steypuvinnan í skólanum þetta misserið, kláraði síðustu ritgerðina áðan - þvílík sælustund
búin að fá 6 einkunnir, eftir að fá 7 einkunnir og svo 3 lokaeinkunnir byggðar á hinum 13… vá flókið hehe.
Ætla helst að vera agalega löt í eina 2 daga… sé það nú ekki fyrir mér en aldrei að vita nema það takist, sófinn og dass af leti - gerist vart betra. Aldrei neitt letilíf svo sem að reka heimili og sjá um ungana sína =O) ekki í mínu tilfelli í það minsta…
Nú tekur við mánaðarfrí frá skólanum, skipulagið í HÍ er nú reyndar ekki upp á marga fiska og ég veit ekki alveg hvenær 6. misseri byrjar, hef heyrt 13. janúar.. tek því nú með passlegum fyrirvara.
Er svo agalega geispuð eitthvað að hausinn á mér er freðinn og ég hef ekkert sniðugt að segja, var nefnilega að vinna á Víkinni í nótt - sem var bara æðislegt. Vorum með jólaglögg frá 22-24, sem sagt það kostaði 1.000 kjéll inn, lifandi tónlist og innifalið var jólaglögg og smákökur. Gerðum rosa kósý, eplakertaljós, snjóugar greinar og jólaskreytingar um allt… við eigum svo frábæra tónlistarmenn, sungu og spiluðu jólalög fyrir okkur til miðnættis, svo var aftur tekið að spila um eittleitið og þá var rokkað… gestur í salnum og alvanur söngvari með meiru, hann bekkjarbróðir minn, Bjartur Logi steig á svið og liðið dansaði sem aldrei fyrr. Bara gaman.. kom heim hálf fimm… sofnaði um sex… ekki sniðugt að snúa svona við sólarhringnum og taka 14 tima vakt, ÓNEI.
Glöggið hjá Gunnz var svaðalega gott og mikið hrósað. Það er víst ekkert grín að gera gott glögg.. hef ekki smakkað slíkan mjög áður en fannst þessi mjög góður, dæmi svo hver fyrir sig. Jólaglögg næsta laugardag, þann 13. og svo aftur þann. 20. ég ætla ekki að missa af því
Ætla að opna einn jóla túbba, sturta í belginn á mér og hafa það gott það sem eftir lifir kvölds… góðar stundir og extra stórt knús frá mér til þín ***
Snilli kella mín, 8,5 og 9,0 út úr prófunum ef ég þekki mína rétt en gott að það er smá pása þá getur þú kannski farið að snúa þér að öðru hehe já jólaglöggið lukkaðist vel og gerir auðvitað líka næst og næst
Comment by Gunnz — December 9, 2008 @ 11:21 am