April 27, 2008
Baðst undan vinnu á barnum um helgina vegna anna í náminu og öllu öðru… pjúff.
Var búin að sitja í lopasokkum og náttbrók og læra í ALLAN gærdag og kíkti því aðeins í spjall til Gunnu á Víkina sem endaði klukkan hálfsjö í morgun… meira ruglið hehe. En svaðalega var gaman, jahérnahér, hef ekki hlegið svona mikið síðan 1930 þá um haustið á Allsherjarþingi Biker-chicks
Þannig að sú stutta er aðeins geispuð núna og betra að fara að hafa sig í lærdóminn að nýju.
Er að vinna að síðasta verkefni þessarar annar og svo tekur við próflestur, úgggg mér finnst það svakalega fjarlægt eitthvað og var sko ekki búin að gleyma hvað það er erfitt að sitja á þessum árstíma og læra. Vá ég þarf sko að beita mig hörku og heraga. Nota smá kænsku líka… hvað skyldi það vera, jú ísskápurinn minn
Náði Boggu og Gunna á rúntinn með mér á sumardaginn fyrsta, ég og Bogga skeindum og pússuðum hjólin fyrir krúsið. Þetta var BARA gaman
tókum nokkra góða hringi, inn í Nes og um bæinn. Fórum svo í kaffi hjá slysó-konum, alltaf jafn mikið sælgæti.
Stefni að því að ná fleiri hjólum á krús þegar skólinn verður búinn og allir klárir á rúntinn í góðu veðri. Hér eru allavega 7 “hippar” sem ég veit um, einn reyndar ekki í ökuhæfu ástandi. Svo eru auðvitað nokkur önnur hjól.

Gunni-Kawasaki Vulcan 800cc, Lilja-Yamaha V-Star 650cc, Bogga-Kawasaki Vulcan 500cc

Skvísan mín er í miðjunni - svaðalega fallegt hjól sem ég á ussussss - can’t get over it
Best að næra sig og skella sér svo í lokahnikkinn á þessu blessaða verkefni, langt komið en vantar þó nokkuð uppá enn, enda mikið lesefni í gangi…
Knús frá geispaða námshestinum ***
e.s. fékk hæstu einkunn í sálfræðinni - einn 5 eininga áfangi í höfn, vúbbí
April 24, 2008
Gleðilegt sumar elskurnar og takk fyrir ljúfan vetur.
Hann átti sína kosti og galla eins og alltaf, sem betur fer standa kostirnir uppúr 
Gallarnir eru að verða fjarlægir en skjóta þó upp kollinum stöku sinnum….
Er að skipuleggja hópreið í þessum töluðu, veit ekki hvort það gengur upp,
má því ekkert vera að því að skrifa ykkur langt bréf í þetta skiptið
Tónleikar og bjórfestival í gær, það var bara gaman.
Hef ekki þambað bjór í ár og öld…
Lífið er ljúft og gaman að vera til.
Rokin að pússa fákinn minn og krúsa svo á honum,
enda svo á því að belgja mig út af kræsingum í slysó… ummmm
Krúsað sumarknús frá mér ***
April 20, 2008

Kjellan komin í réttu græjurnar og að búa sig í fyrsta alvöru rúntinn 
Aðeins að fikta í innsoginu… hjólið að verða HOT og klárt =O)

Lets go!! …hún veit ekki hvar Sódóma er… hehe…
Þvílík sæla.
Kom í borg óttans um 1600 í dag og komin á rúntinn á hjólinu um 1700.
Ég var nú bara hálf feimin við gripinn þegar ég fékk loks að berja dýrðina augum 
Trúði því bara alls ekki að ég ætti þetta hjól - mér finnst það svaðalega fallegt og glæsilegt.
Hefði þurft að taka autosolið mitt með til að pússa aðeins krómið - pjattið alveg að fara með mann.
Byrjaði að rúnta um Grafarvoginn - minni umferð og þar þekki ég allar leiðir vel.
Kíkti aðeins í Laufrimann á Dóru frænku og þar voru auðvitað frænkur mínar, BéEff, Dóróthea, Sigríður og Andrea Marín.
Dóróthea, litla hetjan, kom með mér út til að prófa hjólið - gaman gaman.
Andrea Marín er mikill aðdáandi mótorhjóla en var minna hrifin af frænku sinni - þennan daginn allavega.
