January 28, 2009

Mikið og ekkert

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 3:42 pm

Langar gífurlega að pikka nokkrar línur hérna, hef frá of mörgu að segja og veit bara alls ekki hvar á að byrja og enn síður hvar skal enda :lol:

Er búin að hafa það ljúft og gott síðan síðast, sem ég man ekki einu sinni hvenær var, svo langt er um liðið. Gekk vel í skólanum, ekki við öðru að búast þegar ég er annars vegar =)

Lýst lítið sem ekkert á þessa önn sem var að byrja, óvissan gífurleg og auðvitað er allt unnið fyrir aftan bak varðandi fjarnema og fer versnandi með hverju misserinu!! Sorglegt ferli það. Á að taka vettvangsnám frá miðjum mars til byrjun maí… hvar, hvernig, hvenær, hvers vegna… engin svör að fá og ekki möguleiki að skipuleggja eitt eða neitt. Það er eins og allir búi í 101, séu heimavinnandi og eigi þaðan af síður börn. Ástæðan fyrir því að við erum í fjarnámi er einmitt vegna þess að við eigum EKKI heima í Reykjavík, erum EKKI heimavinnandi, erum EKKI barnlaus.. svo ég tali nú ekki um þær sem eiga karlpunga að auki hehe - það er nú enginn smá pakki ;)   nei nú er ég nú bara að grínast.

Ætli ég verði ekki bara rekin úr bókhaldinu hjá Rafhorni og Hind þegar þetta skellur á, þá get ég flutt til Reykjavíkur allslaus og sofið á bekk 5b á Hlemmi…  meira andsk.. ruglið. Er að reyna að láta þetta ekki fara í sinnið á mér og tekst það ágætlega. Það er nóg annað sem þarf að hafa hugann við.

Mig er farið að langa svo svakalega á skíði, veit ekki hvernig ég á að snúa mér í þeim málum… nema auðvitað að láta bara verða af því. Bruna í Borgina eða austur, langar að fara í Bláfjöll, hef ekki farið þangað í nokkur ár. Það kemur í ljós hvernig sá draumur fer, í vaskinn eður ei.

Er byrjuð að skokka aftur, góð tilbreyting frá setulífinu sem ég stunda :D   er á leiðinni í Sporthöllina en hef mig bara ekki þangað inn, veðrið hefur verið æðislegt til að vera úti en ég þarf að taka á fleiri vöðvaflokkum og það almennilega til að taka úr mér stirðleikann og leiðindin, hlýtur að koma að þessu hjá mér.

Mér tókst loks að byrja að nota nýju ferðatölvuna mína, ég var aðeins búin að afrita allt af gömlu og flytja yfir þrisvar sinnum!! Það er ekki í lagi með suma… straujaði gömlu svo um daginn og setti hana upp með einhverju gúmmulaði að auki og færði múttu hana, þannig að ég neyðist til að nota þá nýju  :)   er búin að pikka og vinna á gömlu í tæp 4 ár, ekkert auðvelt að mynda tengsl við nýtt dótarí…

Best að snúa sér að lærdómnum, það bíða ærin verkefni og ekkert í boði að sitja bara og bora í … á sér. Knús í kútinn frá mér ***