Vaknaði allt of snemma í gær - til hvers?? Jújú sú stutta var búin að skrá sig til leiks í gríninu www.iformi.is og keppnisgreinin var fótbolti. Ég er farin að halda að ég hafi kannski bara fengið högg á höfuðið án þess að muna til þess
halló Liljan farin að æfa fótbolta!!!
Mætti, sá og tapaði BIG TIME - þetta var alveg hrikalega gaman, tognaði reyndar lítillega í nára sem þíðir það að sú stutta var ekkert að glenna sig í gær við lærdóminn hehe.
Rest af deginum eyddi ég í lærdóm - jamm smá pressa núna. Verkefnaskil á morgun í einu fagi og svo ritgerð á föstudaginn í öðru fagi og lesefnið fyrir þá ritgerð er slatti í poka, auðvitað á engilsaxnesku en ekki hvað - mest af því allavega. Ég gerði samkomulag við sjálfa mig (já ég er rugluð) ef ég myndi klára x-mikið af lesefni þá ætlaði ég að verðlauna mig og fara á ball og mála bæinn rauðan
á slaginu 2200 var ég búin, og það voru sko átök að klára, ómæ hvað ég var orðin dofin í höfðinu og eirðarlaus… úfffff.
Eftir lesturinn stökk ég inn í ísskáp, togaði í teit og sturtaði ofaní mig einum ísssssköldum. Í sturtuna, í djammgallann, út á Vík í smá upphitun og svo beint í dansgírinn. Ég var varla mætt á svæðið þegar ég rak augun í risatjald upp á vegg og þar runnu í gegn myndir ef fótboltahetjunni mér hehe… augnabliki síðar var ég komin með silfurpening (ólympíuleikar hvað!!) um hálsinn - talandi um flott kvöld, bara snilld. Takk fyrir frábært kvöld allir sem ég fékk að knúsa…

Sú stutta › Silfurhafinn :)
Varð næstum úti á heimleiðinni, það kom úrhellisrigningarógeð og ég byrjaði að skokka… næst kom HAGLÉL, bara sísvona, ekki upp úr þurru, ónei… þá flýði mín inn í Sparisjóð til skjóls - þegar élinu létti skokkaði ég rest og á mér var ekki einn þurr þráður!!
Það var lítið annað að gera en skella sér í sjóðheitt brúsabað og skríða svo í sófakúr þegar heim kom, enda voru 2 karlmenn búnir að hertaka bólið mitt
Í dag er ég agalega spræk en voðalega geispuð, ætla að fínisera verkefnið fyrir morgundaginn, éta sukk og hafa það ljúft - held það verði jafnvel tekinn sófinn á þetta í kveld með smá kertaljósi og lopasokkum
eeeef ég verð dugleg í dag.
Eftir kvöldmat í gær þóttist litla dýrið mitt hann Ægir vera agalega hungraður í safaríku og mjög svo góðu melónuna sem ég verzlaði fyrr um daginn - mest af henni fór í ruslið. Myndirnar tala sínu máli og…. þetta endaði sem Melon head
alltaf gaman að grallarast smá, sér í lagi þegar mamma tekur til eftir allt gamanið ![]()
Ef þið eruð að spá hvar Maron var, þá var hann í tölvunni - surprice haha…


Knús frá þeirri ofuránægðu með að vera á lífi til að njóta silfursins ***
e.s. ég er sko enginn öldungur þó það sé verið að tuggast eitthvað á því orði á þessari heimasíðu þarna, Í formi