þessar ritgerðir. Mér líður eins og prófessor sem les bara fræðirit og fær sína fullnægingu með því að uppgötva eitthvað sem hann ekki vissi áður - þvílíka orgían það
Þegar ég fékk sms frá kærri vinkonu í gær þá hugsagði ég.. er ég alltaf svona upptekin eða bara þegar hún kemur í sveitasæluna!! já hvað er málið með það… fór í knús og kjaftagang til hennar og fékk sveita-sperla að borða að auki. Þvílíkar krúsídúllur þessar stelpur sem hún á, litlu tvíbökurnar Kristín Sara og Berglind Bára - hvenær fæ ég mínar… HA… Friðdóra, Áslaug, Kolla og Hulda hehe.
Það fer að detta á staðlota hjá mér í skólanum. Búin að fá vist á Grund, veit ekki hvort ég treysti mér til að vera í herberginu “mínu”, því þar hefur verið loðinn og lyktandi gestagangur, er þetta herbergi bara komið á almennan markað - maður spyr sig?? Kannski mar’ krassi bara í sófanum góða eins og oft áður - snilldargripur þar á ferð
Hugur minn leitar norður í augnablikinu sem svo oft áður, þangað sendi ég mína bestustu strauma og hlýjar hugsanir. Þar er fallegi gullmolinn minn sem býr yfir óendanlega miklum kjarki og dug. Þú veist ég elska þig kæra vinkona, ávallt.
Mætti á bjórvaktina klukkan seytjánhundruð og búin að næra mig, nú er það námið aftur og það verður tekið með trukki á morgun og vonandi að þetta stykki sem er í fæðingu verði klárt fyrir brottför í Zorabyggð… það verður að vera klárt því RVK og heimanám á bara enga samleið.
Knús til þín frá mér ***