December 30, 2007

E.s. ++

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 6:22 pm

Hah, vá hvað ég hljóma eins og svartnætti hér að neðan :)
Er ekkert döpur eða í einhverri holu - alls ekki. Hef bara oft verið í meira jólaskapi.
Er búin að eiga yndisleg jól með mínu dásamlega fólki sem ég elska meira en allt annað.
Það er líka hollt og góður eiginleiki að geta sett sig í spor annarra og fundið til samkenndar með sínum nánustu - það er ekki öllum gefið - því miður - punktur

Letihauguinn ætlar í sturtu, úr náttubxunum og elda sér kjúkling á ítalska vísu… uuu fer líklega fyrst úr buxunum og svo í sturtuna - eða kannski bara ekki, hitt gæti bara verið meira skemmtilegt ;)
Hænan bragðast vonandi vel - smá tilraun í gangi :lol: ***

e.e.s. verst að eiga ekki eina rauða til að sötra með ítölsku hænunni… Helgi gætir þú kannski reddað því, eða Slauga mín ;) það yrði auðvitað að vea Rousemount - við viljum ekki of tannínríkt rauðvín… ég sem ekki drekk rauðvín heh, ekki öll vitleysan eins :!:

++

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:14 pm
  • stuðlar að vellíðan
  • fjölþætt varnarverkun
  • bætir meltinguna og kemur jafnvægi á hana
  • mikið mótstöðuafl

Vá hvað ég væri öflug ef ég væri LGG+ jógúrt  ;)

Hef aldrei verið í eins litlu jólaskapi og þessi jólin. Margt sem spilar inn í - persónulegt, vina og tengsla. Svona er víst lífið - upp og niður - ég vildi samt ekki hafa það á annan veg. Þeir sem ekki upplifa lífið á þann hátt eru ekki að njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða - erfiðleika, góða tíma og allt þar á milli.

Er búin að vera svaðalega róleg eitthvað þessi jólin, varla bragðað dropa af áfengi. Mér sem finnst/fannst svo gaman að fara á skrun… Fékk mér aðeins á föstudag fyrir jól… 2 bjóra eftir vinnu á annan dag jóla og svo 2 bjóra til viðbótar þarna einhversstaðar ;) jú og auðvitað eina 3 írska, það er bara partur af programmet hehe.
Planið var að fá mér aðeins í aðra tána í áramótagleðinni hjá gamla settinu, held ég sleppi því bara. Mig langar bara ekkert að detta í það hér í bæ. Ætla reyndar að vera á bar-bak-vakt, ekki mætir maður drukkinn í vinnu… :lol:

Í vinnslu er vinahittingur í Zoraborg í endaðan febrúar, ég ætla að reyna allt sem ég get til að mæta í þá gleði. Það eru nú nokkur ár síðan það var gert síðast, það var yndislegt og verður ekki minna yndislegt núna. Strax farin að hlakka til :)

Úti er þvílíka skítaveðrið, fór í náttbuxur þegar ég vaknaði og er enn í þeim. Algjör letidagur. Búin að lesa slatta og horfa á eina ræmu. Þar var Denzel Washington í aðalhlutverki, ohmen það bókstaflega lekur af manninum kynþokkinn :lol:

Letihaugurinn sendir knús á línuna ***

December 28, 2007

geispa golunni

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:55 pm

Svei mér þá, er búin að vera meira sofandi en vakandi síðustu daga, mikið vakandi samt en hálf sofandi útaf óreglunni. Er algjörlega búin að snúa við sólarhringnum - veit ekki hvort það er dagur eða kvöld núna - niðamyrkur úti!!

