May 28, 2008

Frænkurnar fræknu og fögru 21. maí s.l.
… þá eru þessar tvær gellz á myndinni að fara til Kaupmannahafnar saman, tilefnið er ærið enda sú stutta búin að eiga frábæran afmælisdag og fjörinu er hvergi nærri lokið hehe….
Öllum velkomið að slást í för með okkur, við erum eitur hressar og ætlum að láta öllum illum látum í danaveldi, mála þá litlu rauða og sonna 
Úfff svaðalega verður gaman hjá okkur… get varla beðið og löngu hætt að sofa fyrir spenningi
Er búin að vera ógizzlega dugleg síðustu daga, sló túnið í kringum húsið, reitti eitthvað fjandskotans illgresi, pússaði fákinn minn og skeindi hátt og lágt, keypti mér nýja eldhússtóla og fullt fullt meira sem ég er búin að afreka… hvað er málið með húsfrúr síðnútímans að taka til í fullum herklæðum plús svuntu… ég persónulega er allataf í boxer á brjóstahaldaranum og helst í bleikum ullarsokkum
þannig að ég er bara búin að vera að striplast heima hjá mér síðustu daga hehe… bara næs er þæki
Bezt að horfa á How To Look Good NAKED - átfittið mitt síðustu daga er pottþétt í tísku…
Knús frá þeirri stuttu ofurspenntu ***
e.s. smá viðbót, frænkur mínar í mbl í dag 29. maí, ef ykkur vantar fjármálaráðgjöf þá er ég tengiliðurinn þeirra =) myndirnar vitlaust merktar, Bylgja er Þórey og öfugt hehe… þær eru snillingar, ekki við öðru að búast
slóðin á greinina (excel skjal): Þórey og Bylgja
May 23, 2008
Ja hérna hér alla mína daga, greinilegt að auglýsingar skila sér 
Takk allir fyrir öll yndisleg- skemmtilegheitin þann 21.
Maður er alltaf ríkari en maður heldur.
Umvafin vinum, kærleik og ástúð, jájá smá væmni, fylgir aldrinum
Eitt stykki góð og skemmtileg Reykjavíkurferð að baki. Fór með guttana mína í smá ævintýrareisu jú og læknastúss. Maron fékk fína skoðun hjá sykurdoksa en þeir bræður eiga eftir að fá góða tanna tiltekt hjá Kjálka ehf…
Mest gaman var auðvitað að fara í MotorMax, þar var mikið af augnakonfekti úffff OG MIKIÐ SUÐAÐ AF ÞEIM STUTTU. Fékk stígvél á mig og mótorhjólajakka á litla dýrið - nú verður hægt að krúsa almennilega þegar hættir að rigna og fer að hlýna eitthvað að ráði - skil ekki þennan ansvítas kulda hér eystra
Í tilefni dagsins fór ég út að borða á miðvikudagskvöldið í góðra vina hóp. Valið var að sjálfsögðu Austur Indíafjélagið, það er bara tær snilld. Var ennþá södd á hádegi daginn eftir 
Takk fyrir frábært kvöld stelpur - við verðum nú að gera þetta oftar - alltaf hægt að borða góðan mat og fylla á samverutankinn, afmæli eður ei
Þreytt og agalega sátt skvísa sem renndi í hlað í gær, svaf í heila 2 tíma og var frekar erfið heimferðin - GEISP…
Ohhh hvað helgin verður ljúf - helgarknús á línuna ***
May 21, 2008
Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á afmæli sjááálllfffff,
ég á afmæli í dag

Ykkar elskulega spræka og unglega verður að heiman á afmælisdaginn 
Verð í góðra vina hópi að úða í mig kræsingum og
drekka í mig yndislega samveruna
Blóm og brennivín vel þegið hehe.
