Já, gærdagurinn - get alveg sagt að honum gleymi ég aldrei.
Lenti í ansi leiðinlegri flugferð frá RVK til Hafnar með guttana mína. Sem betur fer er ég þeim eiginleika gædd að halda ró minni í aðstæðum sem slíkum. Það sem var mest óþægilegt við flugferðina var að hafa guttana mína með mér og upplifa algjört hjálparleysi. En þeir stóðu sig með prýði eins og gamlan og reyndar allir í vélinni. Er með smá strengi í hægri hendi eftir a halda fast og vel í Ægi, Maroni fannst þetta bara gaman… sem er bara hið besta mál, ekki ætla ég að innleiða einhverja hræðslu hjá honum.
En að allt öðru og mjög svo eftirminnilegu,
ástæðunni fyri því að deginum gleymi ég aldrei ![]()
Sú stutta telur sig nú ekki vera mjög gamla, ekki orðin amma ennþá allavega ![]()
Fékk símtal eftir kvöldmat í gær frá minni kæru vinkonu á Dalvík.
Ég óðamála að segja frá fluginu og einhverju öðru fann lítið fyrir því að eitthvað lá minni kæru á hjarta… ég malaði út í eitt, get svo svarið það hehe.
Loksins þegar Ranka mín komst að þá voru það nú engar smá fréttir sem hún hafði að færa =O) þrátt fyrir ungan aldur er sú stutta búin að eignast nöfnu… já það er rétt, litla gullið á Dalvík á að fá nafnið Lilja Rós.
Ekkert smá fallegt og mín ekkert smá montin, ég varð orðlaus (sem gerist nú ekki oft) og búin að upplifa allan tilfinningapakkann tengdu þessu, gæsahúð, hjartasting (góðan), smá skæl, alsæla, eirðarleysi, mont, stolt… örugglega eitthvað fleira eftir að koma - þetta er bara yndislegt. Mín kæra á Dalvík hefur kallað mig í gegnum tíðina liljurósina sína og þaðan kemur nafnið… bara frábært.
Lilja Rós Harðardóttir á spítalanum á heimleið. (stolið frá Bjarna frænda hennar)

Haraldur Kristján stóri bróðir að gefa Lilju Rós snabbann sinn =O)
Falleg systkinin á Dalvík - get ekki beðið eftir að knúsa þau.
(Þessari er stolið frá pabbanum)
Liljan ætlar auðvitað að reyna allt til að mæta í skírn hjá litla gullmolanum, það er nú alveg lágmark ef þú spyrð mig… lífið er svo dásamlegt - segi ekki annað. Með öllum sínum verkefnum og óvæntu uppákomum leynist alltaf eitthvað yndislegt sem gjörsamlega sviptir undan manni fótunum og kemur manni á flug, þvílíkur heiður - ólýsanleg tilfinning - get alveg sagt ykkur það
Knús frá montnu liljurósinni sem er enn á flugi og engin lending væntanleg hjá henni ***
e.s. mig er nú búið að verkja mikið, mig langar svo norður, þetta er ekkert til að bæta það neitt
Vona að nafninu fylgi eitthvað af heiðarleikanum, kraftinum og skemmtilegheitunum sem einkennir þig
kv Ranka
Comment by Ragga Har — November 19, 2008 @ 2:29 pm
… hún vinkona þín er ekkert að ná þessu
Hún Lilja Rós fær frábæran pakka í vöggugjöf frá foreldrum sínum, fylgir genunum =O)
Comment by Liljan — November 19, 2008 @ 2:32 pm
innilega til hamingju með nöfnuna. Þú mátt samt ekki springa af monti. Skil samt alveg að þú sért við það, enda enginn smá heiður sem þér hefur hlotnast.
Comment by Íris Gíslad — November 20, 2008 @ 11:29 pm
… ég held ég sé bara alveg við það að springa úr monti yfir þessu … því meira sem ég hugsa um þetta, því montnari verð ég, hvar ætli þetta endi allt saman
Comment by Liljan — November 21, 2008 @ 3:50 pm
Til lukku með nafnið Lilja og Ragga
Comment by Anna Bj. — November 23, 2008 @ 5:45 pm