Sofnaði átta um morgun eftir að vinna á ballinu annan dag jóla og sofnaði um átta í morgun… hef ekki snúið mér svona algjörlega á rönguna síðan ég var unglingavandamál ;)

Kláraði Postulín, góð bók, maður hefur svo sannarlega gott af því að lesa um elju þessarar stúlku. Fór að skipti hinni Postulínsbókinni sem ég fékk, tók í staðinn bókina: Nítján mínútur eftir Jodi Picoult. Piscoult skrifaði líka bókina: Á ég að gæta systur minnar, sem ég renndi í gegnum rétt fyrir jól - sú bók er ansi mögnuð - ég skældi heil ósköp á endaköflunum, kannski verið eitthvað meirari en venjulega eftir próf og veikindi :) nauðsynlegt að gráta reglulega.

Asnaðist til að kíkja inn á kennslvefinn hjá KHÍ… úff þar voru komin inn ný námskeið og mikið af námsefni - fékk nú bara nettan skjálfta :) annars þarf ég að endurskoða allt 2. janúar, skilst að ég þurfi/verði að taka vettvangsnám næstkomandi misseri. Ég er ekki alveg að sjá það ganga upp :!: Hvernig fer fólk að því að flytja bara að heiman í 6 vikur til að stunda vettvangsnám :?: Ég á tvö börn og er í vinnu að auki og það fleiri en einni. Ætla ekkert að velta mér upp úr þessu fyrr en eftir áramót, vonandi leysist þetta einhvern veginn. Vitið þið um lítinn kofa í Zoraborg eða Akureyri t.d. :) tjalda bara tjaldvagninum mínum og verð í honum í 6 vikur - sé það alveg fyrir mér, kuldaskræfan ég ;)

Fór á pósthúsið áðan og sótti nýju tölvuna mína, frá mér til mín :) ég þoli bara ekki lengur að geta ekki skoðað myndirnar mínar þegar mig langar og verið með alla tónlistina mína á einum stað… átti skjá, mús og lyklaborð. NÝJA GRÆJAN
Lét reyndar bæta við litlum ATA diski til að keyra stýrikerfið, sem er BTW XP, er ekki að höndla það núna að geðvonskast yfir einhverju stýrikerfi sem ég kann ekkert á hehe.

Svo er ferðatölvan mín bara ekki að höndla allt þetta rusl sem ég er með þar…
Þegar ég opnaði eina jólagjöfina í gær varð mér hugsað til allra snúranna sem fylgja hverju tæki fyrir sig, úff þvílíkt magn. Ég er komin með sér skúffu undir þetta allt og hef ekki enn lent í vandræðum en það hlýtur að gerast einn daginn - finn ekki einhverja bráðnauðsynlega snúru til að tengja við rafmagn eða tölvuna mína, það ætti að vera skylda í dag að hafa þetta allt þráðlaust - það væri draumur tækjasjúklingsins ;)
Reyndar eru margar snúrurnar eins - en ég verð alltaf að nota þá réttu hehe - svona er maður sérvitur :roll:
Jæja tölvan kallar, best að koma henni upp úr kassanum, nettengja og skoða :lol: gaman, gaman.

Kvöldmaturinn í dag er heit ídýfa með doritos snakki, mér tókst að flytja útúr ísskápnum og inn í bakaraofninn - þar er heitt og notalegt að vera :lol:
Knús frá þeirri ofurgeispuðu á röngunni ***

December 25, 2007

Ljúft…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:24 am

Ójá ljúfur dagur að baki :D

Svaf út, eða næstum því - þurfti að vakna fyrir hádegi til að borga reikninga fyrir Rafhorn, þorði ekki annað en að stilla klukkun en var auðvitað löngu vöknuð.
Gerði jólagrautinn kláran og skellti honum blessuðum í kælingu í skápinn fram í forstofu, þar var hitastigið pottþétt undir frostmarki - þvílík kuldakompa enda engin kynding þar.

