March 31, 2008

Fræðsla!!

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:16 pm

Veita fólki sem er að skilja fræðslu um það hvernig best er að standa að skilnaði svo börnin verði fyrir minnstu áfalli. Jú þetta er falleg hugmynd en upphaf að mörgum skilnuðum er nánast sama dag og annað foreldrið pakkar niður og flytur út!! Þá er ég ekki að tala um undafara sem fer yfirleitt fram milli foreldranna ekki barna og foreldra.

Ég er á þeirri skoðun að fullorðið fólk búi yfir skynsemi varðandi þessa hluti eða ekki. Að segja börnum frá skilnaði og annað foreldrið flytur út sama dag er mjög slæmt fyrir börnin og einnig það að mamma eða pabbi eru komin með annann maka í rúmið sama dag eða daginn eftir. Það eru þessi tvö atriði sem eru þeim erfiðastir samkvæmt einhverjum fjölskyldu sálfræðingi að mig minnir.

Sem betur fer bý ég yfir mikilli skynsemi hvað suma hluti varðar. Einnig hafði ég bæði kjark og þor til þess að vinna úr mínum málum þannig að ungarnir mínir hlytu sem minnstan skaða af, þetta er aldrei auðvelt alveg sama hvoru megin borðsins maður stendur.

Þetta með föður- og móðurfólk barna, ömmur og afar minna barna mega fá þá lánaða þegar þeim hentar, hvenær sem er - skiptir þá engu í hvora áttina það er, ef þeir eru ekki uppteknir við annað :) Börn eru börn og jú það þarf að hjálpa þeim að halda sambandi. Þau eru mjög upptekin af vinahópum sínum lengi vel og átta sig kannski ekki á sambands slitum fyrr en löngu síðar. Þeir sem standa næst barninu eiga að teljast fullorðin og því í þeirra höndum að rækta sambandið, hvort sem það er mamman, pabbinn, ömmur, afar, frænkur eða frændur, það er svo einfalt. Ekki er hægt að leggja alla þá vinnu á þann sem er mest með barnið, þar verða fleiri að koma að og sýna lit.

Lykilatriði er að foreldrar barnsins sýni þann þroska að baknaga ekki hvort annað við börnin. Úff hvað það er sorglegt, ekki er það sök barnsins að foreldrar þess geta ekki búið undir sama þaki. Held að þetta sé því miður oft orsök þess að börn vilja ekki eiga samskipti við annað foreldri sitt.

Linkur á frétt sem vakti athygli mína og ástæða þessara skrifa minna: Skilja við ömmu og afa

Ekki geyma til morguns það sem þig lagnar að gera í dag… lífið er of hverfult til þess.
Knús frá mér ***

March 26, 2008

Draumur í dós =O)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:40 pm

Það var bara erfitt að rífa sig upp og fara heim eftir dásemdar lífið í Úlfsstaðaskóginum.
Fríið einkenndist af leti við arineld, góðan mat, góðan félagsskap og skíðaferðir :D
Toppurinn var að hitta hana Rönku mína og Hörð - dásamlegt alveg hreint, stutt en gott.
Gestrisnin hjá henni Elsu frænku klikkar heldur ekki, vorum þar eina nótt í gífurlegu dekstri… tóm hamingja þessir páskar.

Frábær vika með guttunum sem stóðu sig eins og hetjur á skíðunum, höfðu allavega meiri orku en ég - aðeins munur á brekkunum sem við vorum að renna okkur í reyndar.


Maron og Ægir á toppnum =O)

Ægir að stökkva - flottur gutti - & he’s mine :)

Sú stutta gaf sér tíma til að stoppa á leiðinni niður úr
efri lyftunni og taka mynd af dýrðinni, frábær dagur.

Ég og Nína efst í neðri lyftunni að búa okkur undir að bruna niður,
bongóblíða í fjallinu þennan daginn… yndislegt.

