February 11, 2009

Ævintýraleit… ójá =)

Filed under: Rausið mitt — liljurósin @ 2:48 pm

Ég, Maron og Ægir skelltum okkur austur síðustu helgi í Úlfa-Grenið okkar í skóginum. Fyrsta mál á dagskrá og mjög aðkallandi var að fara á skíði, ég var nú pínu efins að við kæmumst á skíði þar sem frostið hefur verið ansi mikið síðustu daga.

Ákváðum að fara í Stafdal á Fjarðarheiði og spara okkur litla 100 km í akstur.
Það voru aðeins -16°c þegar við mættum á svæðið og sólin ekki farin að skína í brekkuna til að ylja okkur. Það breyttist nú fljótt og ég hugsa að það hafi verið um 10 gráðu frost í það minnsta, svo er auðvitað fljótt að kólna aftur…

Stafdalur er fínasta svæði… eeeeen Oddsskarð er nú samt í fyrsta sæti og verður þar :lol:
Öllum gekk vel að skíða og enginn tjónaði sig. Ég og Maron fengum að prófa bretti hjá Jökli vini Marons, það var ekkert smá erfitt og þvílíku átökin, alveg til að prófa það betur. Var steinstandandi hissa daginn eftir að vera ekki með neina strengi að ráði - bjóst við því að komast ekki framúr bólinu, er SVOOO mikill köggull hehe.
Það var auðvitað bara yndislegt að vera í bústaðnum, borða geðveiku humarsúpuna og sitja við eldinn. Veðrið var geggjað, stafalogn og máninn nánast fullur - hann tók það að sér blessaður þessa helgina ;)

Maron fékk að gista hjá Jökli vini sínum á EGS og við buðum litla bróður hans, Kristvini, að gista hjá okkur í skóginum - allir vinir og rosa gaman.

Fórum í sund á sunnudeginum fyrir heimferð og hún var nú með skrautlegra móti sú ferð, eða þannig séð… það kom nú ekkert uppá sem betur fer en Liljan var nú ekkert að velta mikið fyrir sér veðurspá eða færð hehe. Lét bara pabba um það, hann var um klukkutíma á undan okkur.
Það kom mér sem sagt í opna skjöldu allur þessi snjór á heimleiðinni… vorum að skríða úr Breiðdalnum þegar það tók á móti okkur þvílíka snjókoman með bilaðri hálku… úfff bíllinn nánast skautaði þarna hjá okkur um tíma og hraðamælirinn sýndi heila 40 km/klst - gaman gaman.
Þegar við svo komum hjá Karlsá í Lóni þá var allt marautt, merkilegur andsk… segi ekki annað!!
Færðin lagaðist fljótt en það var kominn góður stafli af snjó á göturnar og ekki voru hreindýrin neitt að auðvelda okkur för, stóðu blísperrt á götunni og dilluðu dindlinum - verst að geta ekki tekið eitt í skottið :lol:

Stefnan er svona nánast að bruna aftur um þar næstu helgi og fara aftur á skíði, þá er löng helgi hjá guttunum og við gætum mögulega tekið fimmtudag til sunnnudags á þetta, það yrði bara yndislegt. Sjáum til hversu dugleg ég verð að læra mér og hvernig allt annað gengur… það þarf víst að vinna sér inn slíkan munað með dugnaði… jovist.

Sokkur varð eins árs þann áttunda, fæddur 08.02.08 =)
Held hann sé með lotugræði blessaður !!

Knús frá okkur í ólátagarði ***

No Comments »

No comments yet.

RSS feed for comments on this post.

Leave a comment

XHTML ( You can use these tags): <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong> .