November 11, 2008

Oft eru bílstjórar útkeyrðir…

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 1:09 pm

.. ég er einn af þeim eftir rallýferðir í Zorann síðustu vikur, þetta er orðið gott.

Mér er kalt, er með kuldahroll að innan sem utan og í ofaná lag er ég með kjánahroll líka, þeð er heldur verra og jafnvel kaldari en hinn hrollurinn.

Er að verða búin að jafna mig á veikindum sem eru búin að vera að hrjá mig, svona hálflasin í hvað.. einhverja 10+ daga, alveg óþolandi leiðinlegt. Ekki það, hef ekki gefið mér tíma til að vera lasin og þá vill þetta detta í þennan farveg.

Nú er bara að hugsa vel um sig og halda áfram að læra og sinna öllu öðru líka. Halda sig á strikinu og láta ekkert breyta því, ekkert annað í boði þessa dagana. Styttist í skólalok en samt ansi mörg verkefnaskil á næstunni… pjúff - þetta hefst eins og ALLTAF.

Harka af sér helvítis leiðindin og smæla framan í heiminn :lol:
Knús frá þeirri stuttu til þín  ***

4 Comments »

  1. Heyrðu esskan þú veist að ef þér er kalt að innan og með horlasarus þá á ég alltaf heita töframjöðin góða sem er allra meina bót fyrir sál og líkama og virkar líka vel á kuldahrollinn……mundu svo bara að hafa trefil um hálsinn þegar þú ferð út að skokka :-)

    Comment by Gunnz — November 11, 2008 @ 7:37 pm

  2. En hvað áttu við kjánahrollinum - það eru líklega bara Opal-skotin og mikið af þeim hehe…
    Verðum að fara að taka eðal skrun saman, gengur ekki lengur :lol:

    Comment by Liljan — November 11, 2008 @ 10:29 pm

  3. Gangi þér vel í lærdómnum og farðu svo að ná þessari pest úr þér !!!
    Bataknús til þín

    Comment by Friðdóra Kr. — November 11, 2008 @ 11:01 pm

  4. Takk fyrir kvöldið sæta ;)

    Comment by Anna Bj. — November 13, 2008 @ 12:43 am

RSS feed for comments on this post.

Leave a comment

XHTML ( You can use these tags): <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong> .