Dekur við arininn, rautt í glasi og mikil leti í gangi :)

Neyddist til að punga út aur fyrir nýjum dekkjum undir eðalkerruna mína, það var frekar fúlt. Fattaði svo í dag að ég á inni laun hjá Hind ehf, fór og innheimti þau :)
Til að toppa restina á páskaeggjaátinu verzlaði ég mér mótorhjól í morgun, seldi kettlinginn fyrir páska og leið hreint ekki vel að eiga ekki hjól til að grípa í hehe…. þarf að komast til Reykjavíkur og rúnta aðeis áður en ég sendi það austur.

Hefði kosið aðeins öðruvísi útlit en það er ekki hægt að fá allt. Gengið síðustu daga býður upp á mikla hækkun á hjólum næstu vikur, ætla að sleppa við það og skellti mér á þennan grip. Ætlaði að versla allt annað hjól en Kalli var ekki lengi að plata þessu hjóli upp á mig, góður sölumaður hann ;)


Yamaha V STAR Custom 650cc - 2006 árgerð - & it’s mine :)

Djö… er ég ánægð með mig og ansi hreint montin líka…
Megið alveg óska mér til hamingju ;)
Krúsað knús til þín frá mér ***

March 16, 2008

Gerist ekki betra…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 8:00 pm

en dagurinn í dag, átti nefnilega að vera heima að læra :roll: :D

Sú stutta komin með hjálminn og á leið í smá ferðalag - með allt í botni ;) ussusss dásamlega gaman.


Rokin út í buskann - Borgarhafnarheiði stendur alltaf fyrir sínu. Allt notað sem runnið gat þennan daginn, þotur og sleðar :D


Upp og niður alla hóla og hæðir :)

Á fullu ferðinni - get ómögulega setið á rassinum þegar ég er að keyra sleða…


Jæja Friðrik, nú skal Lilja kenna þér að renna á sleða HRATT HRAÐAR… ;)

Þröngt mega sáttir sitja. Snjósleðinn notaður í það að sækja mannskapinn sem renndi sér niður í gríð og erg, ungir sem minna ungir hehe.


Svona á að gera þetta Jana og bruna svo niður brekkuna…. ;) eins hratt og druslan kemst… OK

Eins og sést var glampandi sól og blankalogn, rjóð í kinnum og alsæl Lilja sem situr hér að læra…. Takk fyrir frábæran dag öll 8 sem voruð í þotuliðinu þennan daginn… næstum því ár síðan ég fór næstum því upp á Hvannadalshnúk á sleða og jeppa, tími til kominn að fá smá kikk :)

Bókaormurinn kveður að sinni og sendir knús ***

March 7, 2008

snjór og lærdómur

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 1:53 pm

Mér finnst snjórinn nú skemmtilegri en lærdómur :) langar út að leika :D

Sat í gærkvöldi að lesa sálfræði við kertaljós og hálfgerður bylur úti, það var bara ljúft. Veit ekki hversu hollt það er að lesa hvað bíður mín næstkomandi ár, þ.e. breytingar bæði líkamlega og andlega hehe. Sexless, diseased, depressed… og eitthvað fleira spennandi ;)

Það eru skaflar um allt og veðrið hreint út sagt geggjað, ef ungarnir eiga ekki eftir að tapa sér í snjóhúsagerð í dag þá veit ég ekki hvað…. ussss bara gaman og mig langar að vera með. Ég aftur þarf að sitja inni og læra - maraþonið er í gangi og verður þar til ég þarf að druslast út í bíl og keyra tæpa 500 km til að komast á skólabekk - það sem maður leggur á sig fyrir námið hehe.

Ægir er enn heima, hann er nú allur að koma til og ég býst nú við því að hleypa honum aðeins út í dag, það er bara ekki annað hægt, barnið búið að hanga inni síðan á mánudag - vona bara að kennarinn hans sjái hann ekki :o ég reif út honum eina framtönn í efri góm í gærkveldi, hann er x-F mæltur og gengur undir nafninu Tannlaus hf ;) ohhh hann er svo sætur svona tannlaus.

