June 16, 2008
Svei mér þá hef bara ekki haft eirð til að pikka eitt eða neitt.

Flottustu gellurnar í Køben mættar á hótelbarinn =)
Eins og flestir vita var vikufríið mitt tær snilld - gerði svo margt og hitti næstum alla mína kærustu á höfuðborgarsvæðinu, ef ekki alla bara
Byrjaði á grillveislu hjá Bjöggu og Óla fyrir ferðina, klippingu hjá Slaugu og bíóferð með bíófélaga á Indiana Jones….
Svaf ekkert fyrir ferðalagið, enda ung og spræk, hver þarf svefn anyhow hehe…
Ferðin til Köben vara æðisleg frá A til Ö fyrir utan einn leiðinlegan mann, en halló við kippum okkur nú ekki upp við slíkt.
Gerðum það sem okkur datt í hug og vorum ekkert að binda okkur yfir einhverju ofurskipulagi, bókhaldið var samt alltaf með í för hehe… og tappatogarinn
sem varð næstum til þess að ég fékk einkaskoðun af ansi myndarlegum náunga… ohhh óheppni alltaf hreint.
Töluðum helst dönsku við hina og þessa “dela” og stóðum okkkur með ágætum, sms-in okkar voru á dönsku viku fyrir ferð, á meðan á ferð stóð og svo líka eftir heimkomu - ég er búin að hlægja mig vitlausa yfir nokkrum atriðum og myndum úr ferðinni, sit og tárast yfir þessu öllu saman hehe - alein og vitlaus með tölvunni, svona getur maður verið ruglaður.
Daginn eftir heimkomu var önnur grillveisla… hversu heppin getur ein manneskja verið!! Þá fór nú Bjögga eftir ráðleggingum mínum og bauð einum single í mat
ásamt þeim frænkum mínum Sigríði og Andreu Marín. Bara gaman.
Endaði svo fríið á tónleikum með White Snake og það var bara upplifelsi að fara á þá með BéEff… hún er svo hrifin af svona gömlum lummurössum hehe… bassaleikarinn var minn maður og hann gaf mér nöglina sem hann spilaði með á tónleikunum í lokin - þar var eiginhandaráritun og herbergisnúmer
ásamt logoi WS og slagorðum tónleikanna: Good to Be Bad - World Tour EUROPE
HÉR ERU MYNDIR - RITSKOÐAÐAR HEHE
TAKK FYRIR FRÁBÆRA VIKU ELSKU FRÆNKA
1000 KOSSAR OG KNÚS
June 3, 2008
Við BéEff erum farnar að sms-ast saman á dönsku hehe, erum sem sagt alveg að tapa okkur í gleðinni
Af því ég á að vera að pakka og get ekki pakkað fyrr en 5 mín. fyrir brottför þá ætla ég bara að æfa fingrasetninguna aðeins
Fer afskaplega sjaldan í banka, bara eiginlega aldrei eftir að ég fór að prenta greiðsluseðlana sjálf í vinnunni. Allavega þá átti mín erindi í morgun, fann nokkra þúsara undir koddanum mínum (ef einhver kannast við að hafa gleymt þeim þá vinsamlegast gefið ykkur fram við mig og mig eina) ákvað að smella þeim inn kortið sem ég stofnaði sem bjórsjóð fyrir DK rejsen… mætti galvösk í röðina til gjaldkera - stutt útgáfa… þegar ég kom út í bíl var ég alveg hlandviss um að það vantaði einn fimmara á summuna sem var lögð inn.. fór heim og taldi afganginn og bingó - einn fimmari horfinn ræskj.
Hefði betur sleppt því að segja að í dag væri góður dagur til að ræna bankann (öryggiskerfið brann yfir í nótt) neinei var ég þá ekki bara rænd í staðinn 
Fékk svo símtal um 1700 og sagt að fimmarinn væri fundinn og var hann lagður inn á bjórsjóðinn með vaxtavöxtum hehe.