Ég fór með guttana pakkarúnt, fór svo heim að senda út mitt fyrsta rafræna jólakort og klúðraði því :-x meira kjánaprikið. Byrjaði á því að senda gellunum í KHÍ kort og kóperaði svo textann þaðan og við það tók linkurinn rugluna… linkurinn virkaði auðvitað alls ekki. En það hefur verið leiðrétt og sent aftur, ég var sko að vanda mig geggjað mikið og búin að finna fullt af netföngum sem mig vantaði :) þetta gerist ekki aftur…. aldrei að segja aldrei :lol: klúðurkarl.

Skellti mér svo í brúsabað og í jólagallann, alltaf jafn snögg að græja mig - held svei mér þá að ég sé fljótari en margir/flestir/allir kk :D en þeir viðurkenna það auðvitað aldrei!!

Í ár sá ég um sósuna og eftirréttinn, það tókst afburðavel eins og alltaf. Restina sá Siggi um og það klikkaði heldur ekki… fæ vatn í munninn. Maron og Ægir voru alsælir með matinn líka. Er sko búin að fara fimmtán sinnum inn í ísskáp síðan ég kom heim mig langar svo í eitthvað, erfitt að hætta þegar maður er búinn að belgja sig út af svona svaðalegu góðgæti.

Guttarnir voru í skýjunum yfir jólapakkaflóðinu, enda hef ég sjaldan séð annað eins… jahérna hér. Er alveg orðlaus yfir öllu græjudótinu sem ég fékk - en auðvitað himinsæl. Munur að vera að vinna á þrem stöðum, TV-flakkari ef bestu gerð með 500GB hörðum diski frá Rafhorni ehf., digital myndarammi frá Hind ehf. og hvítt, konfekt og grikk-dúkku frá Víkinni - spurning að finna sér fleiri staði til að dreifa starfskröftum mínum :lol:
Takk allir kærlega fyrir mig ***


Maron og Ægir prúðbúnir og afskaplega spenntir að stinga sér á bólakaf í hrúguna.

Horfði á eina ræmu með litla dýrinu þegar við komum heim, Grettir í raun hét hún. Teiknimynd sem var svakalega gott að hrota yfir… þannig að sú stutta er ekki alveg að fara að sofa núna - ætli ég skríði ekki bráðlega í koju og lesi bókina sem ég fékk og langaði í: Postulín, saga Freyju Haraldsdóttur. Hlakka til að lesa hana, fróðleg og hugrökk stelpa. Hef hlustað á fyrirlestur sem hún hélt á þingi hjá Sjónarhóli, þar var mikið af hugrökku fólki - úfff svakalegt sem sumir þurfa að ganga í gegnum.

Gleðileg jólin elskurnar og verið góð við hvort annað - alltaf.
Jólaknúsið frá þeirri stuttu í ár er á sínum stað ***

December 21, 2007

10

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 4:37 pm

Falleg tala, stóra barnið mitt fæddist í þessum pikkuðu fyrir 10 árum síðan. Hann kom í heiminn 16:37, 3110 gr. og 52 sm. Það var nú meiri sælan og er enn :lol:
Til hamingju með daginn elsku Maron minn ***

Skellti mér í Zoraborg í nokkra daga, bara ljúft. Lenti hálf sex á laugardaginn og kíkti aðeins í Kringluna, hefði nú alveg getað sleppt því, var eins og Lísa í Undralandi þarna innan um allt fólkið hehe. Brunaði svo í Grafarvoginn, þar fékk ég knús hægri vinstri - ekki slæmt það. Grundarhúsið leit vel út og þangað á að flytja á morgun, snilld.
Fékk svo meira knús og kjötsúpu í rimlahverfinu, við létum öll eins og við hefðum ekki séð mat í marga daga - þær frænkur/vinkonur og frænkur mínar Dóróthea og Andrea léku á alls oddi, ekkert smá gaman að fylgjast með þeim, þeir elska hvor aðra takmarkalaust.