Lenti í slagsmálum í fyrrinótt - græddi sprungna og marða vör í þeirri baráttu :) Hann Ægir minn er búinn að vera með þvílíka tremmann á nóttunni og liggur ekki kyrr í eina mínútu og kýldi mömmu sína svona verklega á kjaftinn - úff og svo hrotar hann eins og flóðhestur þessi elska. Ég var næstum búin að kýla hann til baka hehe, mér brá svo enda steinsofandi. Slapp við barsmíðar í nótt ;) hefði mátt sofna fyrr… 4 er pínu seint fyrir minn smekk.

Jæja bezt að hafa sig í steypuvinnuna og setja í rallígírinn, ekki veitir af :)
Knús frá mér á línuna og góða helgi ***

March 5, 2008

..hættu að telja…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 7:33 am

Mamma á afmæli í dag þessi elska.
Býst ekki við öðru en stanslausri gleði og glaum í tilefni dagsins.
Matarboð í kveld og kósýheit - ummm hlakka til.

Það er svo bjart úti - ótrúlegt, hér birtir um 1 klst fyrr en í Höfðaborg, miðað við hvenær ég þarf að vakna þegar ég fer þangað verður líklega kolsvarta myrkur þegar klukkan hringir… oj.

Litli karlinn enn lasinn, ætla að mæta í vinnu þegar hann vaknar þessi elska, hann er svo duglegur þó hann sé nú meiri mömmustrákur en sá stóri :) hringir reglulega að ath hvenær ég ætli að koma heim. Maron myndi athuga með mig vikulega :D pappírs pésinn.

Þegar Maron er farinn í skólann ætla ég að kúra aðeins í Ægi… hann hrotar eins og 200kg flóðhestur þessa dagana, ekki mjög svefnvænlegt umhverfi að sofa hjá honum hehe, fyrir utan allt bullið sem hann þarf að segja og snúa sér 77 sinnum. Enda er ég drullusyfjuð þrátt fyrir sms frá Viktoríu minni í morgunsárið sem voru adrenalín skilaboð svo ekki sé meira sagt :roll:

Maraþon lærdómur að byrja í dag og næstu daga, ætla ekki að læra eftir skóla í staðlotunni - punktur
Farið varlega og knús í morgunsárið frá mér ***

March 3, 2008

Jææææja…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 6:15 pm

Ég er auðvitað dugleguzt, ég efaðist aldrei um það :)

Er að verða búin með ritgerðina í fötlunarfræðinni og þá er bara að skella sér í sálfræðina, erum reyndar þrjár þar, þannig að ekki get ég bara anað af stað eins og herforingi og spólað yfir félaga mína… eða hvað!

Litli karlinn minn varð lasinn í gærkvöldi, ældi og spúði í morgun og er svo kominn með háan hita núna… úff ég finn til með honum. Maron kom heim um hálf tólf, eitthvað slappur að sögn en sagðist svo vera með fóbíu fyrir pappír… hann lagði til að fá tíma hjá dr. Phil til að losna við hana - hahaha þessi drengur er alveg frábær :) en svei mér þá held ég hafi verið svona sem krakki, mundi það þegar hann fór að tala um þetta pappírs pésinn minn :)

Ég tókst á við mitt vandamál (hehe) og vinn sem brjálaður bókari og svo er ég með pappíra í höndunum allan daginn við lærdóminn, engin þörf á dr. Phil - enda leiðist mér hann sem karlgervingur af Oprah Winfrey :roll:

Er alvarlega að hugsa um að læra ekki í kvöld - þyrfti reyndar bara að pá pössun og skreppa aðeins í pappírana hjá Rafhorni og Hind… alltaf ves að þurfa að vera heima þegar ég er að fara að bregða mér af bæ í nokkra daga, nægur er pappírinn fyrir og enginn vinnur verkin mín þó mig vanti.

