég fengi próf…. hún Slauga mín var nú ekki lengi að leysa þetta litla vandamál. Þann fagra dag 21. maí árið 1990 leigði gellan bara bílaleigubíl undir vinkonu sína… þetta var eðalvagn sem bar nafnið Lada station
þetta var svo geggjaður dagur, göturnar voru mældar aftur og aftur og aftur… bíllinn þéttsetinn allan daginn og hlegið og grínast allan daginn, þetta var BARA GAMAN. Hef mér til efs að Slauga hafi mátt leyfa mér keyra kaggann, með ylvolgt skírteinið við hjartastað
en í þá daga mátti ýmislegt sem ALLS ekki má í dag, heppnar við hehe.
Aftur að æfingaakstrinum, held að börn og foreldrar hafi gott af þessari samveru sem æfingaaksturinn er. Flest unglingavandamál sjást ekki heima hjá sér á þessum árum, ef þau eru heima þá eru þau inni í herberginu sínu með vinunum eða kæró 
Ég er farin að hlakka svo til að rúnta með ungunum mínum, það verður bara gaman. Mér þótti rosalega gaman, en pínu ógnvekjandi samt að vera með Eini á sínum tíma og Báru í æfingaakstri
Laugardagurinn var tekinn með trukki, ja hérna hér, hvaðan fær stúlkukind á mínum aldri alla þessa orku hehe. Var vöknuð um 9 eftir 4 tíma í koju, lærði til hádegis og skellti mér þá í fimleika, já þú last rétt, fimleika. Vorum um 20 kvk á aldrinum 19-53 sem mættum til að djöflast á loftdýnu og trampólínum. Þetta var þvílíkt mikið stuð. Ég var nú ótrúlega brött og lét mig hafa það að gera allt sem fyrir var sett og stóð mig bara helv… vel (þjálfarinn staðfesti það seinna þennan dag, mun seinna hehe) litla lipurtáin er ekkert blávatn
ég skal geta lent á löppunum úr heljarstökki af trampólíni á dýnu í næsta tíma.
Skellti mér svo á ball um kvöldið… sat heima að læra og leiddist alveg ógurlega. Togaði í teit og var eiginlega á leið í bólið þegar ég ákvað að gera mig sæta og fara til Gunnz í einn írskan eðaldrykk. Var nú bara á Víkinni í góðum gír þegar Gunnar kom að sækja klaka, (tíminn var nú að nálgast tvö þá), það væru bara allar birgðir að tæmast á Hótelinu, þvílík væri drykkan og gleðin hehe. Ég gat auðvitað ekki látið það framhjá mér fara, skellti mér með Gunnari í klakaferð og var komin út á dansgólfið 38 sek. eftir að ég steig inn í Hótelið… hitti meira að segja Helgu Guðna frænku mína frá Eskó og tók smá tjútt með henni. Aðrir ættingjar mínir að austan voru farnir í koju, þetta lið er nú ekki skylt mér
Sunnudagurinn byrjaði á SMS-i frá rafvirkjanum mínum: Hunskastu í brækurnar, átt von á pípara til að tjónka við þvottavélina
Var reyndar komin í brækurnar og fór auðvitað í það að útbúa heita salsaídýfu með snakkinu sem rafvirkinn átti að versla fyrir mig. Á meðan ég og Ásgerður gerðum okkur góðar veitingarnar í eldhúsinu með ungunum þremur tók rafvirkinn minn þvottavélina í frumeindir… shhiiii helv… brjóstahaldaraspöngin var auðvitað komin í dæluna
en audda reddaði rafvirkinn minn þessu og kom í kræsingarnar til okkar að lokum. Fékk svo að prófa jeppann sem þau eru að hugsa um að verzla. Ansi hreint lagleg græja og gott að keyra hann - Nissan pathfinder, svartur með alls konar aukastöffi, mátti eiginlega ekkert vera að því að horfa á veginn sko
Litli karlinn minn búinn að vera lazarus síðan á laugardaginn, hann var nú bara sprækur í gær en sofnaði ekki fyrr en rúmlega 3 í nótt, var með einhvern kipp og pirring í öðrum fætinum. Þannig að þegar Maron var farinn í skólann skreið ég aftur upp í til Ægis og við kúrðum okkur LEEEENGI, bara gott.
Jæja best að snúa sér að lærdómnum, klára viðtalið siðan í gær og svo þarf ég að fara að lesa fullt af efni á engilsaxnesku um Downs-heilkenni og Alzheimer, það á svo að verða að ritgerð sjáðu til
jeppseríjepps nóg að gera.
Langar á hjólið, er sko orðið ansi hreint illt í adrenalíninu… ohhhh vetur og kuldi, andsk…
Krúsað knús til þín frá mér ***
E.s. ætla að fara og kaupa mér súkkulaði, ef ég læt það eftir mér er ég ekki sjálfráða samkvæmt siðfræðinni. Að vera sjálfráða er að langa í súkkulaði, en að langa að langa ekki í súkkulaði af því það er óhollt. Þannig að geta staðist það að langa að langa að langa… hehe þá ertu sjálfráða - flókið? Mér finnst það líka, þess vegna ætla ég að halda áfram að vera nautnabelgur og fá mér súkkulaði og annað sem mig langar í
dásamlegt. Enda er að byrja bikarmót hjá mér og af verri endanum í þetta skiptið að mér finnst, svaðalega sykursjúk, er eiginlega bara í sjúklegu ástandi er svo sjúk í margt núna heh.
E.e.s. langt frí í skólanum hjá stubbunum, fim-sun. Svakalega langar mig austur í Úlfinn okkar, setja upp kamínuna með mam og pap. Liggja svo kviknakin fyrir framan eldtungurnar og ylinn með hvítvín þegar gamla settið er farið að hrota - nei segi svona