Þar sem lítið útlit var á þroskuðu KHÍ djammi mætti ég í ítalskt knús og rautt í Ártúnsholtið, smakkaði reyndar bara aðeins á þeim ítalska, kýs frekar íslenskt ;) enda nýbúin að belgja mig út af íslenskri kjötsúpu. Þetta rauða hvarf sko ofaní mig og meira til, bjór, kaffidrykkir og skot. Þar sátum við að sumbli og kjafti ég, Slauga mín og Helgi minn, jeminn hvað það var gaman. Jingle Bells :lol:

Endaði svo óvænt á skralli með Sollu minni, úff ég ætlaði nú ekki að þora inn í bílinn sem sótti mig… við hliðina á Sollu sat 80 kg. Rottweiler hundur - hann Skuggi. Halló sko,hann var ekki nema 25 kg. þyngri en ég og hefði étið mig í 2 bitum ef hann hefði verið svangur. Skellti í mig einum bjór til viðbótar og lét mig hafa það, allt fyrir góðan málstað. Það sem maður getur hlegið og látið eins og kjánaprik :D Takk fyrir þetta dásamlega skrun Solla mín - verður endurtekið takk hehe. Endaði svo í sófanum hjá BF, það var nú búið um mig á 2 stöðum í bænum. Bæði Ártúnsholtinu og Langholtsveginum - ekki illa hugsað um mig - ónei.

Hitti svo Friðdóru mína í léttum hádegisverði á mánudeginum. Vá hvað hún lítur vel út stelpan, verð bara að tjá mig um það. Þær vinkonur mínar, Áslaug og Friðdóra eru fæddar í að ganga með tvíbökur. Ótrúlegar alveg hreint :)

Keyrði heim á miðvikudaginn, merkilegt hvernig heilinn í manni vinnur stundum.. hummmm. Mundi eftir einu bullinu þegar ég keyrði í gegnum Hellu um hálfeitt leytið og sá bíl sem ég kannaðist við… já svona getur maður verið steiktur - iss bara gaman að því.

Búin að liggja algjörlega meðvitundarlaus í bólinu síðan aðfaranótt fimmtudags, varð aftur lasin, ég alveg drullufúl með það en best að ýta því neikvæða frá sér og hleypa því jákvæða og fallega inn :D verð örugglega fljótari að jafna mig. Humarsúpa og notalegheit á Fákaleirunni á eftir í tilefni dagsins, það verður bara ljúft. Best að skreyta sig með einhverju af því sem var verslað í Zoraborg - ekki á hverjum degi sem Emmsinn minn á afmæli.

Knús frá lazarus sem á litla dýrið hann Ægi og afmælisstrákinn Maron,
er allavega með þá í láni - sérstaklega heppin með það ***

December 15, 2007

útkall F-rauður

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:50 am

Jahá var að koma úr neyðarútkalli - allt brjálað á barnum og endaði einmitt þannig. Afskaplega skemmtilegt þegar fólk fer út að skemmta sér og eyðileggur kvöldið fyrir sjálfum sér og öllum öðrum, vá þá er betra heima setið. Ætla rétt að vona að yfir mig komi aldrei þörf fyrir að lemja aðra manneskju. Það hefur reyndar gerzt tvisvar sinnum síðasta árið… en lét það nú ekki eftir mér hehe - ekki alvarlegra en það.
Best að taka úr þvottavélinni (hljóp út á 4 mínútum áðan, nýkomin úr sjóðandi heitri sturtunni og vélin var ekki búin) jarðarför í fyrramálið, ætla að kveðja Kúdda karlinn og fara svo í smá ferðalag.

Fékk þessa líka fallegu 9 í aðferðafræðiprófinu - það kom skemmtilega á óvart verð ég að segja. Var búin að vera lasin í 4 daga þegar prófið var og gekk ekkert svakalega vel að einbeita mér að lærdómnum - en eins og oft/stundum/alltaf þá kann maður meira en maður heldur… hver er þessi maður?? líklega ég :lol:

Knús elskurnar og endilega hafið samband ef ykkur langar í knús
í beinni í Zoraborg *** litla lipurtáin er farin í koju - þó fyrr hefði verið.