Þegar ég fór frá þeim ákvað ég að bruna í miðbæinn - ussss hvað það var óþægilegt að vera á 90-100 km hraða með bíla allt um kring,svigandi fram og til baka, já það er eins gott að hafa augun hjá sér ásamt heilanum….
Dagurinn var bara snilld í alla staði
Ætla að byrja morgundaginn á sundferð með uppáhalds frænkum mínum.
Svo verður krúsað bæði vel og lengi, hlakka hrikalega til
Get ekki neitað að það tekur á að keyra þetta hjól, enda 250 kg skepna, hjólið ekki ég 
Hef heldur ekki keyrt neitt af viti síðan í október líklega, nú verður kjéllan mössuð.
Búin með 2 rauðvínsglös og get svo svarið það að ég er að lognast útaf…
Held ég komi mér í kojs, bæði hratt og örugglega.
Sjáumst kannski á krúsinu á morgun 
Knús frá the biker chick ***
April 17, 2008
Jájá það er allt að gerast
Búin að redda mér fari á laugardaginn í borg óttans - þarf nefnilega að vinna á föstudaginn… þær eru aldrei heima þarna skotturnar sem þykjast alltaf vera að vinna hehe. Þær eru nefnlega alltaf að læra eða í skólanum, alveg eins og ég.
Planið er svo að fljúga heim á mánudaginn þegar ég verð búin að fara með fákinn minn á Flytjanda og knúsa hann bless. Shhiiiii ég er með fiðrildi í maganum - það hefur aldrei gerst áður þegar ég á leið í borgina…
man ekki eftir því allavega. Eins gott það fari ekki að rigna þessa helgina á vesturlandinu, því sú stutta ætlar að krúsa á hjólinu sínu, ef hún þorir að hella sér í geðveiku umferðina sem þar er!!
Ég á eflaust eftir að sitja eins og sveppur með hjálminn í fanginu alla þessa 450 km sem það tekur að keyra þetta… hehe djöfull getur maður verið steiktur - mér líður eflaust eins og litlu barni að bíða eftir pakkaflóði jólanna
Einn hængur á - hélt í gær að það yrði ekkert af þessu þannig að suðaði ekkert í mömmslu að passa fyrir mig
þannig að það á eftir að koma í ljós. Er reyndar bjartsýn á það, en maður veit aldrei hvað gamla settið er búið að ráðgera…
Ef ég fer svo á skíði með ungana helgina 25-27 apríl þá er nú bara búið að toppa árið - svei mér þá. Þessi apríl mánuður er bara búinn að vera snilld og er rétt hálfnaður
össsss
Dóróthea mín er búin að setja svefnsófa í Líhrænku hebbeggi, allt klárt þar og hún getur meira að segja sofið uppí hjá frænku sín. Það verður pottþétt tekinn dansinn úmbarassa með henni í nýja slotinu
já eða inn á baði eftir góða sturtuferð - við finnum okkur allavega eitthvað sérlega skemmtilegt að gera. Verst að Sokkur kemst ekki með - hann er orðinn svo loðinn og stór, ekki pláss í bílnum.
Knús frá fiðrildinu mér ***
April 16, 2008
Eins og oft áður þá flýgur tíminn frá manni á ógnarhraða…
Í dag eru 6 ár síðan Maron fékk þá greiningu að hann væri með ólæknandi sjúkdóm sem heitir sykursýki tegund I. Hann var rétt rúmlega 4 ára þegar þetta var. Þessir dagar eru eins og greiptir í skallann á mér, eins og gefur að skilja. Mikið að læra hjá okkur foreldrum hans og mikið lagt á lítinn kropp. Endalausar stungur, pikk og pot. Hann var ótrúlega fljótur að aðlagast þessum breyttu aðstæðum og hefur varla kvartað síðan þrátt fyrir leiðinlegan sjúkdóm oft á tíðum. Enda sonur minn þessi elska
Kláraði eitt fag í gær, skilaði síðasta verkefninu í sálfræði fullorðinsára og öldrunar og lenti þar með nánast upp á elliheimili, er komin með pungapróf í öldrunarlækningum hehe….
