November 13, 2008

Hjartalag

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 5:46 pm

… merkilegt hvað það er vont að finna til í hjartanu, vöðvi sem vinnur í ósjálfráða taugakerfinu og ætti ekki að valda okkur hugarangri ef allt er í góðu. Svona er þetta, ég finn mest til í hjartanu þegar fjölskylda og vinir eiga um sárt að binda - samkennd/samhugur/samhyggð - falleg hugtök sem allir ættu að tileinka sér og hætta að nagast út í aðra og velta því fyrir sér hvers vegna aðrir geri hlutina svona eða ekki svona. Ég og aðrir höfum allan rétt til að gera hlutina nákvæmlega eins og okkur finnst best án dóma frá öðrum.

Ég er svo rík, ég á svo fallega stráka og duglega. Ég furða mig oft á því hversu duglegir þeir eru. Að hluta er það auðvitað uppeldið en einnig hvernig þeir eru að upplagi. Ég læt þá takast á við örgrandi verkefni reglulega og Ægir tókst á við eitt í dag og leysti það með sóma. Ómæld ást sem streymir til þeirra hvert sekúndubrot.

Tók myndklippu af Ægi í gær þar sem hann spilaði lagið Hátt í Hamraborgum á tvær blokkflautur í einu, snillingur þessi drengur er. Ægir með tvíböku blokkflauturnar.
Ég spurði Ægi hvort hann gæti lesið tvær blaðsíður í einu eins og THE Rain Man, eftir stutt próf kom í ljós að svo var ekki. THE Rain Man (sá sem myndin var gerð eftir) gat lesið tvær blaðsíður í einu þar sem vantaði heilatengslin hjá honum, sem tengja saman hægra og vinstRA heilahvel. Þetta væri ekkert slæmur kostur í Háskólanámi þar sem lesefnið er viðbjóðslega MIKIÐ…

Þarf að taka upp klippu af Maroni spila á trommurnar, það er þvílíka snilldin, ég skil ekki hvernig þetta er hægt. Gera nánast sitt hvorn taktinn með öllum útlimum… óskiljanlegt.
Það er ekkert leiðinlegt að heyra í þeim glamra á Fenderinn minn, rafmagnsgítarinn og hljómborðið hérna uppi, vinir Marons eru held ég flestir að læra á hljóðfæri :D

Fór í vínklúbb í gær, þvílík sæla. Þuríður lá ekkert á kræsingunum og mér leið eins og belgsvíni þegar ég kom heim. Takk fyrir kvöldið stelpur - alltaf jafn dásamlegt að hittast, eta, drekka og babbla um allt og ekkert, aðallega ekkert. Kom heim hlaðin áfengi eins og fyrir mánuði síðan, nú þarf stelpan að fara að bjóða í svelg-teiti og losa um þessa birgðastöðu, ekki gott að vera með of miklar birgðir um áramót hef ég heyrt :lol:

Mig laaaangar SVO austur í bústaðinn… er alveg iðandi. Ef ég vissi 100% að ég þyrfti ekki að fara í Zorabyggð á mánudaginn þá færi ég - hratt og örugglega. Er bara ekki að nenna þessu rússi núna, keyra heim sunnudag og keyra svo kannski til RVK á mánudag - fæ nú bara netta ælu í hálsinn. Ég bara verð að komast í sæluna fyrir árslok - annað væri hneisa.

Sú stutta er annars bara nokkuð kát og ekkert búin að læra í dag…
get svo svarið það - finnst það ótrúlegt sjálfri og kannski ég sé bara með hita… hehe.
Knús á línuna frá mér ***

1 Comment »

  1. sæl mín kæra það er vont að verkja í hjartað og ótrúlegt hvað fólk eyðir mikilli orku í að velta sér upp úr hvað aðrir eru að gera að nenna þessu! ég hef allavega nóg annað við tímann að gera.
    Einstaklega falleg færsla hjá þér 3.nóv :-)
    Við mæðgur erum semsé komnar aftur heim, búnar að útskrifast 2var af fæðingardeildinni, geri aðrir betur ;-) Allir hamingjusamir og við góða heilsu á besta bæ
    Ég elska þig líka og ber mikla virðingu fyrir þér og því sem þú ert að gera þú ert einstaklega dugleg og yndisleg manneskja, mundu það.
    Þín vinkona að norðan

    Comment by Ragga Har — November 14, 2008 @ 10:50 pm

RSS feed for comments on this post.

Leave a comment

XHTML ( You can use these tags): <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong> .