Knús frá afmælisstelpunni ***
May 13, 2008

Three amigos á mánudagsmorgun,
jepp enn í rúminu en vorum fljót að stinga
okkur í laugina til að njóta sólarinnar 
Sumir eiga mjög erfitt með að vera alvarlegir 
Kláraði skólann áðan - swwweeeeet,
eins og forskeiðs unglingavandamálið mitt myndi orða það
Veit ekkert hvað ég á af mér að gera og hef gert mest lítið síðan ég kom heim.
Ætlaði að fara að hjóla en það er hálfgerð þoka og svo kom gustur, hætti við það.
Tók allt skóladótið og setti í kommóðuna góðu, sbr. fyrri færsla.
Vá hvað Maron og Ægir verða hamingjusamir að sjá að allt draslið er horfið 
Fór í bakaríið og keypti kruðerí handa guttunum mínum.
Bíð sem sagt spennt eftir að þeir komi heim og vilji eyða ÖLLUM deginum með mömmu sinni… hehe líklegt er þæki???
Geta nú og hafa samt kvartað heil ósköp yfir lærdómi mínum síðust daga… jábbs.
Það er nú skiljanlegt - hef ekki gert mikið meira en að læra síðustu DAGANA.
Oj að eyða hvitasunnuhelginni í lærdóm - æl…
Hef ákveðið að leggja árar í bát með eitt verkefni - það er bara ekki að skila neinu -ZERO - NADA - nenni ekki að standa í svoleiðis steypuvinnu.
Það er komið sumar og ég ætla að njóta þess að vera til og hafa gaman að lífinu 
Punktur.
Knús frá litlunni ***
May 12, 2008
Skyldi kommóðan standast álagið (sbr. fyrri færsla)
Skyldi ég taka tryllinginn
Skyldi eitthvað af efninu sem ég er að læra komast til skila í prófinu
Skyldi ég geta hætt að hýrast inn í eldhúsi að læra
Skyldi ég raka af mér hárið eftir próf
Skyldi ég setja hjólið mitt í gang á þriðjudaginn og keyra eitthvað út í buskann
Skyldi ég nenna að læra á morgun
Skyldi mig langa út í göngu í kvöldkyrrðinni - JÁ
Ætti ég að fara að sofa NÚNA - JÁ
Skyldi ég senda knús JÁ ***
E.s. annars líður mér eins og loðhamstri:
lítil - kafloðin - sínartandi - fer ekki út úr húsi..
E.s.s. skyldi það vera tilviljun að litla loðna gæludýrið mitt fékk nafnið Sokkur??
Veit um fáa sem eiga við eins mikil sokkavandræði að etja eins og mína litlu fjölskyldu
það eru litlir sokkar um ALLT hús ALLTAF… skil ekki hvernig þetta gerist og skil ekki hvernig hægt er að flokka sokka - gat það einu sinni en gengur það verr og verr með hverjum deginum - sokkapara námskeið - ANYONE hehe 
Komin með rugluna á háu stigi - gaga…
Nóttina
May 9, 2008
Er svo svakalega vel smurð til að blogga - búin að pikka nánast samfleytt frá 09:10 í morgun… amm þetta próf tók aðeins á og EINS gott að kunna fingrasetninguna 100% jú og ekki er verra að kunna ensku og stafsetningu líka
ég er bara snillingur og ekkert annað - þá vitið þið það hehe.
Þar sem ég var í einangrun í dag á mínu eigin heimili þá langar mig aðeins að gefa ykkur innsýn í “einangrun hins íslenska námsmanns” þegar hann tekur 8 klst heimapróf í fagi sem kallast Inngangur að fötlunarfræði og er 5 eininga kúrs
Ég er auðvitað sérstök kaloría eins og við öll erum, ég tel mig auðvitað vera meira sérstaka en alla aðra - það er bara normal, er þæki?
Til að fyrirbyggja það að lenda í einhverri krísu og langa í eitthvað sérstakt var ég búin að birgja mig vel upp… útbúa mér eins konar lager inn í eldhúsi - jeje just call me crazy… u ain’t seen nothing yet
kommóðan mín góða varð fyrir valinu sem lager, jú og smá í ísskápnum.