December 12, 2007

þeir hæfustu lifa

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 12:12 pm

Ég er ein af þeim ;)

Hef nú sjaldan lent í annarri eins steypuvinnu og síðustu vikur hafa verið.
Vinna fyrir hádegi, læra eftir hádegi og langt fram á nótt, hugsa um heimilið og stubbana, svo aukavinnan Hind ehf og Víkin… Mest pirrandi að hafa VSK 5. desember, það er bara versti dagur ever þegar maður er í skóla/prófum :-x
Var með allt nið´rum mig á tímabili en það hafðist eins og alltaf.
Veit eiginlega ekkert hvernig mér gekk í prófunum, var sárlasin að reyna að læra og mætti í prófin þannig líka… að auki var stórbikarmót hjá mér - ekki mjög heppilegt ástand á stelpunni fyrir prófbraz. Aðallega var það hausverkurinn sem var að gera mér lífið leitt.

Er að reyna að verða ekki eins og sprungin blaðra, má ekkert vera að því.
Er sem sagt komin í jólafrí frá skólanum sem tók gildi á mánudaginn um 1800 ef ég man rétt, þá skilaði ég 23 bls. ritgerð frá okkur stöllum, mér og Hildi í siðfræði.
Vá hvað mig langað að gera eitthvað flippað, það er svo gott að fá útrás. Veit alveg hvað var efst á óskalistanum en því verður ekki póstað hér :lol:

Smá tölfræði:
2007, 9. maí - próflok - rakaði af mér hárið - það var rösh.
1997, 9. maí - fékk staðfestingu á því að ég væri ófrísk að frumburðinum - alsæla.
1987, 9. maí - laugardagur - örugglega að hanga með vinunum, hehe
2017, 9. maí - skyldi maður verða til frásagnar!!

Annars var Ægir kominn með upp í kok af þessum lærdómi mínum, get sagt það sama um mig. En við áttum saman góðan dag í gær, hlustuðum á jóla-Ladda og settum upp nokkur ljós og skraut :) Emmsanum mínum er nokk sama, honum leiðist ALDREI :D

Er að bryðja eitthvað dóp frá Birni brandarakarli lækni, úfff mér er svo flökurt af þessu helvíti, breytir engu hvaða taktík ég nota, södd - svöng - nývöknuð - ekki nývöknuð - brauð - ávextir - sælgæti - alltaf sama velgjan. Fegin að hafa ekki verið með slíka ógleði þegar ég gekk með ungana mína.. ójá. Bara 22 pillur eftir - æl.
Fyrsti sveinninn kom í nótt, einhver staurfótur ef ég man rétt.
Við fengum öll í skóinn, enda þæg með eindæmum ;)
Persónulega finnst mér miklu auðveldara að vera Grýla en jólasveinn :lol:

Jæja heim að baka, afmæli hjá Maroni mínum seinna í dag, jólasamvera hjá Ægi mínum seinna í dag, tónleikar hjá MS á morgun… engin lognmolla framundan - ónei mikið meira en nóg að gera. Ætla nú samt að eiga notalegan hádegisverð með nýbökuðu brauði, pestó og lesa blöðin - hlakka til - bretta svo upp ermar, enga leti stelpa :D
Grýla - over and out ***

December 7, 2007

Snillingarnir mínir =O)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:03 am

Ég á tvö stykki sem ég kýs að kalla snillinga öðru hvoru. Þeir eru það auðvitað alltaf, enda synir mínir ;)