Hér situr sá dæmdi í einni kennslustundinni
Synir mínir voru útskrifaðir úr skólanum í dag - mikil sæla með það. Báðir fengu þeir alveg glimrandi einkunnir og umsagnir - ekki synir mínir fyrir ekki neitt
stolt ungamamman hér sem ritar þessi orð.
Það sem vakti helst athygli mína var einkunn Marons í stærðfræði, hann fór úr fimmu frá því í vetur í 8,5 núna í voreinkunn og geri aðrir betur. Hann var ekki sendur í stærðfræði búðir Einsteins… nóbb faðir drengsins (ásamt smá frá mér, var á fullu sjálf að læra) tók smá rasíu í þessum málum. Ég uppgötvaði í einu kúrinu okkar í bólinu fyrir ekki alls löngu að drengurinn kunni ekki STAF í stærðfræði… svona er þetta nú, hægt að komast í gegnum 5. bekk án þess að skilja né kunna neitt!!
Þetta voru nokkrar klukkustundir - það þurfti ekki meira… árangurinn alveg frábær enda drengurinn klár í kollinum en vantar stundum upp á “nennið” hjá honum
Sat í gærkvöldi og hlóð inn á litla sæta ipodinn minn, Bjöggu frænku til mikillar gleði - ég hlakka gífurlega til þegar ég fer að blasta græjurnar inn á herbergi hjá okkur áður en við förum út að skoða str… og borða góðan mat með bjórtunnuna okkur við hlið hehe.

MYND AF GRÆJUNUM ahahaha snilldin ég.
Hef átt svona ferðahátalara síðan árið 2000 (þessir eru nýjir reyndar) og þeir hafa sko oft gert mikla lukku þó sándið sé nú ekki nein snilld en hverjum er ekki sama þegar gleðin er við völd. White Snake þema verður allsráðandi til að koma okkur frænkum í rétta gírinn fyrir tónleikana eftir slétta viku. CCR, Eagles, Creed, Metallica, Guns N’ Roses fullt af 80′ - mikið af góðu eyrnakonfekti
er þæki BéEff?? “hef aldrei þolað Eagles”
Jæja nú held ég að sé mál að linni… munnræpa á háu stigi =)
Knuuuus til jer fra den lille pige fra Høfn ***
June 2, 2008
Aðeins törnuð vinnuhelgi að baki, halaði inn 40 klst og var alveg steinuppgefin á sunnudaginn þegar ég rifaði augun - get svo svarið það
þá var nú aldeilis ekki allt búið en kláraðist klukkan að verða 1900 á sunnudaginn. Fór þá út að borða með guttunum mínum og Sigga, fékk mér einn öl þar og var heppin að sofna ekki ofaní diskinn minn
Ég get svo svarið það að ég ætla að drekka danskan eðal mjöð næstu helgi í Köben fyrir allann gróðann af þessari helv… steypuvinnu
Plz minnið mig á að segja nei að ári, þetta er eins og eiga barn - ég er næstum búin að gleyma því hvað þetta var helv.. lýjandi og … æ ok þetta var fínt. Ef aðstaðan væri einhver í þessu blessaða “samkomu” húsi okkar og ef posarnir myndu virka sem skyldi… þá þyrfti ekki að vinna á bar sem er ekki bar, enginn er vaskurinn og varla vatn til að komast í.
Ætli við höfum ekki borið einhver tonnin þarna inn af gosi, víni og borðbúnaði!! ÞETTA ER BARA RUGL Í SVONA STÓRU BÆJARFJÉLAGI - PUNKTUR. Best að leyfa þessum stubbum þarna í ráðhúsinu að vinna á eins og þremur böllum þarna og upplifa þetta af eigin raun… það var allavega minibar á staðnum fyrir þá, ekki hægt að kvarta unda því
Jæja, búin að vinna í dag, slá túnið og þvo nokkrar þvottavélar - ný byrjar hausverkurinn fyrir alvöru… að pakka niður fyrir “sumarfríið” mitt. Það er heil vika í þessari atrennu og ætla ég að eyða því með Bjöggu frænku, litlu hafmeyjunni og White Snake - jeremías hvað það verður gaman hjá mér 
Án gríns þá erum við frænkur orðnar SVOOO spenntar að við getum varla einbeitt okkur að einu eða neinu - svona hálfgerður athyglisbrestur, tímabundinn. Vonandi að spennufallið verði ekki svo mikið að við gerum meiri skandal en um var rætt á ferðafundi hérna um daginn hehe, svo væri það nú alveg eftir mér að pakka niður lopapeysu og gúmmískóm
Jæja tuðbollan hefur ekkert meira að tuða yfir í bili 
Knús frá mér ***