Annars er ég bara kát en samt pínu döpur, veit af hverju en er ekki alveg að skilja það og sjáfa mig, það lagast á morgun. Mig langar reyndar MIKIÐ að fara að komast almennilega út… ferlegt að hanga heima veik og svo taka ungarnir við - ávísun á spennitreyju ef þið spyrjið mig ;)

Hún Olga amma mín hefði orðið 85 ára í dag.
Mammslan mín á afmæli eftir 2 daga - vona að afmælisgjöfin verði komin :)
Nóg að gera í afmælum þessa dagana og þetta árið - mikið um svona “5″ afmæli ;)

Bezt að setja ljúfa tóna í spilarann og elda handa okkur Maroni pappírs pésa :D

Knús til þín frá mér ***

March 2, 2008

einbeiting - hvað er það!

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:06 pm

Held ég sé með fiðrildi í hausnum, get ekki einbeitt mér og það er að gera mig :-x
En eftir þennan létta pistil ætla ég að taka mér tak og koma einhverju á blað fyrir fötlunarfræðina… er reyndar búin að gera grind og inngang, búin að lesa slatta líka - ekki alslæmt ástandið.

Fór í gær upp á hótel með ormana mína að hlusta á Emil & the Ecstatics. Vá það er svo dásamlega gaman að horfa á þá, þeir eru svo í sínum eigin heimi og… já bara yndislegt að fylgjast með þeim. Bassaleikarinn er mitt uppáhald - hann er bara snillingur, eins og hann lætur og gólandi öðru hvoru :) Ég var svona eins og þegar ég er að horfa á skíðaíþróttir, held niðr’í mér andanum og gjörsamlega heilluð :) Fékk svo að gefa þeim að borða á Víkinni um kvöldið - ekki leiðinlegt. Djammaði nú vel með þeim fyrir tveimur árum. Er svo róleg í djamminu þessar vikurnar að ég er farin að halda að það sé bara eitthvað að mér hehe.

Skreið í sófakúr í gærkveldi og byrjaði að horfa á eina mynd, klára hana síðar. Hún var um konu sem er með spilafíkn… úff hvað ég held að það sé hræðilegt að vera með einhverja fíkn, alveg sama hverja. Það er mikið laumuspil í kringum þær og lygavefurinn gríðarlegur, lygin er ekki bara sjálfsblekking heldur særandi fyrir aðstandendur. (hehe er búin með SLATTA af sálfræði kúrsum - pantið bara tíma ef þið viljið góð eyru). Feluleikurinn er gríðarlegur, þeir sem drekka gera það í laumi, þeir sem borða gera það í laumi, þeir sem eru að dópa og pillast gera það yfirleitt ekki hvar og hvenær sem er.

Ég er stundum algjör óhemja þegar mig langar í eitthvað og jú yfirleitt læt ég það eftir mér… best að koma bara hreint fram hehe. Veit ekki hvað ég borða oft í mánuði heita salsaídýfu og doritos snakk, svo er það nammipokinn reglulega og saltstangir og ídýfa. Þegar þessi þörf kemur yfir mig þá er ég bara ekki í rónni fyrr en henni er fullnægt, nánast allavega. Spáið í því ef maður væri svona á hverjum degi varðandi eitthvað sem er nú ekki eins saklaust og þetta… sígó, áfengi, matur, dóp, pillur…

Guði sé lof fyrir það að ég er bara fíkill nokkra daga í mánuði, einn slíkur var í gær úpps og fyrradag ;) þegar ég er búin að vera lasin þá bara verð ég að bæta mér það upp og það hratt… mig vantar yfirleitt fitu. Byrjaði á heitu ídýfunni sem er bara með 36% feitum rjómaosti + fitan í snakkinu. Gerði svo kjúklingarétt með rjóma (nota nánast aldrei rjóma í mat) Í gær var ég svo að vinna á Víkinni og þar var lamb í boði… ummm hvað fitan af því var góð ahhhhh, svo í gærkvöldi endaði ég kvöldið á saltstöngum og ídýfu… já held að ég sé búin að fylla á fitubirgðirnar aftur ;) allavega var morgun/hédegismaturinn melóna og abt mjólk fyrir mallann út af dópinu frá dr. Fjölni. Engin leyndarmál hjá mér og ísskápnum :D

Jæja fituspæjan er farin að læra, held ég verði að fá mér saltstangir til að halda mér við efnið hehe, dagur þrjú kæri sáli :-o   ***