Hitti Maron örskamma stund í dag, sótti bækur til hans til að skila á bókasafnið. Held að þar hafi ekki verið neinar unglingavandamála bækur í þetta skiptið, eins og um holdris Berts í dagbókum Berst… say no more. Gæsahúðarbækur voru þarna og jú Hugleikur Dagsson :-? hann er ekki fyrir börn - alls ekki - en erfitt að byrgja brunninn þegar barnið….
Ég mætti á svæðið í nýrri peysu - jújú nú verðum við skreyttar eins og jólatré á barnum - auglýsingar hægri vinstri. Viking og Coca-Cola. Á peysunni er einmitt Coca-Cola merki og nafnið mitt sem mun vera Lilja (fallegt nafn). Maron sagði eftir smá knús, bíddu ertu komin með nýja vinnu?? já sagði ég, er að fara að vinna sem jólasveinn fyrir Coke… hehe mér fannst þetta ógizzlega fyndið en Maroni ekki eins. Ég skil alveg hvað hann var að spá… ég á eina peysu sem er merkt mér - aftur er það nafnið Lilja (fallegt nafn) og svo er það Rafhorn. Þar sem sú peysa er merkt vinnunni minni (ein af þremur) og mér þá var nærtækast að álykta sem svo að ég væri komin með nýja vinnu > ný peysa merkt mér: Lilja (fallegt nafn) og Coke logoið :) snillingur eins og ég.

Ég hef svaðalega gaman að orðum og hnyttni, get hugsað og spáð í slíkum hlutum lengi og lesið sama orðið oft ef það fellur að bragðlaukum mínum ;) just call me crazy, used to it.
Allavega fékk eitt vel notað orð alveg nýja merkingu í skallanum á mér áðan… jú það er nú oft talað um að fara í átak og svona, komast í kjólinn fyrir jólin og eitthvað slíkt. Þegar ég var að spjalla við hana Viktoríu mína áðan þá varð mér hugsað til orðsins: nammipása. Hver er merkingin á bakvið það orð!! Nammipása - jú líklega er það að pása sig aðeins í namminu er það ekki? Þegar ég sat og pikkaði og týndi upp í mig eitthvað Daim-kurl þá datt mér í hug að lærdómurinn síðustu vikur væri búinn að einkennast af nammipásu :lol: jamms, þegar ég þarf að hugsa eða er að missa vitið þá gúffa ég í mig gotterí af ýmsu tagi > nammipása fékk þarna alveg nýja merkingu. Sem sagt að pása sig frá náminu og belgja sig út af kruðeríi í leiðinni - alveg dásamlegt ;)
Verði ykkur að góðu og ætli það verði ekki bara annað sætt knús í boðinu ***

December 6, 2007

Höfuðverkur

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 10:44 am

Vaknaði í morgun með þann versta hausverk sem ég hef fengið :? ja næstum því, einu sinni verri. Rétt komst inn á bað til að finna eins og eina pillu við mígreni, vissi samt að þetta var ekkert mígreni. Helv… ennis- og kinnbeinsholurnar stíflaðar :-x nenni ekki að standa í þessu bulli núna - má bara EKKERT vera að því :lol: busy lady sko.

Kannski var þetta af því að ég var að lesa um taugasjúkdóma í gær og þar á meðal eru höfuðverkir í ýmsu formi - kannski var þetta af því að ég get ekki pikkað höfuðverkur rétt inn nema vanda mig svakalega, fór yfir glósurnar í gær og held að höfuðverkur hafi verið 7 sinnum skrifað höfðuverk - fékk kannski þennan fína hausverk út af því… en allavega, á símatíma hjá doksa og ætla að grenja út pensilín - eins og ég sagði má EKKERT vera að þessu.

HUGE próf á morgun - væri sko komin í spennitreyju ef ég væri einhvern tímann með vott af prófskrekk/kvíða - en málið er það að ég er svo vitlaus að ég get platað sjálfa mig - ef það eru farin að fljúga einhver fiðrildi í mallakút þá bara veiði ég þau og hleypi þeim út um gluggann ;) snedig, ja ikke. Svo þarf ég að skila verkefni á föstudaginn sem ég er ekki byrjuð á og byrja ekki á fyrr en eftir prófið… vinna svo á Víkinni um kvöldið frá 23-0400 í það minnsta. Vinna aftur á laugardaginn, frá 1700-0600 líklega. Síðast en ekki síst eru skil á lítilli 20 bls. ritgerð á mánudaginn. Úff þvílík steypuvinna framundan… ennnn svo er þetta búið og hundur má ég heita ef ég fer ekki í Zorann og tek ærlegt afslappelsi - voff.