Kommóðan:
saltstangir
snakk
meira snakk
enn meira snakk
örrara popp
Kit Kat
bland í poka úr Nettó
bland í poka úr Olís
Ritz kex (og nóg af því)
Ísskápur:
flatbrauð
hangikjet
ídýfa (með saltstöngunum)
beibí gulrætur (með ídýfunni)
túnfiskssalat
kók
meira kók
BJÓR
Jepp ég veit, I’m a nutter
and U like it…
Spurning hvernig mér gekk í prófinu - var mjög busy að tæma lagerinn haha.
Knús frá geggjaða námsmanninum ***
May 7, 2008
Ég átti svvvooooooo leiðinlegan dag í gær… svona á heildina litið og var pirruð eftir því ómæómæ. Það bara gekk ekkert upp og ég nánast settist ekki niður til að læra fyrr en 2200 í gærkvöldi.
Dagurinn í dag verður EKKI þannig
og það er loforð frá mér til mín.
Vaknaði spræk og búin að mæta til vinnu.
Fór að skokka eftir vinnu - geggjuð blíða - ussusss tók nokkra spretti líka.
Fór svo rölt um bæinn - keypti mér svo hráefni í salatið hennar BéEff - össs það er schnilldin ein. Borðaði það með bestuztu lyst.
Ægir sagði svo við mömmsluna sína áðan: “mamma fyrst þú ert í bökunarstuði….
” salatstuðið var bökunarstuð… hehe.
…ég alveg - ohhh hvað ætlar hann nú að biðja um sem ég þarf að segja nei við eins og ansi oft síðustu daga - en próflestur gengur fyrir á þessum bæ núna… væri fínt að setja þá í heimavistarskóla eins og 10 daga þegar próflestur er í gangi… vá lúxus líf það væri!!
…” ertu þá til í að gera túnfisksalat??” ég hélt það nú, Ægir lærði og passaði eggin á meðan ég skrapp eftir fiskinum
ég er snillingur að búa til túnfisksalat án lauks, spyrjið bara Ægi
…bezt að snúa sér aftur að steypuvinnunni… Ægir er að “afskurna” eggin og salatið góða að verða klárt, knús frá skokkaranum mér sem er ekki pirralingur í dag ***
May 5, 2008
Ohhh ég er svo ósátt við þetta nýja kerfi í háskólanum - allir kúrsar orðnir fimm eininga. Þetta er bara ALLT of mikið efni að innbyrgja og koma frá sér á prófi, sem aftur verður til þess að ómögulegt er að fá einkunnir sem maður er sáttur við - amm er bara drullufúl yfir þessu
Fer í próf í fötlunarfræði á föstudaginn - það er lítið og ljúft próf frá 0900 til 1700
jújú 8 klst próf og mér skilst að þeir sem tóku þetta í fyrra hafi bara mátt sitja sveitt allan tímann og vinna. Þannig að á föstudag verð ég í einangrun heima hjá mér hehe, læsi húsinu, slekk á símanum og verð ekki til viðtals fyrr en klukkan 1701
get ekki sagt að mig hlakki til en ekki fer maður að drulla upp á bak núna… ekki í boði. Er að byrja að læra fyrir þetta próf núna á eftir, er búin að vera að skoða félagsfræðina, ekki verður það léttara próf. En þetta hefst allt saman og ég ætla ekkert að vera að grenja mikið meira
varð bara aðeins að vola, pínu pons.
En að allt öðru, ef ykkur langar að sjá flotta bíla og flott hjól þá er BURNOUT 2008 - HUGE HJÓLA OG BÍLASÝNING um hvítasunnuhelgina í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI KÓRINN við Vallakór 12 í Kópavogi. Kvartmíluklúbburinn stendur að sýningunni.
Það verða um 100 bílar til sýnis og 100-150 hjól… þetta verður bara glæsilegt og ég er strax farin að slefa…
Jææææja verð að hætta og snúa mér að skræðunum að nýju…
Knús frá skræðuskruddunni mér ***