Í tilefni dagsins hjólaði ég til Gunnz í gærkvöldi og við fengum okkur einn ylvolgan irish ummmmm, hann var ekkert smá ljúfur. Með honum fórum við svo í gegnum viðskiptafræði verkefni - maður fær bara aldrei frið til að taka námshlé
Þessi heimsókn ætlar kannski að draga dilk á eftir sér!! Enda kannski bara í RVK á laugardaginn… á eftir að skoða þetta betur reyndar. Ath. pössun og flug heim á mánudag
en svaðleg snilld yrði það að fara, prófa LOKSINS hjólið og fara svo á létt skrall á laugardagskvöldið.. ussussss. Farið að hlakka til en ekki lögð af stað nema kannski 1%
rugludallur sem maður getur verið alltaf hreint. Nú ef ég fer ekki þá er það bara svo, hef bitið í og étið súrara epli en það… ójá aldeilis skíthrædd um það.
Jæja farin í kaffi með frænda… alveg svaðalega svöng sú stutta.
Knús ***
April 15, 2008
Ójá mér líður eins og honum þessa dagana - það hefur svo sem gerst áður 
Bikarmót, verkefnavinna, prófin að skella á og hvað er ég að gera til að þola zetuna við þetta allt saman… júbb borða óhollustu allan daginn - fer nú reyndar úr stólnum stöku sinnum til að shake that bootie hehe, já og opna ísskápinn, má nú ekki gleyma því 
Dæmi: átti bland í poka í vinnunni og þurfti að beita mig stríðsaga í gærkvöldi til þess að fara ekki þangað og sækja helv… pokann - þetta er nú ekki normal, svei mér þá 
Þetta er ALVEG óþolandi en að verða búið… hjúkket.
Byrjaði í nýrri vinnu í gær, eða fór og kynnti mér málið. Byrja formlega í dag - þetta er ákaflega spennandi og gefandi verkefni sem ég ætla að reyna að vinna úr og gera mitt besta. Tengist meira að segja því sem ég hef verið að tala um síðastliðin 14 ár og búin að stefna að síðustu 2 ár allavega. Verst að geta ekki sinnt því 100% strax, nokkrir hlutir sem eru á dagskrá núna sem ég get ekki látið sitja á hakanum - það er auðvitað skólinn. Ég er samt ekkert hætt í neinni vinnu, neinei þetta er bara sú fjórða sem ég er að sinna þessa dagana - alltaf nóg að gera hjá þeirri stuttu.
Milli þess sem ég er að vinna, gera verkefni í skólanum og sinna búi og ungum þá hugsa ég STÍFT til vesturs… nú bara verð ég að láta verða af því að fara í borgina. Ef ég ekki fer næstkomandi helgi þá veit ég bara ekki hvenær ég kemst…. 20. maí líklega - já ekkert smá upptekin litla lipurtáin
Það stefnir allt í það að ég verði að heiman á afmælisdaginn minn, hvernig væri þá að hóa saman vinum Zorabyggðar og víðar og fara út að borða - góð hugmynd sem gæti mögulega farið í vinnslu
Nægur tími til að hugsa um það, hann líður svo hægt hvort eð er
Síðustu dagar hafa verið ákaflega annasamir og skemmtilegir með meiru… æ það er svo dásamlegt að eiga vini og geta talað við þá um ALLT og ekkert… tær schnilld
Jæja rúsínutáslurnar mínar, sendi bara mitt hefðbundna knús ***
e.s. hjólið mitt varð 2ja ára 11. apríl
April 13, 2008
…eins og Emmsinn minn segir
Það er svo ljúft að vakna sprækur og óþunnur helgi eftir helgi eftir helgi…
Varð aðeins yfirstrikuð í byrjun janúar.. ég má bara ekki fá mér í glas með elskunni henni Sólborgu - það endar bara á einn veg…
Datt í það á þorrablótinu - það var snilld og ég tók 2 breezer flöskur í þremur gúllurum með einhverri græju sem Kiddi setti á stútinn - bara gaman. Á því balli voru samt aðrir sem sáu alfarið um drykkjuna hehe nefni engin nöfn, ræskj.
Um miðjan febrúar fór ég í Zorabyggð til að fara á skíði… skemmst frá því að segja að það rigndi ALLA helgina og engin voru skíðin með í för
sú stutta tók nú samt diskógallan með og eftir ljúffenga súpu á laugardagskvöldinu hjá BéEff var haldið í teiti og niður í bæ að dansa. BéEff var upptekin og komst ekki með
eftir ágætistjútt í 101 Zori þá tygjaði ég mig heim og vaknaði með ansi vænan hausverk. Segi það og skrifa BéEff þetta fjandskotans rauðvín var skemmt, það er engin önnur skýring á þessu skrautlega kvöldi
aðrir sáu líka alfarið um drykkjuna þetta kvöld, ræskj.