Mig langar svvooooo að komast í bæinn á laugardeginum og taka gott skrenz, hef nú bara varla bragðað dropa síðan hér um helv… viðbjóðslegu helgina fyrir mánuði síðan. Solla sæta ætlar allavega að halda upp á próflokin þá helgi, það yrði nú ekki erfitt að plata fleiri þroskaðar í fjörið ;) Ef ekki þá er það í góðu lagi - verzla þá bara meira :lol: ekki er það gefins að skrenza í Zoraborg.

Ohhh hvað það verður gaman að sjá litlu ungana í Ártúnsholtinu og litla dýrið hana Dórótheu… hún er snillingur. Ummm og að knúsa BF ussusss. Hún er að fá afhent í Grafarvoginum á morgun - dí hvað það verður gaman að skoða meyjarskemmuna mína, jújú ég frænkinn sjálfur fæ sér afdrep í risinu :D svo ég tali nú ekki um pottateitið sem verður þegar ég kem í gistingu í janúar… get ekki beðið ;) nakin í pottinum með hvítvín og snjór yfir öllu - búa nokkuð margir í Grafarvoginum?? :lol:

Fjandans trommuleikararnir farnir að spila þetta fína sóló í hausnum á mér aftur. Farin að keyra út reikninga og láta laga afturdekkið farþega megin. Það eru svo góð bílastæði hjá Hafnarskóla að ég brussaðist á einn kant eða svo og líklega hefur dekkið marist oggu pons, allavega lekur úr því en svaðalega hægt - en nóg til þess að jólabónusinn fer að hluta í það - alltaf einhver tjón, það er svo sem í lagi á meðan það eru bara bílar og annað rusl. Farin að sakna stubbanna minna ógurlega, en samt gott að fá frið til að læra - það er ekki bæði haldið og sleppt - ónei.

Knús kútur ***

December 4, 2007

Kertaljós og kósý

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:22 pm

Mætti í fyrsta prófið í morgun. Búin að vera drulluslöpp síðustu 3 sólarhringa, alveg hreint ansi fúl með það, en það stoðar lítið að grenja.

Það var ekkert smá huggó hjá henni Röggu í prófinu, kertaljós á hverju borði og stórt kerti á kennaraborðinu - ekki hef ég gefið mér tíma til að kveikja á kerti, þori því nú bara eiginlega ekki. Ómögulegt að búa svona á tveimur hæðum. Það munaði þó minnstu að ég myndi kveikja í pappírunum sem fylgdu prófinu :lol: alls konar formúlur og töflur - það hefði nú sett adrenalínið í gang að þurfa að standa í slökkvistörfum í miðju prófi hehe.

Held ég hafi klárað prófið með sóma ennnn veit um nokkrar villur, en sumt getur maður bara ekki komið inn í hausinn á sér og ekkert við því að gera nema brosa að öllu hinu sem er í langtímaminninu :)

Er enn hálfgerður lazarus, hnerrandi og skjálfandi úr kulda, snjór yfir öllu og kominn einhver suddi úti, oj. Ætla aðeins undir sæng að hlýja mér og klára eðalbókina sem ég er að lesa…
Því næst tekur við lestrarmaraþon númer 2 og það er sko maraþon með meiru, úff mig sundlar við að hugsa um allt lesefnið :roll:

Kveð að sinni úr lærdómsklefanum í Garðinum ***

E.s. jólahlabbinn á Smyrla var geggjaður - en ég lasin og naut mín ekki alveg 100%