February 29, 2008

ertu kjúklingur eða ekki!!

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:19 pm

Ég er engin kveif og þarf enga sönnun þess eðlis, en þegar ég sá silfurskottu trítla í rúminu mínu aðfaranótt þriðjudags þá kreisti ég rasskinnarnar aðeins fastar saman en venjulega hehe og ákvað að sofa í náttbuxum þá nóttina…. fann svo aðra næsta kvöld á eftir - ekki bólfélagar mér að skapi verð ég að segja :roll:

Fór á heilsugæsluna í gær í strepptakokka test, grunaði helv… kokkana þegar hitinn í mér rauk upp úr öllu í fyrradag, greining mín var rétt og ég farin að bryðja sýklalyf. Er enn drulluslöpp og þessi bévítans pest algjörlega búin að rústa skipulaginu mínu, ég sem skipulegg næstum aldrei neitt :) planið var nú samt að læra HUGE mikið í þessari viku sem er að enda komin, hef ekki gert það. Einnig ætlaði ég að vera ýkt dugleg að vinna á Víkinni um helgina og safna mér pening fyrir komandi staðlotu í skólanum… af því verður örugglega ekki. Eins og hausinn á mér hefur verið þá hef ég nákvæmlega ekkert að gera á Víkina í hávaðann sem verður þar… enda blúshátíð þessa helgi, verð heima að læra í staðinn - spennandi helgi framundan hjá þeirri stuttu ;)

Fór að vinna áðan. Varð að gera launin, vá hvað ég var treg hehe… ekki gott að hugsa svona mikið með hita og hausverk, vona að strákarnir þurfi ekki að kvarta mikið :o

Langar mest út í góðan göngutúr, helst út í sveit og upp einhverja hlíðina. Snjór yfir öllu og blankalogn, bara yndislegt. Held ég haldi mig heima svo mér batni hratt og örugglega og taki eins og eina lærdómsbók í hönd og byrji að lesa, snilldar hugmynd en ekki eins endurnærandi og hin :)

Ætla að skutla ormunum mínum á Hótelið á eftir á blúsdjamm, tónleikar frá 16-18 og þeir ætla sko ekki að missa af því, Ægi fannst mest gaman að horfa á Hammondspilarann í gær og Maroni á gítarleikarann… ég hefði pottþétt horft á bassaleikarann ;) hehe

Segi bara góða helgi og verið stillt og góð við hvort annað ***

February 27, 2008

Lazarus

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 6:45 pm

Ohhh þoli ekki að vera lasin… var með tæplega 40°c í dag og ískalt og sjóðandi heitt til skiptis :-x ég get svo svarið það að ég svitnaði eins og 200kg gylta á tímabili í nótt og í dag…. úfff.

Ætlaði að byrja á verkefni í fötlunarfræði í gær og taka svo trukkið á sálfræðina áður en staðlotan er í skólanum. Er ekki að sjá að ég hafi orku í staðlotunni til að læra eftir að sitja á skólabekk frá hálf níu til 1600 eða eitthvað álíka… en mér sýnist að það verði raunin með þessu áframhaldi þar sem skilin eru mánudag eftir lotuna - vá hvað ég er ósátt við þessa dagsetningu… það tekur mig nú bara næstum 2 heila daga að koma mér á milli Hafnar og Zoraborgar… eða þannig þeir dagar nýtast ekki í mikið meira en keyrsluna.

Hafði ekki orku til að læra og fór því að skoða gamlar myndir af gormunum mínum. Fann árið 2003 óvænt á ferðavélinni og ákvað að setja skella upp einni síðu af Ægi mínum frá apríl og til septemberloka árið 2003… þetta er bara snilld ;)
Linkur: Ægir kjútness

Tvíbökurnar hjá Áslaugu minni og Helga eru 1 árs í dag… ótrúlegt en satt. Til hamingju með daginn Olga Júlía og Óskar Þór.
Svo á litli (stóri) bró afmæli á morgun, 19 ára töffarinn… sem þýðir að það eru 19 ár síðan ég var sweet sixteen :)

Knús frá lazarus ***

February 21, 2008

Geggjuð blíða =O)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 10:39 am

Hver hefði trúað því að sú stutta gæti haldið sér saman í tæpa tvo mánuði!! Ekki hún sjálf svo mikið er víst, alltaf að koma sjálfri mér á óvart, sem er bara skemmtilegt ;) mér leiðist ekki á meðan.

Búin að gera margt og mikið síðan 1. janúar eins og gefur að skilja… ég og Ægir höfum verið mikið úti að dúlla okkur, skauta aðallega :) er að hugsa um að bjóða honum með mér upp skarðið í dag, veðrið er bara dásamlegt, frost, sól og stilla…. enginn snjór reyndar sem er nú alltaf plús í svona blíðu. Maron er innipúki sem fyrr og alltaf með fullt hús af vinum likt og Ægir. Afar hentugt að búa á tveimur hæðum, svo ekki sé meira sagt.

Skrapp í höfuðborgina síðustu helgi til að fara á skíði hehe… vissi reyndar þegar ég fór úr sveitasælunni að það yrði ekkert skíðaveður, rigning því miður… helgin var því nokkuð róleg og bara tekið kúrið á þetta ;)

Föstudagurinn fór í smá búðarrölt og vinnustaðaheimsóknir. Um kvöldið var matur hjá Bjöggu fyrst og svo hjá Áslaugu (jájá græðgin alveg að drepa mig), verð ekki hungurmorða ef ég ætla að halda viðteknum hætti og kíkja á Áslaugu og Helga á fös.kvöldum… þá er matur seint og rautt með, dásamlegt. Fékk svo klippingu í eftirrétt hjá Slaugu minni.
Kvöldið endaði á ljúfu nótunum ;)

Laugardagurinn fór að mestu í leti, enda ekta náttfatakúrísófaveður… við Dóróthea bóla frænka lékum okkur og dönsuðum slatta þann daginn, þú ert yndisleg þarna litla skott.
Við Bjögga komum okkur þó út úr húsi og versluðum í matinn og svona. Sissa vinkona BF kom svo í mat um kvöldið (Óli eldaði dýrindis súpu handa okkur) og mikið kjaftað, borðað og drukkið (sumir drukku þó meira en aðrir :o ræskj)
Ég kíkti aðeins niður í bæ með Slaugu minni, Helga og Æsu, bara gaman. Þrátt fyrir hagstæða tunglstöðu var fólk eitthvað þyrst þetta kvöld og ég fór snemma heim :) hehe…. say no more… (ég var ekki í þyrsta hópnum ;) )

Risaknús til allra sem skemmtu mér þessa helgina, þið eruð bezt ***

Nú fer ég að drukkna í lærdómi á ný, það styttist í staðlotuna í mars og ég þarf að gera SLATTA í poka áður en að henni kemur. Svo eru það páskarnir þar á eftir með tilheyrandi skíðaferð og gleði…. alltaf nóg að gera hjá okkur í Óláta-Garði.