Fór á ball um páskana með ÁMS á Eskó city - það ball var nú svo fyndið að það gafst enginn timi til að skvetta í sig. Dansaði allan tímann og horfði á unga fólkið hanga saman á vörunum - ekki lent á svona balli síðan ég var…. hummmm rúmlega tvítug að ég tel. Eskfirðingar kunna þetta
Hef varla bragðað dropa þess á milli, kannski 3 irish og 2 bjóra…
Jæja, þá er drykkjuferill minn þetta árið upptalinn. Þar sem hann er svo þurr eitthvað held ég að maður verði að fara að finna sér stað og stund til að hrynja almennilega í það og hafa gaman að og skemmta öðrum. Ætla að vinna í því á næstunni - hef alltaf dottið vel í það fyrir próf og gengið svona líka glymrandi vel - gott að taka til í þessari ruslakistu sem þessi heili minn er
Talandi um ruslakistu - sá þegar ég keyrði heim í ískuldanum í nótt að 13. apríl var nýbyrjaður. Geggjað veður, vá svarblár himinn, norðurljós, tifandi stjörnur og fuglasöngur í trjánum.. nóg um það. Þar sem dagsetningar greypast í skallann á mér sísvona þá mundi ég auðvitað vel eftir þessum degi fyrir ári síðan.
Annars vegar gerði ég svolítið sem ég hafði ekki gert síðan… hummm sumarið 1990.
Hins vegar varð ég heilluð það kvöld - líklega var nú kominn 14. apríl samt… en hver veit það nema ég hehe… svona virkar heilinn í mér - stórfurðulegur eins og eigandinn.
Jæja bezt að koma sér úr bólinu og byrja að læra - jammsí ligg enn í rúminu buttnaked og nenni alls ekki að fara undan hlýrri sænginni… ussussss ekki segja nokkrum manni frá þessu. Sofnaði nú ekki fyrr en rúmlega 5, þetta er nú í lagi er þæki? Knús ***
April 10, 2008
Að fara hring á nýja hjólinu mínu, mér er bókstaflega illt í adrenalíninu hehe…
Fékk aukalykilinn og skráningarskírteinið í pósti í gær og mér varð bara meira illt við það.
Sá hjól áðan og þá varð mér ennþá meira illt… þetta fer að vera ástand held ég bara…
Ef ég ekki fer á skíði fyrsta dag sumars þá ætla ég að skella mér í Zorabyggð eftir… hummm hvað 8 daga
vúbbí ekki leiðinleg tilhugsun. Búin að fá gistingu og vilyrði fyrir ljúfum veitingum… getur ekki klikkað
Er mis-sofin, við hlið mér lá 32 kg karlmaður sem hrýtur eins og 200 kg gylta - hvernig er það HÆGT!!?? já mér er spurn… þessi litli fallegi kroppur sem er afsprengi mitt
Farin að læra - síðasta verkefnið í sálfræði í fæðingu - þá er sálfræðin búin - ekkert próf - finnst þér það ekki ljúft?? mér líka
Knús frá lærlingnum sem getur ekki setið kyrr nema vera að gúffa einhverju í sig.. já sá árstími kominn - sól úti og próf, át-tak í gangi næstu vikur ***
April 8, 2008
Flott dagsetning - Siggi 35 í dag - það er aftur ekki eins flott tala
bara grín…
Til hamingju með daginn gamli
Það er að verða kominn miður apríl og skólinn er bara ALVEG að verða búinn. Ég skil bara ekki þennan ógnar hraða á öllu - eða er það bara ég!! Ég er búin að vera svo löt og eirðarlaus á meðan guttarnir hafa ekki verði heima… búin að horfa á fullt af ræmum og liggja í leti í bókstaflegri. Fortíðarþráin alveg að kæfa mig þessa dagana, ræmurnar sem ég hef verið að horfa á eru klassískar síðan… hummm 1980-85 svona hér um bil
Var reyndar alveg x-dugleg fyrir páska, gerði varla annað en að læra þannig að ég var alveg búin að vinna mér inn smá afslöppun. Nú byrjar steypuvinnan aftur og verður þangað til 13 maí, þá er allt búið í skólanum… jibbí… ef ég næ öllu það er að segja
Mig er farið að líða verulega illa yfir græjunni minni sem býr í skúrnum hjá Slaugu í Ártúnsholtinu - það eru allir að tala um hjól og kaupa hjól… mig langar á rúntinn, badly 
Það væri nú ekki leiðinlegt að vera í Zoraborg fyrsta dag sumars og bruna niður á Hallærisplan, sýna sig og sjá aðra… fá sér einn ís og svonna
góð hugmynd.
Lenti á spjall við ungan herra um helgina, ég bar það undir hann að mig vantaði sárlega hjólakerru til að geta skutlast með hjólið með mér bæði austur og vestur, ekki leiðinlegt að geta rúntað aðeins um firðina fyrir austan þegar maður er í Úlfinum. Hann sagði það nú bara ekkert mál að útbúa kerru!! Ég kann það ekki en ég veit að hann kann það, þannig að spurning hvort hann var að bjóðast til að henda saman fyrir mig kerru - þarf að ná um hann aftur og spyrja betur út í þetta
Mér fannst skattaskýrslan mín fyndin - ég á bara faratæki en engin híbýli.
Bifreið - bifhjól - tjaldvagn… sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur í sumar.
Ég á Voffanum með vagninn í eftirdragi og hjólið þar ofaná… glæsileg sjón, nema hjólið er lítil 250 kg og varla fyrir písl eins og mig að lyfta því eitt eða neitt.
Annars fékk ég áskorun í gærkvöldi. Ég og Maron vorum eitthvað að fíflast sem endaði með því að ég átti að fara í boxer brókina hans… ég auðvitað tók þeirri áskorun og passaði í brókina af drengnum!! Spurning um að láta tjékka á því hvort ég sé með einhver Hobbita gen í mér 
Sagði Maroni í gær að ég hefði fengið fullt af hrósi fyrir að vera góður DJ á föstudagskvöldið á Víkinni, hann var mjög sáttur við playlistann sem ég sýndi honum… samt vantaði þar Bullet for my Valentine og Slipknot - ekki alveg mín tónlist en kannski ég verði við óskum hans síðar
E.s. af gefnu tilefni… bý með tveimur kk og einum Sokk sem er líka kk. Þeir koma stundum í sturtu með mér… hehe að fólk skuli halda eitthvað annað þegar ég pósta sturtuferð með kk - það er ekki hollt að vera að ímynda sér einhverja vitleysu, hvorki fyrir mig né aðra.
Knús frá hobbitanum til þín ***
April 4, 2008
Það er komin helgi eina ferðina enn…!!
Kom heim úr vinnu í gær og fór að lesa félagsfræði. Svo kom litla dýrið mitt heim og við Ægir vorum að kúra okkur, kjafta og spila einn leik inn á umferðarstofu - ummm hrikalega næs. Ákváðum svo að fara út á braut og skokka aðeins. Hann tók einn hring með mér þessi elska en sá þá félagana og var rokinn - hvað sagði ég um daginn varðandi félagana
Gamlan komst heila 10 hringi, ég rústaði alltaf tempóinu þegar ég fór að klöngrast yfir snjóinn sem er á 1/4 af brautinni
fúlt… en nokkuð sátt samt, enda aldrei verið mikill skokkari og verð aldrei. Ég varð lasin í febrúar og það helvíti lagðist þvílíkt á lungun í mér, er enn ekki orðin góð og það kemur niður á mér finn það. Fór svo heim í nokkrar bumbubeygjur og teygjur
Eftir það flutti ég í bókstaflegri inn í ísskáp, ég borðaði allt sem ég fann í húsinu, aðallega það sem var x-óhollt… betra að sleppa skokkinu og standa við hlið hollustunnar hehe. Það hefur heldur ekkert verð hægt að skokka vegna kulda og vinds, en nú er vonandi að koma betri tíð
Hélt vínklúbb í vikunni - ekkert smá gaman. Mikið skrafað og hlegið að honum Kevin
Hver haldiði að hafi unnið pottinn - júbb alveg rétt, ég sjálf
Nú get ég legið á kojufylleríi í nokkra daga, það verður notalegt hehe.
Ég og Sokkur fórum í sturtu í gær, það er þá í annað skiptið í þessari viku sem ég fer með kk í sturtu
nema að litli bastarðurinn beit mig
svo sem ekki skrítið eins og ég fór með greyið, hann var fljótur að jafna sig og við fengum okkur gulrætur í sárabætur.
Góða helgi og knús frá mér til þín ***
e.s. 1 mánuður í próf - 2 mánuðir í DK… usss hvað ég hlakka til